Alþýðublaðið - 13.11.1964, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 13.11.1964, Qupperneq 4
Reykjavík 12. nóv. EG. EFTIRLIT MEÐ ÚTLENDINGUM. JÓHANN HAFSTEIN, dómsmálaráðherra (S) mælti í dag fyr- Ir frumvarpi til laga um eftirlit með útlendingum. Frumvarpið er \flutt vegna væntanlegrar aðildar íslands,' að samningi hinna Norð- urlandanna frá 12. júlí 1957 um afnám vegabréfaskoðunar innan Norðurlandanna. Megin stefna þess samnings er sú, sagði ráðherrann, að útlendingar geti ferðast að v’ild án þess að sýna vegabréf innan Norðurlandanna eftir að þeim hefur verið veitt innganga í eitt þeirra. Yrðu því vegabréfaeftirlitsmenn að nokkru að ’gæta hags- muna alira Norðurlanda í senn við störf sín. Frum- varp þetta er samið af nefnd, sem’endurskoðað hefur ö.'l ákvæði og reglugerðir um þetta efni með tilliti til væntanlegrar aðildar íslands að fyrrgreindum samn ingi. Enn fremur sagði Jóhann Hafstein; að frumvarp ið gerði ráð fyrir lögfestingu ýmissa framkvæmda- atriða, og að öðrum ákvæðum væri breytt til samræmis við það sem er í grannlöndum okkar. VERNDUN GAMALLA HÚSA. Einar Olgeirsson (K) mælti í dag fyrir frumvarpi, sem hann flytur, og fjallar um breytingu á lögum um verndun forn minja. Leggur Einar til að eigendur þeirra húsa, sem byggð eru fyrir 1874 og enn eru í notkun verði skyld- aðir til að halda þeim við, en séu slik hús ekki notuð. eða viðhald þeirra vanrækt, sé 'það réttur og skylda ríkisins að halda þeim sómasamlega við. BreytingartR- laga Einars gerir og ráð fyrir að ríkisstjórninni sé heim • ilt að kaupa slík hús samkvæmt mati, og leggur þá skyldu á hendur eigendum húsa, sem byggð hafa verið fyrir 1874, að semja um sýningaraðstöðu við ríkisstjórn séu húsin sérstaklega til sliks fallin. ORLOFSLENGING. Frumvarp til laga um lengingu orlofs var afgreitt frá neðri deild í dag og fer nú til efri deildar. Jóhann Hafstein dómsmálaráðherra (S) mælti í dag fyrir breyt- ingu á 2. mgr. 256 grein hegningarlagá, þar sem gert er ráð fyrir að hámarkstjórn sem miðað er við í nefndri grein verði hækkað í 3000 krónur úr 1000 krónum. LÝSISHERZLUVERKSMIÐJA. Skúli Guðmundsson (F), Gunnar Gíslason (S), Ólafur Jóhann- esson (F), Einar Ingimundarson (S), Björn Pálsson (F), Jón Þor- steinsson (A) og Ragnar Arnalds (K) hafa lagt fram þingsályktun- artillögu sem er svohljóðandi: Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta nú þegar kanna möguleika á sölu hertrar síldarfeiti á erlendum mörkuðum og gera að öðru leyti ræltilegar rannsóknir á því, hvort nú sé orðið tímabært að byggja á Siglufirði verksmiðju til herzlu síldarlýsis, sainkv, ákvæðum laga nr. 93. frá 1942. Sýni rannsóknirnar hagstæða út- komu, skal þegar hefja byggingu verksmiðjunnar. BYGGJA ÞARF FLEBRI NÝJA MENNTASKÓLA Reykjavík, 12. nóv. EG. Rikisstjórnin hefur ákveðið, að byggður skuli nýr menntaskóli í Reykjavík og verður hafizt handa um frámkvæmdir næsta vor.„ Ég er ennfremur eindregið þeirrar skoðunar, að byggja þurfi fleiri menntaskóla á landinu og að sjálfsagt sé aff byggja mennta- skóla bæði á Vestfjöröum og Austfjörðum“, sagffi Gylfi Þ. Gísla son, menntamálaráðherra í um- ræðum um stofnun menntaskóla á Vestfjörðum, sem fram fóru í neðrideild Alþingis í dag. Umræðurnar hófust með því að Hannibal Valdimarsson (K) mælti fyrir frumvarpi til laga um stofnun menntaskóla á Vestfjörð um, sem hann flytur ásamt öðrum þingmönnum kjördæmisins. Hanni bal kvað ekki mikla þörf að gera nákvæm- lega grein fyrir efni frumvarps- ins, því að það hefði þegar ver- ið gert átta sinn- um á Alþingi. Hann rakti stofnun menntaskólanna á Laugarvatni og Akureyri, og lagði ríka áherzlu á nauðsyn þess, >að stofnaður yrði menntaskóli á Vestfjörðum hið fyrsta. Hé.r í Reykjavik væru nú þegar þrír menntaskólar, sagði hann, og mætti það ekki ske, að þeim fjórða væri bætt við áður en Vestfirðingar og Austfirðingar fengju eigin menntaskóla. Hanni- bal kvaðst að lokum treysta því að þetta frumvarp yrði nú látið ganga rétta boðleið en ekkj látið daga uppi í nefnd. Sigurður Bjarnason (S) lagði áherzlu á að gera yrði allt sem unnt væri til að jafna aðstöðu landsmanna í þessum efnum en eins og sakir stæðu væri aðstaðan alls’ekki jöfn. Sigurður sagði, að menn væru nú almennt orðnir sammála um ágæti þess fyrir- komulags að dreyfa æðri mennta stofnunum um landið í stað þess að staðsetja þær allar í Reykja vík. Matthías Bjarnason (S) reifaði sögu og þróun menntaskólanna hér á landi, og ga't þess að um þessar mundir stæði yfir í öll- um hreppum vestfjarða undir- skriftasöfnun undir áskorun til Alþingis um að verða við þeirri réttmætu kröfu Véstfirðinga að þar í fjórðungnum verði komið á fót menntaskóla. Sig]urvin Einarsson (F) sagði að allir virtust nú geta verið sam- ■mála um mikilvægi menntunar, en spurði jafnframt hvort allir gætu þá ekki verið sammála um að allir hafi jafna aðstöðu til að njóta menntunar. Það eru nú 18 ár síðan þessu máli var fyrst hreyft á þingi, sagði Sigurvin, og nú vil ég spyrja hæstvirtan menntamálaráðherra, hver sé af- staða hans til þessa máls og hvort hann vilji styðja þetta frumvarp? Einar Ágústsson (F) sagði, að sjálfsagt væri að dreyfa og fjölga menntaskólunum og kvaðst hann vera því hlynntur, að stofnaðir yrðu menntaskólar bæði fyrir austan og vestan, en þrátt fyrir það dygðí ekki að loka augunum fyrir því að knýjandi þörf væri á nýjum mennlaskóla í Reykjavík, þar sem núverandi skóli væri orð inn allt of 1-ítill. Hannibal Valdi marsson ætti ekki að vera með dylgjur og brigzl, í garð þeirra sem það vildu, því hinir sömu vildu einnig að stofnaðir yrðu nýir menntaskólar úti á landi. Gylfi Þ. Gíslason, menntamála ráðherra (A), sagði að ríkisstjórn in hefði þegar ákveðið að byggja nýjan mennlaskóla í Reykjavík og mundi það verk hefjast næsta vor. Ráðheirrann kvaðst eindregið vera þeirrar skoðunar, -að byggja þyrfti fleiri menntaskóla og það sem fyrst. Þær framkvæmdir sem næst blöstu við í þessum efnum 1 sagði hann atS ! væru, að stækka | heimavist mennta skólans á Laug arvatni, þannig að fullnýta mætti þá kennslu krafta, sem þar væru, og auk [ þess væri bæði eðlilegt og sjálf sagt að byggja menntaskóla fyrir austan og vestán, Gylfi benti á að löggjöfin um menntaskólaná væri í ítarlegri endurskoðun eink um JbVafð varðar nárr»efni, -ei» við þá endurskoðun mundi einn ig sjálfsagt að taka tillit til fram tíðarstaðsetningr menntaskóla úti á landi. Þá væri og um þessar mundir unnið að framkvæmda- áætlun um skólabyggingar hér á landi næstu árin, og hlyti einnig að verða rætt um byggingar nýrra menntaskóla í sambandi við þá áætlun. Auk fyrrgreindra töluðu Óskar Jónsson (F) sem atyrti Hannibai fyrir að taka of stórt upp í sig, og að lokum talaði Hannibal aft ur og kvaðst hvorki hafa veirið með dylgjur eða brigzl, en kvaðst heldur ekki hafa talað neina tæpi tungu. Málið var síðan afgireitt til annarar umræðu og mennta málanefndar. Lesið Alþýdublaðið Varðberg Frh. af 16. síðu. í nefnd, sem starfaði á vegum Sam einuðu þjóðanna að því að kanna möguleikana á sameiningu Þýzka lands. Mun Kristján rifja upp ým- islegt það, sem gerzt hefur á .sviði alþjóðastjórnmála og menn- ingarmála á þeim langa ferli, sem hann hefur fylgst með gangi þeirra , mála. Auk félagsmanna í „Varðbergi" gefst meðlimum í „Samtökum um vestræna samvinnu" kostur á að taka þátt í fundinum. Þetta er annar hádegisfundur- •inn, sem „Varðberg" í Reykjavík éfnir til á þessum vetri, en slíkir fundir eru fastur liður í starfsemi félagsins. innincfarAjyolcl SJ.RS. ÞETTA, STÍLFAGRA OG VANDAÐA EINS MANNS RÚM ER í SENN VEG- LEG OG VARANLEG JÓLAGJÖF, GLÆSILEGT URVAL HÚSGAGNA AF ÖLLUM STÆRÐUM OG GERÐUM MUNIÐ HENTUG HUS GÖGN Á HAGSTÆÐU VERÐI. HUSGÖGN Ath. Opið til klukkan 10 í kvöld Híbýlaprýði h.f. - Sími 38177 •> Hallarmúla 4 13. nóv. 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.