Alþýðublaðið - 04.12.1964, Page 16
KENNSLUKVIKMYND UM
NOTKUN BJORGUNARBATA
Keykjavík, 3. des. — OO.
SKIPASKOÐUN ríkisins hefur
látið gera kennslukvikmynd um
notkun gúmbjörgunarbáta. Kvik-
inyndaféiagið Geysis-myndir lief-
ur séð um töku og gerð myndar-
innar, sem reiknað er með að
, verði tilbúin til sýninga fyrir
vetrarvertíð. Myndin er tekin á
breiðfilmu og áætlaður sýningar-
tími er 10-12 mínútur.
Myndin veröur sýnd -í kvik-
myndahúsum í flestum ver-
stöðvum landsins á undan venju-
Iegum kvikmyndasýningum. Fá
kvikmyndahúsin þessa mynd end-
urgjaldslaust og er ætlunin að
hún verði sýnd oft og lengi í sem
flestum þeirra.
í myndinni eru sýnd öll helztu
atriði við notkun gúmbjörgunar-
báta og er ætlast til að sjómenn
geri sér Ijós öll handtök við sjó-
setningu þeirra, en komið hefur
fyrir að dýrmætur tími hefur far-
ið til spillis, þegar mest reið á
að gera bátana sjóklára.
Afmælisterta Churchills
Alþýðublaðið kost*
ar aðsins kr. 80.00 á
mánuði. Gerizt á
skrifendur.
'W\
Föstudagur 4. desember 1964
Þegar Winston Churchill varð níræður síðastliðinn mánudag bárust honum heillaóskabréf og skeyti svo
tugurn þúsunda skipti. Hér á myndinni sjáum við afmæliskökuna hans, sem sannarlega er engin smá-
smíði. Kakan var 60 kíló að þyngd og skyldi hún snædd að kveldi afmælisdagsins, en þá heimsóttu
Chmrchill 16 nánir ættingjar og vinir, hafa því komið tæplega fjögur kíló á mann, svo enginn hefur
þurft þaðan svangur að fara.
ENN EKKERT VERKEFHI
EYRIR HAMRAFELLID
LANDSVEITA TIMA
BÆR EFTIR10 ÁR
— Næstu 30 ár þarf raforkuvinnstan að sexfaidasf miðað við í dag,
segir raíorkumálastjóri
Reykjavík, 3. des. — GO.
í GREIN í nýútkomnu hefti af
iímaritinu Iðnaðarmál, segir Jak-
ob Gíslason, raforkumálastjóri, að
árið 1994, eða eftir 30 ár, þurfi
raforkuvinnsla á íslandi að vera
komin upp í 4000 milljónir kw.
eða jafnvel 5000 milljónir kw;, en
|>að er sexföld vinnsla miðað við
í dag og það þótt engin stóriðja
komi til. Þó er sennilegra að raf-
orkuvinnslan áttfaldist eða verði
jafnvel enn meiri.
Ennfremur segir raforkumála-
etjóri í grein sinni, að landsveita
um Suðvestur, Norður og Austur-
land verði tímabær innan 10 ára.
U.e.a.s. öll rök virðast hníga að
því, að tengja beri rafveitur Suð-
vesturlands, Snæfellsness, vestan-
verðs Norðurlands og Austurlands
í eina iandsveitu innan fyrr-
greinds tímabils.
Síðan árið 1937 liafa verið gerð-
ar 11 samvirkjanir á landinu, en
síðar hafa orkuveitusvæði Sogs-
virkjunar og Andakílsárvirkjunar'
verið tengd við Akraneslínuna svo
nefndu og Gönguskarðsárvirkjun
og Laxárvatnsvirkjun verið tengd
ar við háspennulínu yfir Kolunga
fjall. Því eru nú 8 aðskilin sam-
veitusvæði á landinu:
1. Suðvesturland frá Vik og Vest-
mannaeyjum til Borgarness.
2. Utanvert Snæfellsnes.
Vestfirðir.
Steingrímsfjarðar — Reykhóla-
svæðið.
Vestanvert Norðurland frá
Hrútafirði til Hofsóss.
Skeiðfosssvæðið með Siglufirði
Ólafsfirði; og sveitum.
Laxárvirkjunarsvæðið frá Dal-
vík til Húsavíkur og Mývatns-
sveitar.
Austfirðir frá Seyðisíirði um
Egilsstaði til Fáskrúðsfjarðar.
1904 1934
1994
Kaupmanniiiiöfn, 3. des. (ntb-r).
Frá og með 1. janúar hækka
bílar, sígarettur og áfengi í verði
í Danmörku.
Þingmenn, sem hafa fjallað um
frumvarp Poul Hansens fjármála-
ráðherra um 424 millj. kr. (dansk-
ar) tollahækkanir komust í dag
að samkomulagi um hækkanirnar.
Samkomulagið er í liöfuðatriðum
í samræmi við frumvarp ráðherr-
ans en samkvæmt því nema hækk-
anirnar aðeins 275 milljónum kr„
aðallega þar eð ágreiningur ríkti
um 10 aura hækkun á benzín-
lítranum.
Reykjavík, 3. des, — GO.
SAMKVÆMT upplýsingum
Hjartar Hjartar, forstjóra skipa-
deildar SÍS, hefur enn ekkert verk
éfni fengizt fyrir olíuflutninga-
skipið Hamrafell, þrátt fyrir lát-
lausar tilraunir síðan 14. nóvem-
ber síðastliðinn.
Erfitt mun að selja skipið, —
vegna þess að það er orðið 12
ára gamalt og á eftir að fara í
flokkunarviðgerð, sem er dýrt
fyrirtækl.
Hamrafellið kom til Reykjavík-
ur í nótt og samkvæmt upplýsing-
um, sem blaðið aflaði sér. á það
að fara til Uruba í næsta túr.
En hvort það verður síðasta ferð
skipsins, eða ekki, veit enginn.
Reykjavík, 3. des. >— ÓTJ.
Á T T A ára drengur, Hafsteinn
Gunnarsson, til lieimilis að Blika-
lóni við Hafnarfjörð, slasaðist
nokkuð, er hanu varð fyrir bifreið
um 3-leytið í dag. Var Hafsteinn
á reiðhjóli, er slysið varð. Hann
var fyrst fluttur til læknis, en
síðar á Slysavarðstofuna, þar sem
hann er enn. Ókunnugt er um
meiðsli hans.
iMWMMMMtWIMMMMMHM
Reykjavík, 3. des. — ÓTJ.
ELDUR kom upp í vélbátnum
Emma RE-37, þar sem hann lá við
nýju bryggjuna í Hafnarfirði. Um
kl. hálf tólf hringdi drukkinn mað
ur í lögregluna og tilkynnti um
brunann. Síðarkom í ljós, að hann
hafði setið aö sumbli í bátnum á-
samt öðrum félaga sínum. Var fé-
laginn tekinn, en hinn hafði horf-
ið eftir að hafa gert lögreglunni
viðvart. — Auk þess varð svo lög-
reglan að taka úr umfcrð nokkra;
menn fyrir drykkjulæti og óspekt- ;
ir. Var þetta því all annasamt >
kvöld fyrir hana.
Jóla-
bazar
JÖLABAZAR Kvenfélags Al-
þýðuflokksins verður sunnu-
daginn 6. desember í Iðnó,
uppi. Húsið verður opnað kl.
2. Á þessum jólabazar verður
mikill fjöldi muna á börn, ungl
inga og fullorðna, scm heppi-
legir eru til jólagjafa.
MtMWUIHMMIMMMMIWMI
Spilakvöld Alþýðuflokksfélags Kópavogs.
SPILAKVÖLD heldur Alþýðuflokksfélag Kópavogs í félagsheimilinu Auflbrekku
50 klukkan 8,30 í kvöld. SpiluS verSur félagsvist, Björn Pálsson, sjúkra-
flugmaSur, sýnir litmyndir frá Surtsey og Vestmannaeyjum og að lokum
verður kaffidrykkja. Öllum er heimill aðgangur.