Skólablaðið - 01.05.1913, Side 9

Skólablaðið - 01.05.1913, Side 9
SKOLABLAÐID 73 í tvær deildir og hafa þær þó saman í nokkrum námsgreinum. Sú hefir orðið niðurstaðan að erfitt veitir að koma börnum hæfi- lega áfram í sumum námsgreinum vegna tímaskorts. Guðr. gerir ráð fyrir að þessar námsgreinar sé kendar í skólum: landafræði, mannkynssaga, náttúrufræði, íslendingasaga, skrift, íslenska, danska, bókmentir, söngur, teiknun. Mér varð fyrst fyrir að minnast þess, að hún hleypur yfir eina námsgrein, sem margar fræðslusamþyktir hreppa munu þó ákveða að kend sé í skólum, þó ef til vill væri eigi æskilegt, að hún væri kend af öðrum en kennurum barnaskólanna, en það er kristindómur- inn. í fræðslusamþykt þess hrepps, er ég þekki best til munu vera ætlaðir 2—-3 tímar vikulega til kristindómskenslu. Einhverju þyrfti að breyta í sýnishorninu af stundaskránni, er Guðr. getur, ef þdm þyrfti við að bæta. Gaman hefði ég af að sjá meðalgreindum börnum — svo ég taki nú ekki lakara til — komið sómasamlega yfir það í reikn- ingi, er börn þurfa að kunna til fullnaðarprófs samkvæmt fræðslu- lögunum, með því að hafa aðeins 4 reikningstíma vikulega í 8 mánuði alls. Mér hefir gengið það fullilla með því að hafa þá 6 á viku. Eftir töflu Guðrúnar eru tveir tímar í viku ætlaðir íslend- ingasögu; eiga báðar deildir að vera saman í öðrum, en skrift hjá eldri deild á meðan sú yngri er í hinum. Mér skilst að til eiginlegs náms í íslendingasögu séu aðeins tveir fyrri veturnir ætlaðir. Þessi sameiginlegi tími fyrir báðar deildir eigi raunar að vera nokkurskcnar upplestrartími fyrir eldri deild. Eg get ekki fallist á þessa tilhögun að því leyti, að mér finst hér of naumur tími ætlaður til námsins. Veitir naumast af, að 2 tím- ar í viku séu ætlaðir íslendingasögu sem námstímar þessa 4 vetur, sem börn ganga í skóla. Fvrstu tvo veturna eru fæst börn svo þroskuð, að þeim verði að verulegu gagni lestur fs- Iendingasögu, síðari hlutinn einkum. Stat'ar það ef til vill af skorti á verulega góðri kenslubók. Affarasælast hefir mér virst, að nota alls ekki bók við sögunám fyrsta veturinn, segja aðeins frá þeim viðburðum, sem mest eru við barnanna hæfi. Verður það þá einkum fyrsti hlutinn og svo frásagnír um einstaka menn og viðburði, þegar lengra líður. Á næsta ári fer kenslan í svip-

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.