BFÖ-blaðið - 01.12.1988, Page 14
bílstjórum líka að aka á þessum tilrauna-
köflum.
Verða fengnir bílstjórar, sem fara á hverj-
um degi um veginn til þess að skrá hjá sér
athuganir varðandi hálku og annað.
Þá hefur bundið slitlag verið sett á vegaxlir
á þeim stöðum, þar sem einna mesta slysa-
tíðnin hefur verið, svo sem við Kúagerði og
víðar. Eykur það mikið öryggi, þar sem oft
myndast brík við vegbrúnir og hætta fyrir
þann, sem missir bílinn sinn út fyrir bundna
slitlagið. Þá eru áform um að tvöfalda veginn
við Kúagerðið og setja stefnuörvar víðar en
verið hefur, sem þó eins og fyrri daginn er
komið undir Qármagni hverju sinni. Jafn-
framt er rætt um að tvöfalda veginn frá
Straumsvík að Hafnarfirði.
Viðmælendur BFÖ-blaðsins hjá Vegagerð-
inni sögðu þó, að mesta öryggið, sem gerlegt
væri að setja upp, væri meiri lýsing og upp-
setning eyja við gatnamót inn á veginn ásamt
afreinum og aðreinum. Búið er að lýsa veginn
fyrir ofan Hafnarijörð, og á næsta ári á að lýsa
Keflavíkurveginn út að Krýsuvíkurveginum.
Suður frá þarf að lýsa veginn frá Njarðvíkum
og inn að Höfnum. Nýlega hefur verið lýst frá
Hafnarvogi að Grænási. Hjá Fitjum hafa verið
settar upp lýstar örvar á eyjar til þess að vekja
athygli bílstjóra í tíma á eyjunum. Þá þarf að
setja upp eyjar við vegamótin til Grindavíkur
og Voga til þess að draga úr umferðarhraða
ásamt að- og afreinum til verndar bílum sem
eru að koma inn á veginn eða að fara út af
honum.
Slysatíðni á veginum hefur ekki aukist
undanfarin ár. Hins vegar hefur slysum ekki
fækkað heldur Qölgað eitthvað, þar sem
umferð hefur aukist mikið hin síðustu árin.
Fjölgun slysa hefur einna helst orðið við þétt-
býlisstaðina, þar sem ekki hefur verið gætt
sem skyldi öryggis við hönnun nýrra gatna-
móta og frágangs þeirra. Tilhneiging hefur
verið að fjölga gatnamótum eftir því sem þétt-
býlið þenst út án þess að búa um þau sem
skyldi.
Keflavíkurvegurinn verður þannig áfram
nokkuð varhugaverður. Á meðan áðurnefnd-
ar úrbætur hafa ekki komist í framkvæmd
skyldu menn stilla hraða sínum í hóf, þannig
að menn eigi góðar minningar um vegferð eft-
ir Keflavíkurveginum í framtíðinni.
p.þ.
Fyrir glögga lesendur
Þessi uppskrift að óáfengri glögg hefur birst
áður en er hér endurbirt að gefnu tilefni.
2 bollar vatn
1 bolli sykur
2 msk. negulnaglar
2 kanilstangir, brotnar
2 tsk. saxað nýtt engifer
(eða bútar af þurrkuðu)
4 bollar eplasafi
2 bollar appelsínusafi
4 msk. sítrónusafi
Sjóðið vatnið og sykurinn í 10 mínútur.
Bindið negulnaglana, kanilstengurnar og
engiferið inn í grisju og látið vera í sykur-
leginum í eina klukkustund. Hrærið afgang-
inn af efnunum út í og hitið upp að suðu. Fjar-
lægið kryddið.
Berið fram heitt eða kalt. Þetta getur orðið
nokkuð bragðsterkt þannig að ef börn eru með
getur verið gott að hafa þeirra glögg kalda og
blanda hana til helminga með Sprite eða öðr-
um gosdrykk.
Verði ykkur að góðu!
14