BFÖ-blaðið - 01.01.1966, Blaðsíða 3

BFÖ-blaðið - 01.01.1966, Blaðsíða 3
kröfum um þroska og hæfni til að taka á sig ábyrgð og að geta tekið tillit til annarra. En það eru takmörk fyrir því, hvað það má kosta að eign- ast ökuleyfi og kröfurnar til nem- andans verða að vera sanngjarnar. Sama gegnir um umferðareftirlitið, þar sem þó er mikið enn ógert. Sér- staklega í uppeldislegu og leiðbein- andi tilliti ,þar sem bæði lögreglan og fjölmiðlunartæki margs konar gætu lagt fram áhrifaríkari aðgerðir en hingað til. Tilraunum vátrygg- ingafélaganna með aukna sjálfsá- hættu fyrir unga ökumenn þarf að fylgja eftir nákvæmlega og auka þær, ef það virðist nauðsynlegt. Og fyrst og síðast verðum við að losna við hinn svellkalda hugsunar- hátt, sem virðist vera tákn timanna að nokkru leyti. Það er viðhorf, sem blindar, eitrar og grófgerir allt sam- neyti manna í millum. Það er ekkert „töff“ við það að aka bílnum hratt. Það endar hræðilega oft í dauða, þjáningum og fjárhagslegu tjóni. Að aka vel, að geta sýnt fram á tjóna- lausan akstur ár eftir ár, er sannar- lega þrekvirki. Að þjálfa sig í þeim sjálfsaga, sem kemur fram í því að nema staðar við gatnamót og hægja ferðina í tæka tíð, áður en nokkuð hefur komið fyrir, er aðalsmerki hins færa ökumanns. Gæti maður ekki hugsað sér sam- keppnisstarfsemi, sem verðlaunaði fyrst og fremst nærgætni í akstri? Má ekki hagnýta rafeindaheila nú- tímans til þess að verðlauna ábyrga ökumenn eftir kerfi, sem gæfi æsku- manninum jafnframt tækifæri til að sýna hvað hann getur og reyna að hvetja hann á einhvern hátt? En allt verður að miða að því, að hinn ein- staki ökumaður finni, að eftir hon- um er tekið, en það mætti verða til þess að hvetja hann til að leggja sig aiian fram í því efni að koma í veg fyrir slys. (Ath.: Finnst mönnum ekki, að grein þessi gæti einnig átt við á- standið hér á landi að flestu leyti?). r------------------------------------ Látið Á B Y R G Ð bera ábyrgðina! Tryggið heimilið og bílinn hjá ÁBVRGÐ. Bindindi = minni áhætta. Minni áhætta = lægri iðgjöld. ÁBYRGDP tryggingariélag bindindismanna Skúlagötu 61 . Simar 17415 -17947 V __________________________/ BFO-BLAÐIÐ

x

BFÖ-blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.