BFÖ-blaðið - 01.01.1966, Qupperneq 5

BFÖ-blaðið - 01.01.1966, Qupperneq 5
(jímgamU ft>lk 09 glftmerkí Umferðarslysin ríða oft yfir í bylgjum. Slysin og tjónin ske hvert af öðru, svo ótt og títt að manni of- býður. Mörg í senn, dag eftir dag. Þetta er orðið eitt af hinum miklu vandamálum okkar. Hér á landi er það yfirleitt venj- an að gangandi fólk, hjólreiðamenn og aðrir ökumenn verði að notast við sama veg. En hið mótsagna- kennda er, að því betur, sem vegirnir eru gerðir, því öruggari, sem þeir ættu að vera, að því er virðist, því hættulegri verða þeir að öðru leyti. Vegir þessir æsa menn til hraðaakst- urs, og það er hraðinn sem drepur. Komi að auki til myrkur, vex hættan um allan helming. Mikið er gert til þess að draga úr hættunni. Hvað ökuníðinga áhrærir, er lögreglan sífellt á varðbergi, að svo miklu leyti sem henni er fært með þeim mannafla og fjárhags- getu, sem henni er í té látin. Bíleig- endum er gert að skyldu að full- nægja ákveðnum kröfum um öku- ljós, bakljós og glitaugu á bílum sínum og uppfylla þeir þesar skyldur að mestu leyti. Geri þeir þetta ekki, mega þeir búast við refsingum og jafnvel að verða gerðir skaðabóta- skyldir valdi þeir tjónum eða slysum. Hjólreiðamenn mega líka vara sig á lögreglunni, hafi þeir ekki ljós og glitaugu í lagi. Öðru máli gegnir um gangandi fólk. í umferðarlögunum eru ákvæði um, að það skuli ganga á hægri vegarbrún í myrkri og slæmu skyggni. Hingað til hefur það varla eða ekki hent að nokkur fótgangandi mann- eskja hafi fengið áminningu fyrir að brjóta þessa reglu, enn síður hegn- ingu. Gangandi vegfarendur ganga eins og þeim sýnist, klæða sig eins og þeim sýnist og mikill fjöldi þeirra er í miklu meiri lífshættu en þeir sjálfir gera sér grein fyrir. Og þessvegna ske líka svo mörg sorgleg slys á veg- um okkar ,gangandi fólk drepið eða limlest. Það mætti tala um „sjálfs- morðingja“ og það er mikið til í því. Þetta fólk veldur því einnig, að ökumenn margir hverjir lenda í að- stæðum, sem þeir jafnvel ná sér aldrei eftir. Umferðarvandamálunum er ekki gefinn nægur gaumur. Það er of mik- ið sparað á því sviði, fé, leiðbein- ingar, hegningar. í þessu sambandi BFÖ-BLAÐIÐ 5

x

BFÖ-blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.