Skólablaðið - 01.11.1913, Page 14

Skólablaðið - 01.11.1913, Page 14
174 SKÓLABLAÐIÐ Sent Skólablaðinu. Á helmlelð. Skáldsaga úrsveit- inni. Eftir Guðrúnu Lárusdóttur. Þeim fjölgar, skáldsögunum, og þær falla í góðan jarðveg hér á landi. Hér kemur nýr höfundur fram á sjónarsviðið, og sagan þó síst viðvaningsleg. Sagan er úr sveitinni, íslenskri sveit, vel sögð að því er vér höfum best vit á, og hugðnæm að lesa og heyra frá upphafi til enda. Gæti vel verið að hún yrði les- in eins oft til skemtunar á vetrarkvöldum eins og sögur hinna eldri skálda. Nokkuð snertir hún andleg efni, og ætti ekki að fæla frá Iestrinum. Dettur þó í hug maðurinn, sem leit í Bók œskunnar, þegar hún var að koma út. Hann rak augun í fyrir- sögn fyrir einum kaflanum: »Æskan í guðs ríki«, og varð að orði: »Æ, var ekki hægt að segja þetta öðruvísi? — Guðs ríki! Þá lesa rnenn ekki Iengra«. Lyndiseinkunnir sögufólksins eru dregnar skýrum og hrein- um dráttum, trygg ást, trúmenneska, fórnfýsi. Ýms atriði úr sveitalífinu eru séð glöggu auga, og ágætlega lýsr, svo sem ferðalögum, mannfundum og ekki hvað síst hestunum. Það gera karlmennirnir vart betur. Skólabl. mælir hið besta með þessari skáldsögu við unga og gamla. Hinn almenni mentaskóli. Kektor er settur við hann frá 1. f. m. Geir T. Zoega yfir- kennari, og frá sama tíma er Böðvar Kristjánsson settur þar ad- junkt; var áður aukakennari við skólann. Yfirkennari Pálmi Pálsson. Kennaraskólínn. Dr. Björn Bjarnason hefur verið fatlaður frá kenslu af sjúk' dómi undanfarið. Hann er enn erlendis þennan vetur sér til heilsubótar; í hans stað kenna þar í vetur þeir Sigurður Guð• mundsson cand, mag. og cand. Halldór Jónsson.

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.