Sovétvinurinn - 01.12.1935, Side 3
[Sovétvinurinn]
Stachanoff-hreyfingin.
Hin nýju afköst verkafólksins
í 80vétpíkj unum.
Undanfarið hafa verið að gerast i Ráðstjórnar-
ríkjunum nýir viðburðir, sem vekja athygli alls
heimsins og eru upphaf að nýju tímabili i þró-
unarsögu sósíalismans.
Hvað nú? Ár eftir ár hefir hver nýjungin rek-
ið aðra, hver sigurinn risið af öðrum. Hvað get-
ur enn gerzt svo stórkostlegt?
Ekkert einfaldara.
Verkamaður i kolanámu i Donbass, Stachanoff
heitir hann, fer að hrjóta heilann um það, hvorl
liann geti ekki afkastað meiru en venjulega með
loftþrýstihamri sínum. Meðaldagsverk með sex
tima vinnu var að losa 7 tonn. Stachanoff og fleiri
höfðu oft komizt töluvert hærra, upp í 14 og jafn-
vel 18 tonn, en hann var ekki ánægður með þetta.
Var ekki hægt að koma betra skipulagi á vinnuna,
afkasta ennþá meiru? Það hlaut að vera, hann vildi
reyna. 30. ágúst síðastliðinn fór hann niður i nám-
una, sinn sex stunda tíma, og ætlaði nú að reyna
nýjar vinnuaðferðir og vita, livað komast mætti.
Hann vann tæpa sex tíma, og það lágu eftir hann:
102 tonn.
Þessu trúir enginn maður.
Augnablik. Margir verkmenn i námununum ætl-
uðu heldur ekki að trúa þessu fyrst í stað. Staclia-
noff varð að endurtaka afköst sín. En ekki liðu
nema fáir dagar, að aðrir fóru fram úr þessu meti.
Einn hjó 115 tonn, annar rétt á eftir 125, og Stacha-
noff sjálfur nokkru seinna 175. Það met stóð held-
ur ekki lengi, nýr maður komst upp i 227 og ný-
lega hefir Artjuchoff höggvið 536 tonn, með starfs-
hóp sínum.
Ofurmenni? Þrældómur?
Engin ofurmenni, námumenn i sameignarskipu-
lagi, þar sem framtak einstaklingsins fær að njóta
sín, sjálfstæðir verkamenn með sjálfstæðar liugs-
anir; og vinna til hagsmuna fyrir sjálfa sig. Þeir
eru óþreyttari að kvöldi en þú.
En þetta eru einstök dæmi.
Einstök dæmi! Þegar lieyrðist um afrek Stacha-
noffs á sykurrófnaökrunum við Kiev, i bilaverk-
smiðjunni í Gorki, i traktorverksmiðjunum i Ivliar-
kov og Stalingrad og út um allt Rússland, þá reis
upp liver afkastamaðurinn af öðrum, sem tvöföld-
uðu, fjórfölduðu, sexfölduðu afköst sín. Það reis
afkastaalda í landinu: liin nýja Stachanoff-hreyf-
ing. Afrek Stachanoffs kveikti livert afrekið af
öðru i flestum greinum iðnaðar og búskapar.
Stachanoff-hreyfingin vex óðfluga. Fyrst voru það
tugir, síðan hundruð, nú þúsund, sem taka þátt i
henni. 10. nóvember var haldin ráðstefna 500 sam-
yrkjukvenna, sem sérstök afköst höfðu unnið í syk-
urrófnarækt. Þar er María Demtsjenko fremst allra.
Hún ræktaði 523 tunnur á hektara, þar sem með-
aluppskeran hafði áður verið 60—85 tunnur. 18.
nóvember var haldin ný ráðstefna, þrjú þúsund
afkastamanna úr Stachanoff-hreyfingunni. Hún var
haldin í Kreml. Fyrstu framsöguræðuna flutti
Stachanoff. Síðan töluðu verkamennirnir hver af
öðrum, og aðalfulltrúar stjórnarinnar, þ. á m. Stal-
in. Þessi ráðstefna var stórmerkileg. Þar var met-
ið gildi hinnar nýju hreyfingar og gerðar ráðstaf-
anir til margaukinnar útbreiðslu hennar. í næsta
Sovétvini verður skýrt rækilega frá þessum sögu-
lega viðburði.
Það, sem gerzt hefir, er í stuttu máli þetta: Ný
afkastaalda er risin, sem að vísu er ekki svo út-
breidd ennþá, að hún hafi heildaráhrif á fram-
leiðsluna, en hlýtur strax á næsta ári að flýta fram-
kvæmd áætlunarinnar geysilega. Hinn nýi verka-
lýður sósíalismans, er finnur velmegun sina vaxa,
kraftana stælast, og náð hefir tækninni og visind-
unum á vald sitt, sprengir af sér öll norm eða
mál, sem venjuleg afköst lians hafa miðazt við,
þau eru honum ekki framar eðlileg, liann sækir
lengra fram.
3