Alþýðublaðið - 24.12.1964, Síða 13
ŒoUt
OPIÐ
annan Jéladag,
Gamlárskvöld og Nýársdag.
Pantaðir aðgöngumiðar fyrir Gamlaárskvöld
og Nýársdag óskast sóttir sem fyrst.
Gleöileg jól!
INGOLFS - CAFE
6ÖMLU DANSARNIR
Tveir helztu leiðtograr búddatrúarmanna ern Thich (þ. e. séra) Tinh Khiet og Thich Tam Chau. Þeir
gerðu nýlcga 48 stunda hungurverkfall (nokkrum dögum áður en herforingjar viku Huong forsætisráð-
herra úr embætti) ásamt þriðja búddaleiðtoganum, Thich Tri Quang.
sunnudagskvöld 27. des. kl. 9.
Hljómsveit Garðars leikur.
Söngvari: Bjöm Þorgeirsson.
Aðgöngumiðasala frá kl. 8.
IÐNÓ
DANSLEIKUR
II. jðladag kl. 9.
Hin vinsæla SÓLÓ sjá um fjörið.
Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Sími 13191.
IÐNÓ
ARAMÓTAFAGNAÐUR
á Gamlárskvöld kl. 9.
SÓLÓ sjá um fjörið.
Aðgöngumiðasala frá II. degi jóla.
vanta* tmgiinga til að ber» blaðið til áskrif
nH ‘^ssum hverfum:
Framnesveg
Bergþórugötu
Högunum
Barónsstíg
' ♦”reiösla Alþýðuhiaðslns
?íml 14 900.
Boðskapur Búdda kvaddur
BÚDDAMUNKAR í Suður-Víet-
nam, sem eru að verða eitt mikil-
vægasta aflið í stjórnmálum lands
ins hafa tilkynnt Lyndon B. John-
son, forseta Bandaríkjanna, með
kuldalegri kurteisi og dulbúnum
hótunum, að þeir muni ekki styðja
þróun mála, sem þjóðin í Suður-
Víetnam sættir sig ekki við fyrir-
fram.
Bréfið er síðasti liðurinn í at-
burðakeðju, sem markar lleið
búddatrúarmanna til pólitískra
valda í Austurlöndum fjær.
Sjálísmorð á báli
Þessi þróun mála er þeim mun
hyglisverðari vegna þess, að búdda
trúin boðar meinlætalifnað og af-
neitun þes&a heims gæða. Munk-
arnir hafa sagt skilið við 2508 ára
gamlan boðskap Búdda og fleygt
sér út í hringiðu stjórnmálanna
með undraverðum ákafa og dugn-
aði. Þeir kunna allar aðferðir, ailt
frá trúarlegum sjálfsmorðum á
fjölförnum götum til mótmæla-
funda og árása á stjómarbygging-
ar.
Aðeins er hálft annað- ár síðan
73 ára gamall munkur settist nið-
ur á miðri götu í Saigon, lét hella
yfir sig 20 lítrum af benzíni og
kveikti rólega í sér með sígarettu-
kvikjara í mótmælaskyni við Di-
em-stjórnina.
Hafíi áhrif
Sjálfsmorð hans hafði tilætluð
áhrif. Það vakti athygli Banda-
ríkjanna á óvinsældum Diem-
stjórnarinnar.
En það sem í uppbafi voru trú-
arleg mótmæli gegn kúgun hinnar
kaþólsku Diem-ættar hefur nú
tekið á sig mynd raunverulegrar
stjórnmálahreyfingar, sem sæk-
ist eftir öllum völdum í Suður-
Víetnam og mun því leggjast gegn
hverri þeirri stjórn í landinu, sem
ekki aðhyllist skoðanir búddatrú-
armanna.
Munkarnir halda því fast fram,
að þeir séu fulltrúar þjóðarinnar
og séu því þeir einu, sem geti
háð áhrifaríka baráttu gegn
Kommúnistum.
'Leiðtogi búddatrúarmanna í
Suður-Víetnam, Thieh Tri Quang,
lýsir því opinskátt yfir, að hann
geti ekki sætt sig við kommún-
isma, því að það sé trúleysingja
stefna, en hann óttast, að Suður-
Víetnam komist undir yfirráff
kommúnista, þar eð stjóm sú,
sem nú hefur farið með völdin, sé
óvinsæl og fari alltaf rangt að.
Annar áhrifamikill búddatrúar-
maður, Thich Tam Chau, kallaði
Tran van Huong forsætisráðhen'a
nýlega „heimskan landráðamann,
Framhald á 10. síffu
NOKKUÐ FLEIRA HANDA YÐUR? ,
Þannig lítur bandaríski skopteiknarinn Mautdin á kröfíir
búddatrúannanna.
ALÞYÐUBLAÐIÐ - 24. des. 1964 JJ