Sovétvinurinn - 01.10.1935, Qupperneq 2
[Sovétvinurinn]
Sovétvinupinn,
blað Sovétvinafélags íslands, kemur út annan hvern
mánuð. — Askriftagjald er 2 krónur. — Verð
þessa blaðs er 40 aurar.
AFGREIÐSLA: Skrifstofa Sovétvinafélags
íslands, Lækjargötu 6. — Reykjavík. —
Pósthólf 392.
Ábyrgðarm.: KRISTINN E. ANDRÉSSON
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN, REYKJAVÍK.
Efni þessa blaðs er m. a.:
Sigur sósíalismans, Björn Franzson.
Kínverska byltingin, Hendrik J. S. Ottósson.
Rauða hættan, ritdómur, Aðalbjörg Sigurðardóttir.
Kveðja Sovétæskunnar, Hd. St.
Æsklýðurinn í Sovétríkjunum, Eiríkur Magnússon.
Geta menn ekki orðið kapitalistar í Sovétríkjunum,
Har. S. Norðd.
Frá Sovétvinafélaginu.
Sendinefnd
getur ekki farið í haust til Sovétríkjanna, en aftur
á móti cr ákveðið, að nefnd fari næsta vor, ekki færri
en fimm menn. Verða það lielzt sjómenn og bænd-
ur, eins'og gert var ráð fyrir með haustnefndina í
fyrra. Ferðinni og undirbúningi hennar verður eins
liáttað og undanfarin ár, og kostnaður verður svipað-
ur. I fyrra var dálítil söfnun hafin, einkum á Aust-
fjörðum, og liggja þeir peningar í sjóði hjá Sovét-
vinafélaginu og ganga til þessarar sendinefndar. Nú
er nauðsynlegt, að á hverjum stað sé í tíma hafinn
undirbúningur, þessvegna tilkynnir félagið svona
snemma för nefndarinnar. Með hverju ári er
skemmtilegra að heimsækja Sovétríkin, enda stend-
ur ekki á mönnum, sem þrá að ferðast þangað, en
það verður að velja í svona nefndir greinda og skýra
menn, sem geta sagt verkalýðnum og öðrum lands-
mönnum skilmerkilega frá þvi, sem ber fyrir augu
þeirra og eyru á ferðinni. Menn af hvaða stjórnmála-
flokki sem er geta komizt í þessa nefnd, svo framar-
lega sem þeir liafa traust ákveðins fjölda verka-
manna eða bænda á bak við sig.
Stjórn Sovétvinafélagsins æskir nú þess að fá til-
lögur sem viðast að af landinu um undirbúning ferð-
arinnar, bæði fjársöfnun, val manna o. s. frv.
Af Rauðu hættunni
eru aðeins fáein eintölc óseld. Sovétvinafélagið hef-
ir alls ekki getað afgreitt allar pantanir að henni,
heldur oft orðið að senda færri eintök en beðið hefir
verið um. 1 nokkrum verzlunum í Reykjavík en enn-
þá hægt að fá Rauðu hættuna keypta, en út á land
hefir hún aðeins verið send til áskrifenda, eða gegn
pöntun. Eitt og eitt eintak getur Sovétvinafélagið enn
þá útvegað, en þó er nú hver síðastur fyrir þá, sem
ekki vilja missa af bókinni.
Flug er uppáhalds-íþrótt æsku-
lýðsins í Sovét-ríkjunum. í sér-
stökum skólum, Osoviachim, geta
ungir verkamenn stundað flug-
nám jafnhliða vinnu sinni. Ný-
lega útskrifuðust af slíkum skóla
í Leningrad 56 ungir verkamenn,
er stundað höfðu flugnámið ein-
göngu í frístundum sínum. Mynd-
in sýnir 5 þeirra daginn, sem
þeir tóku prófið.
2