Skólablaðið - 01.06.1921, Síða 10

Skólablaðið - 01.06.1921, Síða 10
70 SKÖLABLAÐIÐ Júni 1921 vjer þyrftum eigi að hafa svo stór orð, þá eigum vjcr alls enga skóla að hafa. það er betra autt rúm en illa skipað. Skólar rata oft í villu af ýmsum orsök- um, og sjaldnast gagnstætt vilja hlutaðeig- erida. Stærstu alþýðuskólasyndir eru fram- kvæmdar í anda laganna og heimilanna. Oheillaandi athugalausrar metnaðargirni ræður stefnum og straumum í mörgum skólum, svo þeir gera fjölda nemenda „þreytta á allri andlegri viðleitni", nauð- ugir viljugir. — Valdi foreldra og vandamanna og áhrif- um þeirra á hugarfar og hegðtin barna fer síhnignandi, og fæ jeg eigi sjeð að skólarn- ir eigi sök á því. Og foreldrum verður tæp- lega gefin sök á því heldur. þeir eru senni- lega engu máttlausari nje áhugaminni um heill og hag barna sinna en áður. Rn það eru komin ný öfl til sögunnar, er draga úr mætti og áhuga heimilanna, veikja áhrifin. Hávaðinn í. lífinu, vaxandi umsvif, asi og óðagot á heimilunum og umhverfis þau draga hugi barnanna t i 1 sín og um leið f r á rólegum áminningum og aðvörunum. það fer dagvaxandi er glepur fyrir — ekki að eins börnunum, heldur einnig forcldrum og v an damönn um. Fyrir mannsaldri, og þótt skemra sje far- ið aftur á bak, var þetta talsvert á annan veg víðast hvar, og einkum í sveitum. þá var meiri þögn, ró, næði og ytri friður yfir öllu. Upp úr þoim jarðvegi óx sjálfsment- un á ýmsum stöðum „eðlilega, hægfara", þar sem innri þörf einstaklingsins kom til móts við skilyrðin. En nú eru þau skilyrði að mttstu horfin. þrátt fyrir mörg góð tækifæri til að hugsa, athuga og álykta, var mestur hluti þjóðar- innar i andlegum vesaldómij „ósjálfbjarga i hugsun". Fjöldinn trúði heimskulegum bá- biljum betur cn rökrjettum ályktunum og staðreyndum. þjóðin var ónærgætin og harð- lynd við mcnn og málleysingja og fjöldinn fyrirvarð sig og lægði í návist höfðingja sinna og þótti sjer misboðið í návist heið- ursmannsins, ef hann var umkomulítill. þetta meðal annars bendir á þroskaleysið. Skólavegurinn svo kallaði v a r í reyndinni ilia fært einstigi öðrum en þeim, cr áttu þá að, er voru talsvert loðnir um lófana. Sat því margur gáfumaðurinn eftir heima, í kotkytrunni hjá pabba og mömmu, því gáf- ur barna fara ekki alt af cftir ofnum og ástæðum foreldranna. jfröngt var oft í kot- inu og fátt um föng, en þar gat verið hilla fyrir andríkisverk þeirra Hallgríms Pjeturs- sonar, Jóns Vidalins og Mynsters Sjálands- hiskups. þar gat einnig verið hirsla fyrir biblíuna, nokkrar Islendingasögur, Snót, Svanhvít og stöku fræðibækur aðrar. þarna komst rökkrið fyrir með sönginn og sögurn- ar, og að því loknu kom lýsislampinn með logandi fifukveik í nefinu. Ef minnið var skarpt og trútt, ímyndunaraflið fjörugt og greindin glögg, þá var þarna kominn dá- góður skóli — ef hvorki skorti vilja nje þol- gæði. Og þótt telja megi suma kennarana, er þar lýstu, með helstu siðameisturum heims- ins, þá beittu þeir ekki blindu valdi nje harðstjórn við nemandann, svo hann gat notið skapgerðar sinnar og sjereðlis. I þessu frelsi felast meginstyrkur og yfir- hurðir kotskólanna yfir marga aðra skóla, er marga nemendur hafa. þcir byrjuðu ekki á því óheillaverki að bræða upp hugs- unarhátt og háttalag nemendanna, hella síðan í mót og fá alt i ákveðið form. — Nú er ekki lengur talað um skóla v e g. Skólar eru um allar jarðir. Milli þeirra liggja fjölfarnar götur. Og þjóðin hefir rutt og bætt vegi að helstu mcntastofnunum landsins á margan hátt. Kotungssonurinn þarf ekki að sitja kyr á skák sinni, frem- ur en honum sýnist, ef hann hefir góðar gáfur. þessi vegabót kemur í góðar þarfir, þvi sjálf mentunarskilyrðin eru að hverfa inn í asann og óðagotið. það er „aldrei frið- ur“ til að hugsa, ekki einu sinni í kotunum. Sjálfsmentun þrífst ekki á þön- u m. Og þess vegna, meðal annars, h 1 j ó t- u m v j e r að k o m a u p p s k ó 1 u m, jafn- vel barnaskólum, i hverri sveit, „þar sem því verður við komið“, eins og Jón Sigurðsson lagði til fyrir meira en hálfri öld. En allir mega þeir læra nokkuð af vexti og hnignun sjálfsmentunarinnar. Skólamontun þrifst ekki heldur á þön- um. Nú er svo í garðinn búið, að allri þjóðinni

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.