Alþýðublaðið - 22.10.1964, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 22.10.1964, Blaðsíða 16
Fyrirlestur Carlsens vakti mikla athygli SJALDAN hefur slíkt úrval af va'.damönnum þjóðarinnar safn azt til að lilýða á fyrirlestur, sem í gær, er Norðmaðurinn Reidar Carlsen talaði hér um baráttu Norðmanna fyrir jafn- vægi í byggð landsins. Þessi fyrrverandi ráðherra, sem nú ' stýrir atvinnustofnun norsku byggðanna, flutti fyrirlestur á vegum norsk-íslenzka félagsins í Tjarnarcafé uppi, og var sal- urinn þéttskipaður. Þarna voru alþingismenn í stórhópum, enda liöfðu þeir rætt um skyld mál allan fundar tíma sameinaðs þings fyrr um öaginn. Þarna voru ráðherrar- og háttsettir mebættismenn úr ölium áttum, leiðtogar úr við- skipta- og athafnalífi og fjöl* margir aðrir. Þótti Carlsen mæl ast vel, enda er hann baráttu- maður af lífi og sál fyrir jafnri byggð landsins og mótun nú- tíma þjóðfélagsaðstæðna fyrir alla landsmenn. Carlsen lagði áherzlu á, að flóttinn til þéttbýlisins væri sérstaklega skaðlegur, af því að bezta fólkið. færi oftast fyrst, og þyrfti því að endurvekja traust og fá dugandi konur og menn til að viðhalda byggðinrii. Hann sagði ítarlega frá marg- víslegum ráðstöfunum í Noreg: og öðrum löndum, en lagði áherzlu á, að peningar gætu ekki læknað allt, hér þyrfti meira að koma til. Tæknin færi stöðugt vaxandi og gerði afköst hvers manns meiri, þannig að allar stéttir eigi að fá jafn góð lífskjör. Þyrftu að koma til nýjar byggðir, þar sem unnt væri að lifa alhliða nútímalífi. Norðmenn yrðu að reisa sem svarar eina 44.000 manna borg á ári, en hins vegar færu fimm sveitabýli, sem ekki eru hag- kvæm í rekstri, í eyði á dag. Fyrirlesturinn vakti mikla at hygli og gaf hinum íslenzku ráðamönnum margt að hugsa. Alþýðublaðið kost* ar aðeins kr. 80.00 á mánuði. Gerizt á* skrifendur. Fimmtudagur 22. október 1964 MÚSIKALSK- IR ÞJÓFAR Reykjavík, 21. okt. — OTJ. BROTIST var inn í starfsmanna hús að Álafossi í morgun, og stol- iff baðan töluverðum verðmætiun. Þjófarnir virðást hafa verið menn músikalskir, því 'að engu var stol- ið nema Royal Standard harmon- Guðmundur Steinsson, Wýtt íslenzkt leikrit frumsýnt í GÆR VAR frumsýning í '•’jóðleikhúisnu á Forsetaefninu eftir Guðmund Steinsson. Aðal- ’fb.íutverkin eru leikin af Róbert 'jftrnfinnssyni og Rúrik Haralds- %yni, en leikstjóri er Benedikt Árnason. Næsta sýning verður svo ■á Iaugardagskvöld. VANIAR3 SKOLASTJORA OG FIMMTAN KENNARA Reykjavík, 21. okt. 1964. í yfirliti, sem blaðinu barst í gær frá fræðslumálastjóra um skólastjóra- og kennarastöður, kemur í ljós, að nú vantar aðeins 3 skólastjóra og |15 kennara. Er þetta góð útkoma miðað við fyrri ár. Yfirlitið fer hér á eftir: 1. Barnaskólar: Auglýst hefur verið fyrir 106 skólahéruð 28 skólastjórastöður og 185 kennarastöður. Settir hafa verið í embætti 33 skólastjórar og 169 kennara. Sum ir þeirra endursettir án auglýs- inga, ef báðum aðilum líkar vel- (Skólanefndum og kennurum). í umferð eru bréf varðandi 2 skólastjórastöður og 23 kennara- stöður. brjár nýjar bækur frá Almenna bókafélaginu Almenna bókafélagið hefur sent 4rá sér þrjár nýjar bækur hausts- ffkis, Allt eru þetta bækur, sem *»iga eftir að vekia athygli á bóka- •tarkaðnum. Fyrst er að nefna „í>ætti um íslenzkt mál“, undir •itstjórn próf. Ilalldórs Halldórs- «K>nar, því næst bókina „Spánn“ *?tir Hugh Thomas, úr bókaflokkn um Lönd og þjóðir, og síðast en ekki sízt fyrstu smásögur ljóð- skáldsins, Guðmundar Frímanns. Bókin heitir „Svartárdalssólin,“ og er tíu ástarsögur. Þættir um íslenzkt mál, eru eftir nokkra íslenzka málfræðinga. Dr. Halidór Halldórsson prófessor hef Framh. á bls. 4 Nú vantar enn 3 skólastjóra (í 6 mán. skóla) og 11 kennara, en búið er aff ráða stundakennara á 3 stóðum, svo aff raunveruleg kennaravöntun er ekki nema 8, flest farkennarar. II. Framhaldsskólar: Auglýstar voru 101 staða (þar af 3 skólastjórastöður) fyrir 36 stofnanir alls. Settir hafa verið' 3 skólasfcjórar og 100 kennarar. Nokkrir þeirra endursettir í sömu stöðu. Nú vantar 4 kennara, en búið er að leysa vandann að mestu með stundakennurum. j Það er sameiginlegt fyrir barna- og framhaldsskóla, að allmargir kennarar, sem settir hafa verið, hafa ekki full kennararéttindi og sumir eru réttindalausir, en þeir eru ekki settir í stöður, nema ekki isé völ á möimum með réttindum. iku, og Phillips plötuspilara og út varpi (samstæðu). Sá sem í herberginu býr var á n^eturvakt þegar þetta skeði, og uppgötvaði því ekki þjófnaðin.n fyrr en henni var lokið. En ná- granni hans í næsta herbergi kveðst hafa vaknað um 6 leytið 1 morgun, við einhvern umgang, lit ið út og séð þá til tveggja manna á dökkum ,sex manna bíl, senni- lega Ford. Er talið að þar hafi verið þjófarnir. Þeir hafa farið inn um glugga tekið þýfið á bak- ið, og spásserað svo út um aðal- dyrnar. Er talið vafalítið að þar hafi verið á ferðinni menn sem eru kunnugir á Álafossi. Þeir sem kynnu að verða varir við harmon- iku eða útvarpssamstæðu af fyrr nefndum tegundum í „grunsam- legum“ höndum, eru vinsamleg- ast beðnir um að láta lögregluna i Reykjavík, eða Hafnarfirði vita. I SAMBANDI við frétt, sem birtist í Alþýðublaðinu fyrir nokkru, um fjárdrött hjá bílainn- flutningsfyrirtæki, er rétt aö taka fram, að kæran á framkvæmda- stjóra þess er byggð á niðurstöð- um í bókhaldi þess, eftir aff lög- giltur endurskoöandi hafði farið yfir það. PERUSALA LIONS- KLÚBBS Akraness í KVÖLD fara Lionsfélagar um Akranes og selja Ijósaperur. Allur ágóði rennur til áhaldakaupa fyrir sjúkrahús Akraness. Akurnesing ingar eru hvattir til að styrkja gott málefni og kaupa ljósaperur Lionsfélaga í kvöld. ★ SPILAKVÖLD AlþýSuflokksfélaganna í HafnarfirSi verður j A8i|iýðuiiúsinu í kvöld kl. 8,30. — Spiluð verður félagsvist. Sameiginlei; llaffidrykkja. Emi! Jónsson, formaður Alþýðuflokksins, flytur ávarp. Kvik- ‘ttipdasýning. Félagsmenn eru beðnir að mæta vel og stundvíslega. Guðjón B. Baldvinsson Jón Þorsteinsson Sigurður Ingimundarson Fundur Alþýðuflokksfél. annaö kvöld ALÞÝÐUFLOKKSMENN í Reykjavik eru minntir á félagsfund Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur í Iðnó næstkomandi föstudag 23. október kl. 8,30. Fundarefni er: Verðtrygging sparifjár; nauðsyn- legar aðgerðir í útsvars- og skattamálum. Frummælendur verða Sigurður Ingimundarson alþm., Jón Þorstcinsson alþm. og Guðjón B. Baldvinsson, deildarstjóri. Kaffi verður á boðstólum á fundin- um að venju. Allt alþýðuflokksfólks er velkomið á íundinn og er hvatt til að fjölmenna. - Stjórnin. iWWMWWWWWMWVWWMWMWMVWmWWWWWMWWMWWMUMWWW

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.