Alþýðublaðið - 23.09.1964, Síða 3
Ellefu stjórnmála-
flokkar buðu fram
Kaupmannahöfu 22. s-cpt.
(NTB-Reuter).
Sólskinsveður var um alla Dan
mörku í morgun er kjörstaðirnir
opnuðu kl. 9. Fjölmenntu kjós-
endur á kjörstað og það óvenju-
vel, enda hafa flesitir kjörstaðir
tilkynnt mun betri kjörsókn en
árið 1960. Um það bil klukkutíma
eftir að kosningamar hófust lágu
fyrir úrslit frá minnsta kjörstað
landsins, Hirshólmum við Fred-
erikshavn, en þar höfðu allir þeir
16 kjósendur, er þar áttu að
kjósa, skilað sér. Ekki er talið að
úrslitin þar gefi neina vísbend-
ingu um heildarúrslitin, en ihaldið
jók fylgi sitt þar úr 3 atkvæðum
síðast í 9 atkvæði nú. Hins vegar
töpuðu jafnaðarmenn 3 atkvæð-
um.
Stemmingin við kjörstaðina ein
3 frönsk börn
numin á brott
MIKILL ÁHUGI RÚSSA
Á FLOTAÆFINGUNUM
LONDON, 22. sept, (ntb-r.).
Sóvézkar flugvélar, skip og
kafbátar fylgjast með svoköll-
uðum „Teamwork”-æfingum
lierskipa frá sjö N a t o -lönd-
um, er hófust í gær á Norður-
Atlantshafi. Tvær orrustuþot-
ur af Crusader-gerð frá banda
ríska flugvélaskipinu „Inde-
pendence” hafa þegar rekizt á
tvær sovézkar sprengjufiugvél-
ar af gerðinni „Bison” og fylgt
þeim burt af æfingasvæðinu
suðaustur af íslandi þar sem
æfingarnar fara að nokkru
leyti fram.
Kleber S. Masterson aðmír-
áll, hinn bandaríski yfirmaður
æfingaflotans, sagði á blaða-
mannafundi um borð í banda-
ríska flugvélaskipinu „Wasp”,
að áhugi Rússa á æfingunum
væri eðlilegur. Svo virtist sem
Rússar hefðu átt von á æfing-
unum. En ef þeir hefðu vitað
hvað við mundum aðliafast,
hefðu þeir safnað skipum sín-
um á ákveðnum svæðum, í stað
þess að dreifa þeim, sagði
hann. ,
Masterson aðmíráll sagði, að
æfingaskip hefðu nokkrum
sinnum hitt fyrir rússnesk skip
flugvélar og kafbáta á æfing-
unum. Við höfiun rekizt á
Rússa sex eða sjö sinnum og
haft mikið að gera. Við höfum
séð nokkra kafbáta. Þegar mál
ið hafði verið rannsakað héld-
um við æfingunum áfram, sagði
hann.
Aðmírállinn var beðinn að
segja álit sitt á ferðum minni
sovézkra skipa, sem sáust að-
eins tvær sjómilur frá „Wasp.”
Hann svaraði, að sennilega
mundu sovézk skip halda sig í
námunda við Nato -flotann
næstu daga. Hann sagði, að
stöðugt eftirlit væri haft með
sérliverri flugvél, sem nálgast
N a t o -skipin.
Tvær sovézkar könnunar-
flugvéiar af gerðinni „Bison”
sáust í 100 sjómílna fjarlægð.
Þeim var fylgt burtu af svæð-
inu áður en þær komust nær
flugvélamóðurskipinu Wasp,
en sem svarar 30 sjómílum.
Framhald á síðu 10.
kenndist af glaðvaerð einkanlega
úti á landsbyggðinni. Á kjörstað
fyrir sunnan Kolding bauð kjör-
stjórnin af og til upp á súkkulaði
og smákökur handa kvenfólkinu
en körlum var boðið upp á vindla
og sígarettur. Kosningaþátttakan
var einkanlega mikil í Suðurjót-
landi, en þar f jölmenntu kjósend-
ur þýzka minnihlutans til þess að
reyna að forða þingmanni sínum
frá falli. Er talin mikil hætta á að
hann falli.
Við þingkosningarnar árið 1960
var kosningaþátttakan 85,5%. Við
þjóðaratkvæðagreiðsluna í fyrra
var hún 73%. í ár eru um 3 millj
ónir kjósenda í landinu, þar af
340 þúsundir manna, sem
kjósa í fyrsta sinn. Nettófjölgun
kjósenda er 250 þúsundir. Um
það bil 150 af 179 þingmönnum
þingsins höfðu boðið sig fram til
endurkjörs. Af hinum nýkjörnu
þingmönnum munu þeir verða
elztir, sem kjörnir þingmenn Juli-
us Bomholt menntamálaráðherra
jafnaðarmannaflokksins, Erik Er-
iksen leiðtogi Venstre og Axel Lar
sen,. Hið nýja þing mun koma
saman til fundar hinn 10. október
nk. Stuðningsmenn nuverandi rík
isstjómar voru 98 talsins með því
að 76 jafnaðarmenn studdu hana,
11 fulltrúar Radikale Venstre, einn
fulltrúi Grænlands, er var ráð-
herra um Grænlandsmál og jafn-
aðarmaður sá, er kjörinn var sem
fulltrúi Færeyja.
Ekki færri en 11 flokkar tóku
þátt í kosningunum í dag, þar af
einn nýr og þrír, er ekki áttu full-
trúa á siðasta þingi.Eru þeir Dansk
Samling, kommúnistar og Retsr
forbundet. Retsforbundet missti
þingmenn sína síðast eftir að flokk
urinn hafði um þriggja ára skeið
tekið þátt í ríkisstjórn með jafn-
aðarmönnum og Radikale Venstre.
Framh. á bls. 4
Poitiers, Frakklandi, 22. sept.
(ntb-reuter).
Þrjú böm voru í gæráag
numin á brott er þau voru á
heimleið úr skólanum. Hefur
lögreglan þegar hafið leit er
nær um land allt og beinist hún
einkum að ungri konu er sat
við stýrið í bifreið sinni, er
sást í grennd við stað þann,
þar sem síðast er vitað um
börnin. Var það skömmu áður
en þeirra var saknað.
Lögrcglan hefur tilkynnt að
í skólatösku eins barnsins hafi
fundizt bréfmiði, þar sem for-
eldrar barnsins eru vöruð við
að gera lögreglunni aðvart. Sé
það gert, má hamingjan hjálpa
barni yðar, segir þar. Ekki er
vitað til þess, að gerð hafi ver-
ið krafa um lausnarfé og ekki
er heldur vitað um ástæðurn-
ar fyrir ráni þessu. Börnin þrjú
eru Joel Biet, 5 ára, Patrick
Guillon, 5 ára, og Christine
Guillon 6 ára. Afi barna þess-
ara var vanur að fylgja þeim
lieim úr skólanum dag hvem.
í gær hélt liann aðeins áleiðis
með þeim, en hjólaði frá þeim
til að sjá hvort þau rötuðu
ein. Hann beið eina klukku-
stund og er þau komu ekki
hjólaði hann til baka og fann
orðsendingarnar.
MiMMMHMMIMMiMVMVMWMMMVnHMVHVHMMVMMHVM
Beygði sig fyrir
verkfollsmönnum
Saigon, 22. sept. (NTB-Reuter).
Ríkisstjórn Kahn hershöfðingja
féllst í dag á kröfur verkfallsfor-
ingjanna, sem í gær boðuðu alls-
herjarverkfaU. Er talið að þessi
undanlátssemi ríkisstjórnarinnar
muni valda óánægju á ýmsum stöð-
um í landinu. Allsherjarverkfall-
inu hefur verið aflýst eftir að rík-
isstjórnin þvingaði stjórn stórr-
ar vefnaðarverksmiðju til þess að
fallast á kröfur verkalýðsins.
Ríkisstjómin samþykkti í gær
að verða við ýmsum kröfum eftir
að um það bil 60 þúsund verka-
menn höfðu gert verkfall og tug-
þúsundir fóru mótmælagöngur um
götur Saigon, þrátt fyrir bannið
gegn verkföllum og kröfugöngum.
Undanlátssemin hefur, að því er
góðar heimildh; í hernum segja,
valdið verulegri óánægju meðal
nokkurra foringja hersins, þeirra,
er björguðu stjórn Kahn hershöfð;
ingja í stjórnarbyltingunni fyrir
níu dögum síðan. Er hér einkum
um yngri liðsforingja að ræða, er
krefjast þess, að Kahn reki ákveð-
na stefnu og sýni í verki, að
hann vilji gera allt, sem nauðsyn-
legt er, til að koma í veg fyrir
að grafið verði frekar undan rík-
isstjórninni.
Stjórnarskránni
ákaft mótmælt
Valetta, Malta, 22. sept.
(ntb-reuter).
Hertoginn af Edinborg setti í
dag fyrsta þing Möltu sem sjálf-
stæðs ríkis. nia heyrðist til her-
togans vegna háværra hrópa í
flokksmönnum Verkamannaflokks-
ins, er stóðu fyrir utan. Hertoginn
hélt ræðu sína við mjög háværa
andstöðu mikils mannfjölda, er
samankominn var í borgarhverf-
unum nálægt þinghúsinu. Voru
áhangendur ríkisstjórnarinnar þar
einnig staddir og hugðust þeir
fagna orðmn hertogans.
Mikill f jöldi lögreglumanna réð
ist hvað eftir annað að kröfu-
göngumönnum Verkamanna-
flokksins og reyndi að tvístra
þeim. Kom lögreglan Verka-
mannaflokksmönnum inn í hlið-
argöturnar. Mótmæli Verkamanna
flokksins eru gegn hinni nýju
stjörnarskrá er veitir kaþólsku
kirkjunni mikið vald, liinum nýja
varharsamningi við Bretland og
einnig þeim fjárhagssamningi, er
gerður hefur verið við Bretland.
í ræðunni, er hertoginn flutti,
segir, að Malta muni gera form-
legan samning við Bretland um
fjármál og varnarmál. Um utan-
ríkismál segir, að ríkisstjórnin
muni vinna að öflun nýrra mark-
aða fyrir landbúnaðarafurðir eyjar
skeggja. Auk þeirra verzlunarvið-
skipta, er landið hefur haft við
Vestur-Þýzkaland, mun stjórnin
vinna að því, að koma á svipuðum
viðskiptum við Austurríki, Líbyu
og Sviss. Malta hefur samþykkt,
að NATO fái að hafa áfram stöðv-
ar sínar á eynni.
Um tíuleytið valt bifreið af gerð
inni Austin Gipsy ofarlega í'Vaðla
heiði vestanverðri. Ökumaðurinn.
var einn á ferð og varð hann fyrir
nokkrum meiðslum og þurfti að
sauma sár hans. Ekki munu þau,
þó hafa verið mikil.
ALþÝÐUBLAOIÐ — 23. sept. 1964 3