Skólablaðið - 01.06.1921, Side 11

Skólablaðið - 01.06.1921, Side 11
Júní 1921 71 SKÓLABLAÐIÐ stendur stór hœtta af þroskaleysi og þröngsýni einstaklingsins — meiri hætta en nokkru sinni áður. Stjórnendur allir -— umfram alt þeir — þurfa að vera gæddir inannkostum, viti og einbeittum vilja. Ráði e i n n, þá skiftir mestu að hann sje vitur. Ráði nokkrir m e n n að eins, er sama máli að gegna um þá og ráði a 11 i r lögum og lofum, sem komnir eru, sem kallað er, til vits og ára, þá er lífsnauðsyn að þeir sjeu und- antekningarlaust svo vel þroskaðir, sem kostur er á. J) e s s u m á 1 i er nú hjer að gegna. þrátt fyrir kosningarrjett, jafnrjetti, frelsi og fullveldi verðum vjer aumir og ósjálfstæðir og náum aldrei stjórnarfars- þroska án þess að leggja liina ítrustu rækt við mannkosti, vit og vilja hvers einasta manns. það er minni v e g s e m d að vera kjós- andi en löggjafi, en vandinn er likur. Jlað þarf ekki svo litið vit og vald yfir ytri og innri freistingum til þess að fylgja jafnan þeim manni að málum, er best er trúandi fyrir þeim. (Meira). ----o---- Kennarafundurinn. Hann hófst, eins og til stóð, miðvikudag- inn 15. þ. m., og var settur kl. 1 í stóra sal Templarahússins, og stóð í 4 daga, og starfað meira og minna alla dagana. Sig- urður Jónsson kennari í Reykjavík stýrði fundinum, en skrifarar voru Bjarni Bjarna- son skólastjóri í Hafnarfirði og Helgi Hjörvar. Seinna á fundinum tók Hallgrím- ur Jónsson við störfum Helga. 50 kennarar utan af landi sóttu fundinn, en um 30 úr Reykjavík, og sátu því fund- inn alls um 80 kennarar, auk nokkurra gesta við og við. í upphafi fundarins lagði forgöngunefnd- in fyrir fundinn frumvarp til laga fyrir „samband íslenskra barnakennara". Var þegar sett í það mál 7 manna nefnd, og þessir kjörnir: Bjarni Jónasson frá Litla- dal, Björn Guðmundsson kennari á Núpi, Hervaldur Björnsson skólastj. í Borgarnesi, Friðrik Hjartarson skólastj. í Súgandafirði, Steingrimur Arason, Helgi Hjörvar og Bjarni Bjarnason í Hafnarfirði. Um þctta mál, þ. e. fjelagsstofnunina og skipun hennar, urðu langmestar umræður, og fór fundurinn að miklu leyti í það mái. Skoðanir voru allskiftar og margvíslegar. Nefndin margklofnaði, og var þó meiri hlut- inn (Bj. Bj., B. J., Herv. og H. Hjv.) á einu máli, og vildi samþykkja frumv. með nokkr- um breytingum. Hinir 3 vildu sitt hver. Björn. Guðm. vildi hafa fjelagið rýmra en frumv. gerði ráð fyrir, og hreyta nafninu á þann veg. Friðrik vildi liafa sambandið fyrir einstaka kennara eingöngu, en alls ekki fyrir kennarafjelög líka, eins og frumv. gerði ráð fyrir, en Steingr. vildi samband fjelaga eingöngu, en alls ekki livorttveggja. Auk þessara meginatriða fundu þeir ýmis- legt fleira til. Meiri hluti nefndarinnar hjelt því fram, að reynslan ein mundi skera úr því, hvort betur gæfist, að hafa samband- ið meir fyrir kennarafjelög eða einstaka kennara; óliugsandi væri að kennarar gætu alment sótt ársþing, og væri þvi nauðsyn- legt að kjósa fulltrúa, og það væri beint að vinna á móti kennarafjelögum, að útiloka þau úr sambandinu. Hins vegar kæmi ekki til mála að útiloka einstaka kennara, þótt þeir væru svo afskektir, eða gætu ekki af öðrum ástæðum verið í neinu kennarafje- lagi. En gegn B. Guðm. hjeldu þeir því fram, að fjelagsskapurinn retti fyrst og l'remst að vera stjettarfjelag, bygt á kenn- aralaunalögunum, þó að skylt væri að gera þrer undantekningar um unglingaskólakenn- ara, sem frumv. gerði ráð fyrir. Málið var rœtt fram og aftur, og voru þó allir sammála um að stofna fjelagið, og um aðal-tilgang þess. En vegna þess, hve skift- ar voru slcoðanir, vildu sumir stofna sam- bandið að vísu, en fresta allri lagagerð þangað til að ári. Gegn þessu snerist meiri hluti nefndarinnar harðlega, og lá við sundrungu. En það varð úr, að samþykt var frumvarpið með breytingartillögum meiri hlutans, og sainbandið þar með stofn- að. þetta var 17. júní um kvöldið. I stjórn sambandsins voru þessir kosnir: Bjarni Bjarnason, skólastj. í Hafnarfirði, formaður sambandsins.

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.