Alþýðublaðið - 22.10.1964, Side 11
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 22. október 1964 ff.
Enginn réði við Peter
Snell í 1500m. hlaupi-
Tokyo, 21. okt. — <NTB).
Hvert einasta sœti var setið í
dag á Olympíuleikvanginum, þegar
1500 m. hlaupið hófst. En áhorf-
endur fengu ekki spennandi
keppni, til þess voru yfirburðir
Peter Snell of miklir. Þessi 26
ára gamli Ný-Sjálendingur, sem
alls hefur að baki 6750 km. hlaup
á æfingum og mörg mót, hafði
eins mikla yfirburði og Audun
Boysen hefði haft í B-móti á Bis-
iet fyrir nokkrum árum.
Það er mjög sjaldgæft, að
Breiðablik og
ÍBK jafntefli
S. L. SUNNUDAG léku Breiöa-
blik í Kópavogi og Iið ÍBK í und-
ankeppni fyrir Landsmót UMFI
næsta sumar. Leikurinn fór fram
á knattspyrnusvæði Kópavogs og
lauk með jafntefli 1-1. Annar leik
ur þarf að fara fram. í lið íslands
meistaranna vantaði nokkra Ieik
menn.
EN HEIMSMET ELLIOTTS
STENDUR ENN ÓHAGGAÐ
Frá maraþonhlaupinu í Róm — Bikila lengst til vinstri.
hlaupari leiki sér eins að kepp.i-
nautum sínum á Olympíuleikum
eins og Snell gerði nú. Snell hefði
unnið, þótt hann hefði verið síð-
astur af hlaupurunum 50 m. frá
marki. Það var greinilegt, að Snell
hugsaði aðeins um að sigra í hl.,
tíminn var aukaatriði.
Englendingurinn Whetton tók
forystu í upphafi með Davis frá
Nýja Sjálandi næstan, þegar 800
m. voru búnir var Davis fyrstur
með Burleson, USA og Baran, Pól-
landi næsta og millitíminn var
2:00,6 mín., fjórði var Snell. Þeg-
ar einn hringur var eftir setti
Snell á fulla ferð og áður en
nokkur hafði áttað sig, var liann
orðinn 20 m. á undan keppinaut-
um sínum og sleit marksnúruna
sem yfirburðasigurvegari. Tékk-
inn Odlozil sigraði Davis í bar-
áttunni um silfrið, en Brctina
Simpson varð fjórði.
1500 m. hlaup:
Snell, N-Sjál. 3:38,1 mín.
Odlozil, Tékk. 3:39,6 mín.
Davies, N-Sjál. 3:39,6 mín.
Simpson, Engl. 3:39.7 mín.
Burleson, USA 3:40,0 mín.
Beran, Póll. 3:40,3 mín.
BIKILA - og nú hljóp
hann maraþon á skóm
Tokyo, 21. okt. (NTB).
Af 79 skráðum keppendum lögðu
*68 af stað í „klassiskustu” grein
Olympíuleikanna í dag, maraþon-
hlaupið. Um ein milljón manna
fylgdist með hlaupinu á götum
Tokyo-borgar, en auk þess var
leikvangurinn þéttsetinn áhorf-
endum eða um 80 þúsund manns.
Spurningin var, skyldi Eþíópíu-
manninum Bikila takast að verja
Olympíutitil sinn frá Róm, en þá
sigraði hann með yfirburðum og
lrljóp berfættur. Bikila var skor-
irtn upp við botnlangabólgu fyrir
inánuði og sumir héldu, að það *
mundi kosta hann sigur í hlaup-
jnu nú.
Eftir tvo hringi á leikvangin-
um sveigðu hlaupararnir út af
leikvanginum og þá voru Túnis-
búinn Ben Boubaker og Yasuf, Pa-
kistan í fararbroddi. Ron Clarke,
Ástralíu, tók forystu rétt eftir að
komið var út á götu, en næstir
voru Hogan, írlandi og Hannachi,
Túnis. Clarke hafði enn forystu
eftir 5 km. og tíminn var 15.06
mín. Bikila var nokkuð á eftir, en
tíminn á honum við 5 km. var
15.19 mín. Þegar 10 km. voru bún-
ir var Clark enn fyrstur, en nú
var Bikila skammt undan og ír-
inn Hogan var honum samhliða.
I Bikila tók forystu skömmu síðar
' og þegar 19 km. voru búnir var
hann vel fyrstur, en næstur kom
Hogan.
Þegar hlaupið var rúmlega hálfn
að, var Bikila enn fyrstur, en ír-
inn er þrár og var skammt und-
an, en nú fóru að sjást/ þreytu-
merki á Hogan við 30 km. mark-
ið vai- Bikila alllangt á undan.
Fagnaðarópin voru gífurleg, —
þegar Bikila birtist á leikvangin-
um og voru samfelld, þar til hann
sleit marksnúruna sem glæsilegur
sigurvegari, hann er sá fyrsti, sem
sigrar í maraþonhlaupi tvívegis í
röð.
Tími Bikila var 2.12.11.2 klst.
langbezti tími, sem náðst hefur í
! maraþonhlaupi í heiminum til
i þessa. Annar varð Bretinn Heat-
ley á 2.16.19,2 klst. og þriðji
Tsuburaya á 2.16.22,8 klst. Annar
Breti, Kilby var fjórði á 2.17.02.4
mín., fimmti Sueto, Ungverja-
landi á 2.17.55.8 og sjötti Edelen,
USA, 2.18,12,4.
PETER SNELL
er langbeztur.
HHMMMMmMWWHHHHi
Clarke stóð sigr illa í maraþon-
hlaupinu.
LANDSLIÐIÐ OG
VARNALIÐS-
MENN LEIKA
ANNAÐKVÖLD
ANNAÐ KVÖLD kl. 8,15
Ieikur íslenzka landsliðið í
körfuknattleik við úrvals-
lið varnarliðsmanna af Kefla
víkurflugvelli og fer Ieik-
urinn fram að Hálogalandi.
Áður en aðalleikurinn
hefst leika unglingar 18 ára
oe yngri frá sömu aðilum.
Lylftingar.
Æfingar í lyftingum hjá Glímu
félaginu Ármanni eru að hefjast
um þessar mundir. Æfingarnar
fara fram í Ármannsfeilí við Sig
tún, og mun framhaldsflokkur
æfa á liverju kvöldi.
Byrjendur komi á þriðjudög-
um og fimmtudögum kl. 8 e. h.,
en á þeim tímum mun Óskar Sig
urpálsson leiðbeina byrjendum.
Innritun í lyftingar fer fram.
á skrifstofu Ármanns í íþrótta-
húsi Jóns Þorsteinssonar á mánu
dögum, miðvikudögum og föstu
dögum kl. 8—10,30 s. d.
Glímufélagið Ármann,
Körfuknattleiksd. ÍR.
Æfingar í vetur verða sem
hér segir:
Mfl. karla
Sunnud kl. 4,40—6,20 Hálogal.
Miðvikud. kl. 8,50—10,30 ÍR-húg
Föstud kl. 6,50—7,40 HálogaL
II fl. karla
Þriðjud. kl. 8,30—9,20 Langhsk.
Fimmtud kl. 7,40—8,30 Langhsk.
Föstud. kl. 7,40—8,30 Hálogal.
III fl. karla A
Þriðjud. kl. 7,30—8,30 Langsk.
Fimmtud. kl. 6,50—7,40 Langsk.
III. fl. karla B
Fimmtud. kl. 6,20—7,10 ÍR-húa,
Þriðjud. kl. 7,10—8,00 ÍR.hús.
IV. fl. karla A
Þriðjud. kl. 6,20—7,10 ÍR-hús
Laugard. kl. 1,00—2,00 ÍR-hús.
IV. karla B
Þriðjud. 6,50—7,40 Langhsk.
Þriðjud kl. 6,50—7,40 Langhsk.
Laugard. 2,00 — 3,00 ÍR-hús.
Mfl. kvenna.
Þriðjud kl. 8,50—10,00 ÍR-hús.
Fimmtud. kl. 8,00—8,50 ÍR-hús.
II. fl. kvenna
Þriðjud kl. 8,00—8,50 ÍR-húsl.
Fimmtud. kl. 7,10 — 8,00 ÍRhús,
Körfuknattlaiksd. ÍR.
Stúlkur. Ákveðið hefur vc-rið
að byrjá með nýjan flokk:
Stúlkna 14—16 ára. Æfingar
verða í ÍR-húsinu við Túngötu-
á þrið jud. kl. 8,00 og Fimmtuck
ki. 7,10.