Alþýðublaðið - 13.11.1964, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 13.11.1964, Blaðsíða 2
Sitstjórar: Gylft Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fréttastjórl: Arni Gunnarsson. — Ritstjórnarfulltrúl: Eiður Guðnason. — Símar: 14900-14903. — Auglýsingasími: 14906. — Aðseturi Alþýðuhúsið við Hverfisgötu, Beykjavík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. — Áskriftargjald kr. 80.00. — X lausasölu kr. 5.00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðúflokkurinn. UMFERÐARFRÆÐSLA EKKI eru nema fá ár síðan umferðarkennsla <var tekin upp að marki í skólum hérlendis. Nú er kennsla í þessum málum komin svo vel á <veg; að á komandi vori munu öll tólf ára böm í barnaskólum í kaupstöðum látin ganga undir próí í umferðarreglum um leið og þau ljúka.fullnaðar- prófi. Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráðherra lýsti því yfir í umræðum á Alþingi fyrir fáum dögum, að þessa kennslu bæri að auka og eflá og mundi hann beita sér fyrir því að svo yrði gert. Nú á idögum er umferðin svo snar þáttur í lífi hvers manns, að nauðsynlegt er, að þegar á unga aldri séu börnum gerðar ‘ljósar þær hættur, sem umferðin skapar, þeim kennt að gæta sín og virða þær reglur, sem umferðin lýtur. Því miður er það svo, að við íslendingar eig- um enn margt ólært í þessum efnum, og.verðum við að taka duglega á, ef við ekki viljum dragast afur úr grönnum okkar á þessu sviði. Umferðarkennslan í skólunum er fyrsta veru lega stóra skrefið í þá átt að bæta úr því, sem nú er aflaga. Ber að fagna því, að skilningur ríkir á, að efla þennan þátt hinnar almennu umferðarmennt unar. Það er mikið verk að koma slíku nýmæli á laggirnar í skólum landsins, sem þessi kennsla er, og þess því ekki að vænta að því sé hægt að koma í kring á örskömmum tíma. Við eigum enn langa leið ófarna að markinu, en megum samt hvorki spara fé né fyrirhöfn til að koma fram umbótum. Fyrr eða síðar hlýtur að koma að því, að hér 1 borginni og í stærstu kaup- stöðunum, verði komið upp sérstökum svæðum þar sem umferðarkennsla skólabama fer fram. Á. þessum svæðum yrðu akbrautir, gangbrautir og farartæki allt sniðið við hæfi barnanna, þannig að kennslan yrði í senn verkleg og munnleg og þau lærðu af eigin raun hvernig bezt má forðast hætt- ur umferðarinnar og hvernig umferðin skuli vera svo minnstar hættur skapist. Eins og er, þá er tollur okkar íslendinga á alt- ari umferðarinnar of hár. Það er skylda hvers borg ara, að gera hvað hann má til þess að lækka þenn- an dauðatoll. ÍSRAELSFÖR DR. BJARNI BENEDIKTSSON forsætisráð herra og kona hans eru nýkomin úr heimsókn tii ísraels. Síðan hið nýja Ísraelsríki var stofnað hef ur jafnan verið gott vinfengi milli þess og íslands Ýmislegt er sameiginlegt með þjóðunum, báðar byggja harðbýl lönd og báðar eru duglegar og fram sæknar. íslendingar hafa oftlega stutt málstað Israels á alþjóðlegum vettvangi og er þess að vænta, að góð vinátta þjóðanna haldizt um framtíð báðum til hagsbóta. Husqvarna SÝNING SÝNIKENNSLA Frk. Gutarp deildarstjóri saumadeildar hjá Husqvarna verk- smiðjunum, ásamt frú Erlu Ásgeirsdóttur, mun sýna og leiðbeina um , meðferð og notkun Husqvarna saumavéla. Fer sýnikennsla þessi fram í húsakynnum vonxm, að Suðurlands- braut 16, miðhæð, sem hér segir: ★ FÖSTUDAG 13. nóv. kl. 14—9 og 20—22. ★ LAUGARDAG 14. nóv. kl. 14—18. Öllum er heimilt að notfæra sér þetta einstæða tækifæri til að kynnast Husqvama saumavélum, auk þess sem ýmsar af öðrum framleiðsluvörum HUSQVARNA yerksmiðjanna verða sýndar. GUNNAR ÁSGEIRSSON H.F. Suðurlandsbraut 16 Piltar og stúlkur í löggæzlu! LÖGREGLUSTJÓRI hefur eef- ið út tilkynningu um það, að hann ætli sér meðal annars að ráða nokkra unga menn á aldrinum 19 —21 árs í lögregluna, að þeir eigi að starfa að ýmsum léttari og vandaminni lögreglustörfum undir stjórn eldri lögreglumanna, sem notið hafa þjálfunar. Þetta lizt mér vel á. j'afnframt liefur hann tilkynnt, að hann ætli sér að ráða ungar stúlkur til starfa að lög- gæzlumálum, aðallega á götum úti og þar á meðal við gæzlu stöðu- mæla. OG ÞETTA LÍZT MÉR enn betur á. Ég hef fyrir löngu ætlað að minnast á það, að gæzla stöðu- mæla hefur til þessa ekki verið góð, enda alls ekki hægt að ætlast til þess, að lögreglumenn, önnum kafnir við önnur störf, geti gælt mælanna og bifreiðanna eins vel og skyldi. Það gerist þúsund sinn- um á dag, að lögbrot eru framin í sambandi við stöðumælana. Menn leggja 'bifreiðum sínum vitlaust, leggja þeim til dæmis utan á aðrar bifreiðar svo að þær komast ekki út, hugsa ekkert um það hvort gjald hrekkur fyrir tímanum o. s. frv. STÖÐUMÆLARNIR HAFA reynzt mjög tii bóta í liinni erfiðu og viðsjálu umferð og hefðu orð ið til enn meiri* bóta ef þeirra hefði verið betur gætt. Það er erf- itt að fá menn til þess að starfa í lögreglunni. Vel æfðir og vel hæf- ir lögreglumenn eru ekki ýkja margir. Þess vegna er það rangt að hafa þessa fáu menn við eins auðveld störf og gæzlu stöðumæla. Mér hcfur oft blöskrað bað. Ég held að ungar stúlkur í sínum ein- kcnnisbúningi geti gætt mælanna og einnig stjórnað umferð miklu betur en risavaxnir lögregluþjón- ar. Eins er með piltana. Þeir geta uppfyllt margar þarfir í löggæzlu starfi og lögreglustjórninni þá um leið gefast tækifæri til að skipu- leggja starf æfðra og fullgildra lögregluþjóna miklu betur. SANNLEIKURINN ER SÁ að löggæzla hefur ekki verið góð í Reykjavík. Borgin hefur stækk- að gýfurlega á tiltölulega fáum ár- um og íbúum fjölgað að sama skapi. Jafnframt hefur reynzt S9 erfiðara að fá nógu marga lög- reglumenn og þá er ekki von & góðu. Það er vandasamt starf a® vera lögreglumaður — og það eí vandasamt að fá nógu marga unga menn með hæfa skapgerð. En ef til vill er hægt að efla álitlegaa hóp ungra manna til lögreglustarfa með því að taka þá svona unga og láta þá njóta þjálfimar sér eldri manna og vanart. ÉG ER SANNFÆRÐUR UM, aH lögreglustjórnin er á réttri leið. Ég býst víð, að Reykvíkingar sóa sama sinnis og ég, að þeir munl fagna ungu stúlkunum og ungtt piltunum þegar þau fara að hjálpa til þess að greiða úr umferðinnL Við eigum oft í erfiðleikum I flækjunni svo að það er tími tö kominn að greitt sé úr. Hannes á liorninu. Eyjólfur K. Sigurjónssori Ragnar A. Magnússon LöggiRir endurskoðendur Flókagötu 65, 1. hæð, sími 17903 2 13. nóv. 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.