Alþýðublaðið - 04.12.1964, Qupperneq 3
LBJ HELDUR FAST
í MLF-ÁÆTLUNINA
Washington, 3. des. (ntb-reut.)
Johnson forseti staSfesti í dag,
að Bandaríkin héldu fast við til-
lögu sína um stofnun sameigin-
legs kjarnorkuherafla NATO. En
'hann hélt jafnframt dyrunum opn
'um fyrir gagntillögum þeim, sem
hann býst við frá brezka forsæt-
isráöherranum, Harold Wilson,
þegar hann kemur til Washing-
ton, að Bandaríkin hefðu komið
fram með hugmyndina um kjarn-
'orkuflota búinn Polaris-eldflaug-
um til að efla NATO og koma til
móts við réttmætar óskir evróp-
skra bandamanna um að hafa áhrfi
á kjarnorkuvamir.
Diplómatar telja, að greinilega
komi fram í áskorun Johnsons um
að hugmyndir og tillögur ann-
arra verði virtar, að tUlögur tVil-
sons forsætisráðherra verði ræki-
lega kannaðar þegar hann ber
þær fram í Hvíta húsinu á mánu-
daginn.
Johnson virtist annars vilja
eyða ótta þeim, sem skapast hef-
ur í nokkrum NATO-löndum, að
stofnun hins sameiginlega kjarn-
orkuherafla (MLF) leiði til þess
að Vestur-Þjóðverjar fái áhrif á
notkun kjarnorkuvopna og grafið
verði undan öryggi því sem felst
í því að Bandaríkin hafa algera
yfirstjóm yfir beitingu kjarnorku
vopna með neitunarvaldi sínu.
Annað sem athygli vekur er,
að Johnson lagði óvenju mikla
áherzlu á, að Vestur-Þjóðverjar
hefðu lagt ævintýramennsku á hill
una, einkum að því-er varðar kjara
orkuvopn. Hann lagði einnig á-
hentlu á, að Vestur-Þjóðverjar
hefðu verið trúið hugsjóninni um
! einingu Evrópu og Atlantshafs-
ríkja. Þess vegna ættu þeir skil-
ið, að vestrænir bandamenn á-
, byrgðust að þeir féllust ekki á
I lausn er viðurkenndi skiptingu
I Þýzkalands. Kjarni ræðunnar var
*MWWWWWWWttWMWWWWtWWWMWWMW
Qdnæg/q með tör
Chous til Moskvu
Moskva, 3. des. (NTB-R).
Deila Rússa og Kínverja kom
aftur fram í dagsljósið í dag þegav
Antonin Novotny, forseti Tékkó-
slóvakíu, sagði í ræðu á rússnesk-
tékkneskum vináttufundi í Kreml,
að verk væru ekki nóg, jafnvel
*
MMMMttHMtMMMMHMMW
Vírus gegn
hvítblæði
New York, 3. des. (ntb-r).
Læknisfræðistofnunin
Waldemar Researclis Founda
tion í Woodbury, Long Is-
lands, skýrði frá því í dag,
að vísindamenn hefðu cin-
angrað vírus, sem virtist berj
ast gegn hvítblæði (blóð-
krabba) í músum. Vírusinn
virðist geta eytt hvítu blóð-
kornunum, sein eru einkcnni
þessa banvæna sjúkdóms,
segir stofnunin,
Mús, sem er Iátin sýkjast
af hvítblæði deyr venjulega
að tólf dögum liðnum. En
dýr, sem hafa fengið spraut-
ur með þessuin nýja vírus,
hafa lifað í 150 daga og sýna
enn engin blóðkrabbaein-
kenni. Vírusinn er kallaður
eftir vísindalegum forstöðu-
manni og forvígismanni stofn
unarinnar, dr. Norman Molo-
mut og samstarfsmanni lians
dr. Morton Padnos. Hann
kallast því Molomut-Padnos-
vírusinn.
WMMHMMHHHMMHMHM
þótt þau væru sögð jákvæð, ef ó-
réttmætar árásir sigldu í kjölfarið.
Novotny nefndi ekki Kínverja,
en átti ugglaust við heimsókn Chou
En-lai forsætisráðherra til Mosk-
va í síðasta mánuði. Tveimur vik-
um eftir heimsóknina birti fræði-
rit kínverskra kommúnista, „Rauði
fáninn,” liatramma árás á Krúst-
jov fyrrum forsætisráðherra. —
Tímaritið fordæmdi nokkur sjónar
mið, sem eftirmenn Krústjovs hafa
síðan stutt.
Ummæli Novotny er fyrsti dóm-
urinn, sem fram hefur komið af
liálfu sovótblakkarinnar á Moskva
hcimsókn Chou En-lais. Kommún-
istískar heimildir herma, að Chou
og Bresjnev, aðalritari sovézkra
kommúnistaflokksins, hafi ekkert
verulega orðið ágengt í tilraunum
sínum til að jafna ágreining Rússa
og Kínverja þótt gagnkvæmum,
opinberum árásum væri hætt eftir
fali Krústjovs.
Erlendir sérfræðingar segja, að
Novotny hefði varla komið fram
með ummæli sín, ef sjónarmið
hans væru ekki í samræmi við sam
eiginlega afstöðu Rússa og Tékka.
Novotny, sem er í opinberri
heimsókn í Moskva, studdi ein-
dregið tillöguna um heimsráð-
stefnu kommúnista. Á slíkum
fitndi yrði að ræða breytingar sem
orðið hefðu síðan síðasta alþjóða-
ráðstefna kommúnista var haldin
árið 1960.
Leonid Bresjnev, aðalritari, var
á fundinum og sagði að Rússar
mundu gera allt sem í þeirra valdi
stæði til að jafna ágreining kom-
múnista, en liann minntist ekki á
Kínverja.
áætlun í f jórum liðuin, sem John-
son hefur lagt fram til að efla
samheldnina í NATO.
Áætlun sú í fjórum liðum, sem
Johnson hefur lagt fram, er á
þessa lund:
1. Aðildarríki NATO verða að |
leggja sitt af mörkum svo að ev-
rópsk eining geti eflzt sem grund-
’völlur máttar vestrænna ríkja og
virki gegn nýrri og eyðandi þjóð-
ernisstefnu.
2. Aðiidarríki NATO verða að
reyna að tengjast nýjum böndum
óg vinna að eflingu samskipta Ev-
rópu og Norður-Ameríku.
3. Aðildarríki NATO verða að
gæta þess, að ætíð verði komið
fram við Vestur-Þjóðvcrja sem
heiðarlegan bandamann í öllum
málum, sem snerta vestræn ríki.
V-Þjóðverjar hafa unnið að því
að byggja upp traust og frjálst
samfélag, ávallt trúir einingu Evr-
ópu og Atlantshafsríkja. Vestur-
þýzka þjóðin og leiðtogar hennar
hafa skuldbimdið sig til að lifa
í sátt og samlyndi með grann-
þjóðum sínum, einkum Frökkum.
Ævintýrastefnu hefur verið hafn-
að, einkum i kjarnorkumálum og
það er viturlegt. Vinir okkar í
öllu Þýzkalandi eiga skilið, að
allir bandamenn þess ábyrgist, að
ekki verði fallizt á þá sífelldu
ógnun við friðinn, sem viður-
kenning á nauðungarskiptingu
ÞýZkalands væri.
Enginn reynir að binda enda
á þetta óhugnanlega og hættulega
ranglæti með valdi. En enginn
haldgóður friður getur ríkt í Ev-
rópu þegar hluta Þýzkalands er
neitað um þann grundvallarrétt
að ákveða eigin framtíð — og
Framhald á 13. síðu.
Bandaranaike
felld í gær
Colombo, 3. des. (ntb-r).
Samsteypustjórn frú Siri-
mavo Bandarnaike á Ceylon
var felld í atkvæðagreiðslu
um tillögu um vantraust á
stjórnina í kvöld.
Ástæða vantrauststillög-
unnar var krafa stjórnarand
stöðunnar um breytingu á
hásætisræðunni. Fall stjórn-
arinnar kemur í lok margra
mánaða árása búddhatrúar-
manna og stjórnarandstæð-
inga á stjórnina. Stjórnarand
staðan hefur mótmælt því
sem hún kallar einræðis-
hneigð stjórnarinnar.
Frú Bandamaike var eina
kona jarðarinnar sem skipaði
embætti forsætisráðherra.
Frú Bandaraaike.
IMMiMMMHHMHHMMMWHMMMMMMMHtMMMMMMMM
Adenauer vill a5 áhrif
USA innan NATO aukist
BONN, 3. des. (ntb-reuter).
Konrad Adenauer fyrrum kanzl-
ari hvatti til þess í dag, að Banda-
ríkjamaður yrði skipaður aðalrit-
ari NATO. Skyldi þetta verða lið-
ur í umbótum á bandalaginu.
Adenauer, sem svaraði spurn-
ingum blaðamanna í hádegisverð-
arboði fyrir erlenda blaðamenn í
Bonn, kvaðst hafa skýrt Kennedy
forseta frá þessum skoðunum á
fyrsta fundi þeirra 1961.
Stjórnmálasérfræðingar furðuðu
sig á tillögu Adenauers, sem fær
varla góðan hljómgrunn í Frakk-
landi þar sem de Gaulle vill
styrkja liin evrópsku öfl banda-
lagsins.
_Adenauer, sem var að því spurð-
ur hvort hann teldi að efla beri
NATO, sagði, að hleypa yrði nýju
blóði í bandalagið. Hann hefði
sagt Kennedy forseta, að Banda-
ríkin, sem væru öflugasta ríki hins
frjálsa heims, ætti ekki aðeins að
gera kröfu til aukinna áhrifa í
hermálum NATO heldur einnig
að hafa Bandaríkjamenn í emb-
ætti aðalritara NATO, svo að vit-
að væri um pólitískar óskir Banda
ríkjanna.
Kennedy svaraði því til, að slík
skipan mála mundi vekja óánægju
minni NATO-ríkja.
Stjórnmálasérfræðingar telja,
að athugasemdir Adenauera sýni
að sterk öfl í Kristilega demókrata
flokknum vilji frest í umræðunum
um kjarnorkuflotann.
, í Bonn er talið, að skaðlegt væri
fyrir Vestur-Þýzkaland að Xáta
Framhald á 4. síðu
PERÓN í SEVILLA
EFTIR FÝLUFERÐ
SEVILLA, Spáni, 3. des.
JUAN PERON, fyrrum for-
seti Argentínu er kominn aftur
til Spánar og dvelst í kvöld á
hóteli í Sevilla. Orðrómur er
á kreiki um, að spánska stjórn
in muni neita lionum um land-
vistarleyfi. Óeinkennisklæddir
lögreglumenn halda strangan
vörð um hótelið.
Perón var skipað að fara frá
Brazilíu eftir árangurslausa til-
raun til að snúa aftur til Ar-
gentínu, þar sem hann var for-
seti frá 1945-1955. Góðar heim-
ildir herma, að spönsk yfirvöld
íhugi hvað gera eigi við Per-
on, en hann hefur verið í út-
iegð á Spáni í nokkur ár.
Spánska stjórnin mun hafa
gert Peron grein fyrir því áður
en hann hélt til Spánar, að hún
væri reiðubúin að endurskoða
landvistarleyfi hans á Spáni,
ef tilraun hans til að snúa aftur
til Argentínu mistækist.
Yfirvöld í Brazilíu lýstu því
yfir, að Perón væri persóna
non grata. Formælandi utanrík
isráðuneytisins sagði, að ferða
lag Perons gæti valdið vin-
veittu ríki erfiðleikum. Hin
unga eiginkona Perons, Isa-
bel, dvelst í húsi því, sem hann
liefur reist í útjaðri Madrid.
Spánska stjórnin virðist gera
allt sem í hennar valdi stend-
ur til að firra deilum við Ar-
gentínu um Peron.
Það kom mjög á óvart, að
Peron snéri aftur til Spánar
tæpum 36 kist. eftir að hann
fór þaðan. Flugvél hans átti að
lenda í Madrid, en varð að
lenda í Sevilla vegna bilunar.
Blaðamenn fengu ekki.að hafa
tai af honum við komuna.
Peron fór strax til hótels-
ins og sá hluti hótelsins, þar
sem Peron snæðir, er lokaður.
Lögreglumenn eru á verði fyrir
utan hótelið og á annarri hæð
þess, þar sem herbergi hans
er. Peron dvaldist á þessu
hóteli skömmu eftir að hann
kom til Spánar 1960.
Fréttaritari Reuters í Buen-
os Aires segir, að Alianza Pe-
ronista, sem er vinstri sinnuð
hreyfing innan flokks perón-
ista, liafi lýst yfir því í dag,
að tilraun Perons til að snúa
aftur væri nýfasistískt ævin-
týri. Einn leiðtogi hreyfing-
arinnar, Guillermo Patrice
Kelly, sem áður var handgeng-
inn Peron, sakaði fyrrverandi
verkalýðsleiðtoga peronista,
Auguste Vander og fylgismenn
hans um að nota Peron til að
undirbúa jarðveginn fyrir bylt-
ingu.
IMMMMMMMMMMMlMMMMMMMMMMMWMMMMMMMtMMMVMMHMMMMHMMMMW
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 4. des. 1964 3