Sovétvinurinn - 01.10.1935, Side 14
[Sovétvinurinn]
sinn ólilutdrægt og einarðlega. Á þann úrskurð
láta þau engar móðganir, blaðaárásir jué aðrar
aðferðir, hafa nokkur áhrif. Eg held eg hafi áður
i ráðinu, i samskonar deilum og þessari, skýrt
svo greinilega grundvallaraðstöðu Sovét-ríkjanna,
að ekki geti orkað tvímælis. Fyrir fulltrúa Sovét-
ríkjanna getur ekki komið til mála að draga lilut
cins herveldis gegn öðru, eða verja hagsmuni
nokkurs. En eins og þér vitið, þá eru Sovét-ríkin
fullkominn andstæðingur nýlendufyrirkomulags-
ins, áhrifasvæða-politíkur og alls þess, sem ber
merki landránastefmi (imperialisma).
Fyrir Sovét-ríkin er aðeins um eitt atriði að
ræða, að verja Þjóðabandalagssáttmálann sem
friðartæki. Þetta tæki hefir þegar í undanförnum
deilum beðið talsvert tjón; við leyfum það ekki,
að ný tilraun verði gerð til þess að eyðileggja það
algerlega. Við munum þurfa á því að halda, oftar
en einu sinni til, og vafalaust við ennþá alvarlegri
tækifæri. Ef við förum af þessum fundi með þeirri
vissu, að fulltrúar þeirra þjóða, sem hér hafa kom-
ið fram, hafi ákveðið og hátíðlega skuldbundið
stjórnir sínar til þess að láta ekki framar við-
gangast, að Þjóðabandalagssáttmálinn sem friðar-
tæki verði brotinn, heldur verði honum beitt í
öllum árásartilfellum, hver sem er orsök þeirra
eða markmið, þá verður þessi fundur leiðarmerki
á hinni nýju braut Þjóðabandalagsins. Eg get full-
vissað yður um, að það land, sem eg er fulltrúi
fyrir, mun engum standa að baki í lagalegri fram-
kvæmd hinna alþjóðlegu skuldbindinga, sem það
hefir tekizt á hendur, og allra sízt í því göfuga
hlutverki, að tryggja öllum þjóðum frið, sem mann-
kynið metur nú meira en nokkru sinni áður, eftir
þær miklu þrengingar, sem það hefir nýlega orðið
að ganga i gegn um. Við viljum ekki sjá slíka
atburði koma fyrir aftur.“
Tjeluskinmyndin.
Sú nýlunda gerðist fyrir skömmu í hinu viðburða-
snauða lífi Reykjavíkurbæjar, að sýnd var kvikmynd
frá Sovétríkjunum, tekin af hinum hcimsfræga
Tjeljuskinleiðangri. Myndin hafði þau áhrif i bæn-
um, að þúsundir manna, sem löngu eru orðnir
þreyttir á glansmyndunum frá Hollywood og yfir-
gefið höfðu kvikmyndahúsin fyrir fullt og allt, þyrft-
ust nú inn í Gamla Bíó, fagnandi yfir þvi að sjá loks
nokkur leiftur hins nýja tima. Biógestir urðu ekki
heldur fyrir vonbrigðum. Menn kynntust þarna nýju
lífi, þrungnu krafti og hetjuskap, og nýrri list, sem
er sönn túlkun lífsins en ekki fölsk gylling dauðrar
menningar. Vonandi gefst kostur að sýna sem fyrst
fleiri nýjar kvikmyndir frá Sovétríkjunum.
Nýjustu fregnir.
Uppskeran.
10. sept. var lokið kornuppskeru á 79.198.000 ha.
Þá voru ekki eftir óuppskornir nema um fimrn
milljónir hektara, aðallega í Austur-Síberíu og í
nyrztu héruðunum. Uppskeran varð mjög góð, svo
að bændurnir liorfa öruggir á framtíðina. Samyrkju-
búskapurinn eflist hraðfara og ásamt honum vel-
megun bændanna.
Sigling á norðurleiðum.
11. sept. komu sovétskipin „Anadyr“ og „Stalin-
grad“ heilu og höldnu til Murmansk frá Vladivostok
norðan fyrir Síberíu.Það eru fyrstu flutningaskipin,
sem hafa farið á einu sumri þessa miklu norðurleið
frá austri til vesturs. Um svipað leyti luku tvö önnur
sovétskip „Vanzetti“ og „Iskra“ leiðinni austur, frá
Leningrad til Vladivostok.
Moskvablöðin um flokksþing nazista í Niirnberg.
Með hvössu háði ræða Moskvablöðin, Pravda og
Isvestia, 15. sept. um þing nazista í Niirnberg og æs-
ingaræður foringjanna móti Sovétríkjunum. Pravda
segir m. a., að öll stefnuskrá nazista sé orðin tómar
eyður, sem þeir reyni nú að fylla upp með móður-
sjúkum æsingahrópum gegn Sovétríkjunum og hern-
aðaröskri.
Ennfremur Iiæðisl „Manchester Guardian“ mjög
að nazistunum: „Hinni trylltu árás Hitlers á Gyðing-
ana fylgdu hinar venjulegu svívirðingar um Ráð-
stjórnarríkin. Hugmyndir Hitlers, eins og allra naz-
ista, eru engan veginn nýjar. Þær geta aðeins virzt
nýjar, af því þær eru svo gamlar, að það hefir verið
nægur timi til að gleyma þeim....Það er vafa-
samt, hvort jafnvel í Þýzkalandi hefir verið tekin
alvarlega árás Hitlers á Rússland, þrátt fyrir hróp
hinna fylgisömu, smjaðrandi áheyrenda.“
Knattspyrna.
Mikill kappleikur var háður 18. sept. á „Dynamo“-
íþróttavellinum í Moskva milli knattspyrnumanna i
Moskva og Ukraine. Liðið frá Ukraine hafði fyrir
skömmu keppt i Paris og Belgíu, hafði sigrað „Red
Star“ i París með 6 : 1 og belgiska vcrkamannasveit
mcð 12 : 1, og unnið auk þcss fleiri sigra. Móti Prag
hafði það aftur á móti tapað með 1 : 0, en þegar
Moskva og Prag kepptu, varð jafn leikur 3 : 3.
Það var því mesti spenningur, þegar Moskva og
Ukraine kepjitu 18. sept. Um 80,000 óhorfendur
söfnuðust á völlinn. Lok leiksins urðu þau, að
Moskvaliðið sigraði með 6 : 2.
14