Skólablaðið - 01.12.1912, Qupperneq 13
SKOLABL.AÐIÐ
189
Að ýmsu leyti er skýrsiunum enn ábótavant, og einkm þó
að því er snertir tekjur skóianna. Sumstaðar er talinn fæðis-
kostnaður kennara, sumstaðar ekki. Sumstaðar er talinn kostnað-
ur við húsnæði, sumstaðar ekki. Sumstaðar er landssjósstyrkur-
inn ekki færður til reiknings. Sumstaðar er ekki unt að sjá,
hvernig fræðslukostnaðurinn hafi verið greiddur, eða hver hafi
greitt hann. Þar sem fæðiskostnaður kennara hefur ekki verið
færður tii reiknings, er hann talinn 6 kr. um vikuna til að kom-
ast nær sanni um hinn rétta kenslukostnað.
Reikningar skólanna eru nú að vísu gleggri yfirlits en áður»
enda ætti að vera vorkunnarlaust að gera þá full greinilega þar
sem fræðslunefndum hafa verið send prentuð eyðublöð fyrir þá-
En ekki verða kenslukostnaðar reikningarnir í góðu lagi, nema
talinn sé með tekjum í hverjum reikningi landssjóðsstyrkurinn
frá árinu á undan. Það skyldu allar frœðslurtefndir gera nœst.
Nýjar bækur.
SóUvarnarbók.
Qefin út á landsjóðs kostnað.
Stjórnarráðið hefur í samráði við landlækni sett almennar
reglur utn varnir gegn útbreiðslu nœmra sjúkdóma. Það er fyrri
hluti kversins. En seinni hlutinn er sótthreinsunarreglur, sem
landlæknir hefur samið, og eru þar í greinilegar og harla nauð-
synlegar leiðbeiningar fyrir þann sem hjúkrar sjúklingw .
Þetta litla kver þarf allur allmenningur að kynna sér vel,
og lifa eftr þeim reglum og leiðbeiningum, sem þar eru gefnar.
Þær stórsyndir, sem oft eru drýgðar í meðferð sjúkdóma og
sjúkiinga, stafa auðvitað oftast af þekkingarskorti og hugsunar-
leysi. En fyrir sóttvörn og varðveislu heilsunnar er það ómetan-
lega mikils virði að almenningur þekki hvað lög eru í landi og
skiljí, að þessi lög og fyrirskipanir eru nauðsynleg. Það kann