Alþýðublaðið - 13.11.1964, Blaðsíða 6
j Götusóparar uútiuiaus 1
=3 ■ M
Éj Það er orðið sældarlíf að vera götusópari í bænura Selford í Lancashire í Bretlandi. Sex af götu- 1
g sópurum bæjarins hafa fengið þessar tröllslegu ryksugur íil afnota „og verða ekki einu sinni j|
[ skítugir á höndunum lengur“, eins og einn þeirra orðaði það. Vélarnar eru knúnar litlum ben ■
■ zínmótorum og eru amerískar. m
sér hiijfa-
leikritum
HIN töfrandi, gríska leikkona Mel
ina Mercouri er saltvond út í
bandaríska kjaftablaðið Confiden-
tial og hyggst fara í mál við það.
Blað þetta er eitt illræmdasta
kjaftablað í heimi og hefur nýlega
sent fréttasnápa sína til Evrópu
til að snapa uppi góðar kjaftasög-
ur um frægt fólk þar. Þeir sendu
síðan frá sér lýsingatr á því hvern
ig Melina ferðaðist á milli veitinga
húsa og náttklúbba I París og
Aþenu í fylgd með sínum góða
vini og stjórnanda Jules Dassin
og hinum lögformlega eiginmanni
sínum Pan Charokopos. Á grund-
velli þessa smíðar blaðið svo sögu
um „þríhyrning", sem Melinu lík-
ar ekki vel.
Hún er um þessar mundir suð-
ur á Costa Brava að gera kvikmynd
og þar kallaði hún blaðamenn á
sinn fund og lýsti yfir:
— Jules Dassin og ég höfum í
sex ár búið saman eins og hjón
fyrir opnum tjöldum. En ég get
ekki og vil ekki skilja við eigin-
mann minn, sem síðastliðin tíu ár
hefur gengið á milli sjúkrahúsa
fyrir taugaveiklað fólk. Þegar við
Dassin tökum hann með okkur á
ferðum okkar, gerist það sam-
kvæmt útþrykkilegum tilmælum
lækna hans, sem segja, að honum
líði miklu betur á eftir — og auk
þess veit hann allt um Dassin og
mig og skilur okkur. Hvaðan kem-
ur Confidential réttur til að blanda
sér í svona algjör einkamál?
★ Tímaritið Rose el Youssef
skýrir frá því, að rússneska sendi
ráðið í Kairó hafi krafizt þess aó
fá aftur allar þær ræður Nikita
Krústjofs, sem sendiráðið hafði
áður gefið landsbókasafni Egypta.
★ Japanir framleiða gerviperl-
ur fyrir um 2,3- milljarða króna á
ári. Mest af perlunum — um 90%
er flutt úr. í fyrra nam útflutning
urinn tæþum 2 milljörðum króna
og var það tvöfalt hærri upphæð
en árið 1959.
Kaupa
bréf í
BLAÐIÐ The Sunday Times í
London skýrir frá þ.ví, að nú sé
„sá venjulegi borgari" kominn inn
á Broadway sem ,,bakhjarl“ hinna
nýju stykkja á þeirri miklu leik-
húsgötu. Skýrir blaðið svo frá, að
nú geti menn keypt sér hlut í
stykki, leikriti eða „showi“, jafn
auðveldlega og menn kaupa sér
hlutabréf eða skuldabréf. Og marg
ir virðast gera þetta. Það er orð-
inn mikill siður í Bandaríkjunum,
að hinn almenni borgari leggi fé
í fyrirtæki, og hlutabréfa- og
skuldabréfakaup eru gerð auðveld
ari með þv.í að sélja slík bréf með
afborgunum eða með því að hafa
hlutina svo smáa, að auðvelt sé að
kaupa bréf af tekjum sínum. Og
nú geta menn, sem sagt, keypt sér
hlutabréf, ekki aðeins í stáli, held
ur líka í leikritum.
Þeir, sem fyrir sýningunum
standa, skulu leggja fram reikn-
ing um tekjur og gjöld, þegar leik
ritið er hætt að ganga. Áður en
sýningar hefjast skulu þeir upp-
lýsa hve mikilla peninga þeir
þurfi með og hvenær reikn'að sé
með að búið sé að ná því fé inn.
Oftast nær þarf leikrit að ganga
8—9 vikur á Broadway til að hafa
upp í kostnað. Síðan bætist við
gróði, ef nokkur verður.
„Stöðvið hnöttinn, ég 'ætla að
fara af“ gaf til dæmis af sér 3,75
dollara fyrir hvern einn, sem í
það var lagður. En það stykki gekk
líka í 17 mánuði fyrir fullu húsi.
Þre- eða fjórföldun á því, sem
upphaflega er lagt fram; er talin
um það bil hámark þess, sem gróð
inn getur orðið.
Þegar verst gengur, geta menn
tapað hverjum einasta eyri (centi),
sem þeir hafa lagt fram. í mörg-
um tilfellum segja sýningarstjór-
arnir hreinlega, að menn skuli
ekki leggja fram fé, nema þeir
hafi ráð á að tapa því. Nýlega var
leikrit Anouihls, „Ferðamaður án
Framhald á síðu 1(V-
PILLÖR VIÐ
ÁST
Terry Smith, læknir í Los Ang
eles, heldur því statt og stöðugt
fram, að hann hafi fundið upp
óskeikult lyf gegn „ást við fyrstu
sýn“, en slika ást telur hann mjög
hættulega. Þetta er pilla, sém
gerir þann, er tekur hana, ómót-
tækilegan fyrir slíkri ást. Hafi
hann tekið slíka pillu, getur hann
sallarólegur mætt hvaða fegurðar
| mær sem er, án þess að hjartað
slái vitund hraðar. Hins vegar
hefur ekki verið frá því skýrt,
hvort piiian hjáipi konum líka
til að standast karlmannlega feg-
urð.
Þó að slíkrar pillu kunni að
vera þörf í Los Angeles og Iíolly
wood, hefur Smith lækni enn ekki
tekizt að fá neinn til að fram-
leiða hana. Það slcyldi þó ekki
vera, að framleiðendur telji, að
eftirspurn eftir slíkum pillum ýrði
ef til vill ekki sérlega mikil?
á'HiiiiiímtflipiBmniuiiiiiiiiHiiiiiiiiiniiiiiniiiíiiiiniiiiiiiiinHiiiiiiiiiiiiiiinniiiiiiiiuiiiiiiiiiii'iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiliniiiinuiiaiiiiaiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiilllilliiiliiliiiiuiiiin!
<] Á FRUMSÝNINGU |
Þcssi kona heitir Carroll Baker og er kvikmyndaleikkona. Um jj
daginn var frumsýnd á Plaza bíóinu á PiccadiIIy Circus í Lond-
on ný mynd með henni, mynd, sem gerð er eftir skáldsögunni g
The Carpetbaggers. Carroll kom til frumsýningarinnar klædd p
(eða óklædd) þessum kjól og áhórfendur urðu snarvitlausir og g
réðust yfir allar hindranir til að koma við hana. Það má ann- jj
ars taka það fram, að föt (eða kannski öllu heldur skortur á jj
þeim) hafa átt mikinn þátt í að skjóta Carroll þessari með Sj
forganshraði upp á stjörnuhimininn.
iiiiiiimðiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiim
6 13. nóv. 2964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ