BFÖ-blaðið - 01.01.1966, Blaðsíða 8

BFÖ-blaðið - 01.01.1966, Blaðsíða 8
LJmislegt um oetraraksiur Negldir hjólbarðar Ekki eru aliar gerðir snjóbarða heppilegar til neglingar. Mynstrið getur verið of smágert. Ennfremur er gúmmíblanda slitflatarins stund- um þess eðlis að naglar tolla af þeim ástæðum illa í börðunum. Mynstrið verður að vera þannig gert, að á því sé nóg af flötum, ekki minni en 12 s. 12 mm á hvorn veg, sem hægt er að setja naglana í. Séu fletirnir minni, losna naglarnir innan tíðar. Verksmiðjur eru nú yfirleitt farn- ar að gera snjóbarða sína þannig að hentugt sé til neglingar. Neglda barða þarf að ,,tilkeyra“. Fyrstu 150 til 250 km má ekki aka hraðar en 70 km/t (ísl. hámarks- hraði). Varast verður einnig á með- an á þessu stendur að hemla snögg- lega, aka beygjur hratt (ætti aldrei að gera) og auka hraða mjög skyndi- lega. Aldrei skyldi þó aka hratt á negldum börðum, og lögum eiga menn ætíð að hlíða. Gott ráð: akið aldrei hraðar með negldum börðum en þér mynduð gera væru þeir ekki negldir. Mönn- um veitir ekki af að eiga til vara það „öryggi“ sem neglingin veitir. Heppilegasti naglafjöldi í venju- legum snjóbarða er 110 til 120 naglar í hverjum barða. Fleiri nagla munar lítið um og séu þeir orðnir yfir 200 í hverjum barða (miðað við vanaleg- an fólksbíl), er það oftast til ills eins. Helzt til lítið virðist vera að hafa aðeins 70 til 80 nagla í hverjum barða, miðað við vanalega stærð. Samtal við góðan ökumann Ræsing Hvernig ræsið þér bílinn yðar á vetrum? Svar: Ég dreg innsogið alveg út, tek úr gíri, stíg niður kúplinguna, dæli 2 til þrisvar sinnum með bensín- pedalanum og ræsi svo. Er hreyfill- inn er „vaknaður“, læt ég hann ganga dálítið í tómagangi til þess að fá fullan olíuþrýsting. Síðan ýti ég innsoginu hægt inn og ek af stað. Óráðlegt er að aka hratt til að byrja með, heldur ekki þeyta hreyf- ilinn eða pína, því það getur komið fram í smurningunni. Gáið að því að hafa vel opna rúðu fyrst eftir að þér farið inn í bílinn. Hve oft skiptið þér um olíu á pönnunni á vetrum? Svar: Þér verðið máske undrandi er ég segi að ég skipti olíu í hvert 8 BFÖ-BLAÐIÐ

x

BFÖ-blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.