Alþýðublaðið - 04.12.1964, Page 13
NEðurstööiitöliír
Framh. af 1. síðu.
Vatnsveita Reykjavíkur 28,3 millj-
'ónir, Hitaveita Reykjavíkur 77,4
milljónir, Rafmagnsvei-ta Reykja-
víkur 175,3 milljónir, Húsatrygg-
ingar Reykjavíkur 14,6 milljónir,
Bæjarþvottahús Reykjavíkur 2
milljónir, Korpúlfsstaðabúið 2,1
milljón, Strætisvagnar Reykjavík
ur 49^7 milljónir og Reykjavíkur
höfn 34,9 milijónir króna.
Til almannatryggingar, sem
heyra undir félagsmál, eru áætl-
aðar 78,5 milljónir. Til íramfærslu
mála eru áætlaðar 42,2 milljónir.
Nokkrar umræður urðu um
frumvarpið. Óskar Hallgrímsson
borgarfulltrúi Alþýðuflokksins
gagnrýndi harðlega útsvarshækk-
unina, Sagði hann, að svo langt
hefði verið gengið á síðasta ári,
að ekki mætti lengur halda áfram
á sömu braut. Gat hann þess, að
síðan 1959 hefðu lausatekjur
verkamanna vaxið um 85%. Á
þessu tímabili hefði sá hlutur,
sem borgarsjóður hefði tekið til
sín, vaxið um 105.2%. Taldi Óskar
þessa þróun mjög ískyggilega. —■
Varpaði Óskar fram þeirri spurn-
ingu, hvort ekki væri eðlilegra að
flytja aukihn hluta af þeim tekj-
um, sem borgin þyrfti að afla, frá
launaskatti yfir á fasteignaskatt,
þar sem kunnugt væri, að margir
aðilar, sem greiddu lítil eða eng-
in útsvör, ættu miklar eignir. í
þessu sambandi benti Óskar á, að
ekki væri raunhæft að gera áætl-
un um mikla aukningu fram-
kvæmda, eins^og gert væri í frum
varpinu, einfaldlega vegna þess,
að ástanöið á vinnumarkaðnum
væri þannig, að ekkert gæti bent
til þess, að neitt vinnuafl yrði af-
lögu til að vinna að þessum fram-
kvæmdum. Sagði Óskar einnig, að
undir þeim kringumstæðum, sem
nú eru, væri eðlilegra, að borgin
liefði nokkuð hóf á framkyæmd-
um sínum, í stað þess að standa
í harðri samkeppni um hið tak-
markaða vinnuafl, sem fyrir hendi
væri.
Vegna þess, sem kom fram í
ræðu borgarstjóra, tók Óskar fram
að hann teldi það fráleitt, áð gera
ráð fyrir því, að fjárhagsáætlun,
sem væri til meðferðar og sam-
þykkt nú, yrði tekin upp á næsta
ári, og varaði sérstaklega við því,
að réttlátum og nauðsynlegum
kauphækkunum til verkafólks yrði
Fjórði hvermiði vinnur að meðaltali!
Hæstu vinningar 1/2 milljón krónur.
Lægstu 1000 krónur.
Dregið 5. hvers mánaðar.
enn einu sinni mætt með hækkun
opinberra gjalda. Sagði Óskar í
þessu sambandi, að það ætti að
vera öllum ljóst, að ekki yrði hjá
því komizt, að auka rauntekjur
verkafólks frá því, sem nú væri,
og það væri hlutur, sem borgar-
yfirvöld og aðrir þyrftu að horfast
í augu við. Aukning kaupmáttar
launa væri óframkvæmanleg, ef
yfirvöld svöruðu hverri kauphækk
un til verkafólks, hversu lítil sem
hún væri, með hækkun opinberra
gjalda. Þessi ieikur hefði of lengi
verið leikinn, og það væri öllum
fyrir beztu, að menn gerðu sér
grein fyrir, að honum yrði að ;
linna. Að lokum áskyldi Óskar sér |
rétt til að bera fram breytingar-
tillögur við fjárliagsáætlunni fyr-
ir síðari umræðu.
Páfi vígir sex
biskupa í Bombay
Bombay, 3. des. (NTB-R).
Páll páfi vígði í dag sex nýja
biskupa úr ölium heimsálfum við
hátíðlega athöfn á hinni miklu ráð-
stefnu kaþólskra manna í Bom-
bay.
Páfinn sendi einnig ásjcorun til
indversku þjóðarinnar um að snúa
bökum saman í baráttunni gegn
fátækt, hungri og sjúkdómum. —
Hann afhenti Radhakrishnan for-
seta 2 milljón króna ávísun, sem
nota á til að lijálpa munaðarlaus-
um indverskum börnum.
Páfanum var innilega fagnað af
miklum mannfjölda, þegar liann
kom til vígsluathafnarinnar.
Fréttir frá Lissabon herma, að
portúgölsk blöð fylgist nákvæm-
lega með ferð páfa. Portúgalar
hafa gagnrýnt heimsóknina, —
enda lögðu Indverjar portúgölsku
nýlenduna Goa undir sig 1961.
TRÉSMIÐAFÉLAG
REYKJAVÍKUR 65
ÁRA10. DES.
Reykjavík, 3. des. — ÁG.
Trésmiðafélag Reykjavíkur verð
ur 65 ára þaun 10. desember nk.
Þá kemur út saga félagsins „Tré-
smiðafélag Reykjavíkur 1899-
1964.” Laugardaginn 12. desem-
bér heldur félagið sérstakan há-
tíðarfund í Gamla Bíói af tilefni!
afmælisins.
JOHNSON
Framhald af 3. síðu
réttinn til að velja — án hótana
úr nokkurri átt — sameiningu
við Þjóðverja í vesturhluta lands-
ins.
Gera verður nýtt sameiginlegt
átak með tilhlýðilegri virðingu
fyrir hagsmunum annarra jafn-
framt því sem dyrunum er haldiö
opnum fyrir öðrum, sem vilja taka
þátt síðar. Johnson lagði til, að
Evrópa og N.-Ameríka skiptust á
öllum skoðunum, ella gæti niður-
staðan orðið niðurrif og upplausn.
Hann sagði, að Evrópa, sem ris-
ið hefði úr rústum styrjaldarinn-
ar og byggi nú við velmegun, —
mætti ekki láta velgengni villa
sér sýn, þegar brýn þörf væri á
að hefjast handa. Johnson taldi
að gott yrði að ráðherrar NATO-
landa eða staðgenglar þeirra héldu
oftar með sér fundi, þar eð vest-
rænir bandamenn þyrftu að ráð-
færast.
SENDISVEINN
óskast. — Viiuiutími fyrir hádegi.
AlþýðublaSið Sími 14 900.
vantar unglinga til að bera blaðið til áskrif-
enda í þessum hverfum:
Hverfisgötu
Bergþórugötu
Högunum
Afgreiðsla Aiþýðublaðslns
Sfml 14 900.
Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma
Jenny Dagbjört Jensdóttir
Þorvaldseyri, Eyrarbakka
lézt í sjúkrahúsinu á Selfossi 2. desember.
Ólafur Bjarnason, börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
IBN SAUD
ÆYI5A6A
eyðimerkurkonungsins
er kærkomin jóiagjöf
Árið 1901 hélt Ibn Saud við
fertugasta mann frá Kuwait til
þess að heimta aftur konung-
dæmi föður síns. llann var þá
tuttugu og eins árs og félaus.
Þegar hann dó fimmtíu árunt
síðar réð hann óumdeilanlega
yfir nærri allri Arabíu og var
sennilega annar ríkasti maður
í heimi.
Markmið hins ævintýralega lífs
hans var tvíþætt: að sameina
Arabíu og lireinsa trúna; f
nafni trúarinnar færði hann út
vfildi sitt frá hafi til hafs og
hertók hina helgu borg Mekka.
Hann var hraustur hermaður,
vígfimur í návígi með sverð og
byssu og meistari í hinni æva-
fornu hernaðarlist eyðimerkur
búanna; en mildi hans og per-
sónntöfrar færðu honum einnig
sigur yfir þrjózkufullum sheik-
um. Oft vann liann uppreisnar-
menn á sitt band með því að
setja þá aftur í stöður sínar og
kvænast systrum þeirra og
dætrum (sagt er að- hann hafi
kvænzt 300 sinnum). Með þvi
að beita þolinmæði og arabískrí
stjórnkænsku hafði hann í fullu
tré við erlend ríki: Tyrkland,
sem sendi her gegn honum til
þess eins að deyja í eyðimörk-
inni, og Bretland með hóp sér-
vitra en hugdjarfra sendi-
manna á borð við Wiljiam
Shakespeare, Pliilby og Law-
rence. En fyrir kaldhæðni ör-
laganna voru það Bandaríkin,
sem um síðir náðu tangarhaldl
á hinum auðugu olíulindum i
eyðimörkinni og færðu Ibn
Saud óhemju auð upp í 'hend-
urnar, auð sem magnaði spill-
ingu í riki hans og lagði að lok-
um lífshugsjón hans í rúst.
Eyðimerkurkóngurinn dregur
ekki einungis upp skýra mynd
af nafnkunnum stríðsmanni og
þjóðlífi sem hvergi á sér hlið-
stæðu á tuttugustu öldinni, hún
er jafnframt viðburðarík og hug
tæk saga, sem kemur lesandan
um hvað eftir annað til að minn
ast hins forna arabíska ævin-
týralieims í Þúsund og einnl
nótt.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 4. des. 1964 13