Skólablaðið - 01.04.1912, Blaðsíða 10
58
SKÓLABLAÐIÐ
Á Englandi læra börnin sögu á sinn hátt frá því þau
koma í skólann og eru ólæs. Þeim eru sögð æfintýrí, og eink-
um æfintýri í Ijóðum, sem eru sungin inn í þau. Eg hef oft
verið hissa af að sjá 5--6 ára börn syngja vel og fallaga heila
æfintýraflokka, og stunduin leika viöburðina. Annars er það
að sameina leik, söng og söguljóð eitt af nýrri uppgötvununum
í sögukenslu. Þá búa börnin sér til búninga úr marglitum
pappfr, kórónur, hjálma, lúðra, sverð o. s. frv. Og svo er leikið,
æft á undan, lærðar þulur utan að, sungnar, og svo þegar alt
er fullbúið koma foreldrarnir og horfa og hlýða á.
í flestum skólum hætta menn þó slíkum sýningum þegar
barnsaldrinum sleppir; samt er því haldið í fáeinum nýtísku-
skólum. Er þá öllum alþektustu viðburðum ættjarðarsögunnar
snúið í leikrit og leikið í sögutímunum. Góð viðbót er það
að hafa mikinn hluta af sögunni í stórfelduni sjónleikjum eins
og Englendingar hafa í verkum Shakespeares. Eru þau flest
leikin árlega í öllum meiriháttar bæjum. Fá þá barnaskólabörn-
in að fara í leikhúsið ókeypis, en daginn áður útskýrir sögu-
kennarinn leikinn, svo að betri not verði af.
Vitaskuld er slík kensla sú fullkomnasta sem til er. Þá er
sagan meir en orð og ártöl, dauð og sundurslitin. Þá líður
fyrir augun sagan sjálf, lífið heilt og óbrotið, fólkið lifandi, klætt
og búið eins og það var í lifandi lífi, sýnt í baráttunni til sig-
urs eða ósigurs eins og hún var.
Menn munu nú segja: Þetta er nú gott og blessað fyrir
ríkar þjóðir að syngja og leika söguna ínn í þjóðina, en það
getum við nú ekki hérna. En þá er þö eftir annar vegur, sá
næst besti, ef ekki sá besti, það að liða söguna sundur í æfi-
sögur tilþrifa mestu manna þjóðarinnar í stað þess að dragast
ófram með þunga árbókarformið.
Eg vil taka eitt dænii: í íslandssögu verður vitaskuld að
kenna bæði um fornöldina og þann tíma, sem er rétt umliðinn.
í sögunum er efnið alt æfisögu kent, bundið við líf og örlög
vissra manna, og sé sagt vel frá því, fylgir barnið frásögninni
með athygli, og man það lengi og vel. Og í sögunum er
efninu einmitt þannig niðurraðað að þær eru óvenjulega vel