Alþýðublaðið - 03.02.1965, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 03.02.1965, Blaðsíða 4
LOKSINS EFTIR 30 ÁRA ÚTLEGÐ ER BREZKT LINOLEUM AFTUR Á ÍSLENZKA MARKAÐINUM VÉR ERUM UMBOÐSMENN LEITIÐ UPPLÝSINGA Kristján Ó. Skagfjörð hf. S. Húsmæðrafélag Reykjavíkur 30 ára Éeykjavík, 2. febrúar, ÓTJ. Húsmæðrafélaff Reykjavíkur Iieldur 30 ára afmælishóf sttt í Þjöðleikhúskjallaranum í kvöld. Ilúsmæöurnar erfu Hklepra lang- íjölmennasta off að hví er sumir ftegja valdamesta stétt landsins. I>að er |>ví ekki nema eðlilegt &ff þær láti frá sér heyra um ýmis mál, þó að nú orðið verði Hi&barSavföflefðír 4 . . OP» AIXA DAOA . (L9CA LAUCAKDAOA oa 8UNNUDACA) FRXKL. STU.22. Gáttwávintmtófsal/f BUtbtld 3S, RtjlQwSk, ekki eins harðar sennur ogr þegar stofnfundur var haldinn í jan. 1935. Tilefni stofnfundarins var „mjólkurmálið11 fræga. sem var mikið til umræðu í Reykjavík ura, þær mundir, m.a. í harðorðum og heitum blaðadeilum. Jónína ■Guðmundsdóttir, núverandi for- maður félagsins ræddi fyrir skömmu við blaðamenn, og rifj aði upp ýmislegt í sambandi við þessi fyrstu baráttuár. Árið 1935 voru sett ný mjólkurlög, og Mjólk urfélag Reykjavíkur þá lagt nið ur. Það hafði þá aflað sér mikilla vinsælda, m.a. fyrir heimsendingar á mjólkurvörum, og var því mik ill urgur í mörgum yfir ,,dauða" þess. Þegar svo Mjólkursamsalan tók til starfa 15 jan., kom í Ijós að stai*fsemi hennar var þannig háttað að húsmæður vildu alls ekki fella sig við hana. Var því boðað til almenns liúsmæðrafund ar í Nýja bíói, og mættu á honum um 450 húsmæður, sem kusu bráðabirgðastjórn. í lienni áttu sæti: Guðrún Lár usdóttir, formaður, Jónina Guð- mundsdóttir, varaformaður, Mar ía Maacki gjaldkeri, Unnur Pét- ursdóttir, ritari, og meðstjórn- éiidur voru Guðrún Jónassbn bæjarfulltrúi, Ragnhildur Péturs dóttir Háteigi, Margrét Kr. Jöns dóttir, María Thoroddsen og Ey gló Gísladóttir. Þessar forgöngukonur áttu svo að fara á fund mjólkursölunefnd ar, og reyna að fá einhverja Ieið- •réttingu fyrir húsmæðumar. Kröf ur húsmæðra voru þær að bök- unarhús í bænum hefðu jafnan rétt til brauðsölu og mjólkurbúð ir samsölunnar, og leyfð yrðl ,sala mjólkur í öllum brauðsöluhús- um bæjarins, enda uppfylltu þær settar heilbrigðisreglur, að mjólk yrði send helm, oé komin til neyt enda eigi síðar en kl. 8 fh„ að skilvísum mönnum væri gefinn kostur á að vera í reikning (viku eða mánaðar) hjá samsöhinni, og að þeir sem vildu gætu fengið hina vinsælu Korpúlfstaðamjólk. Og að lokum var þess krafizt að mjólkurframleiðendur innan lög sagnarumdæmis Reykjavíkur gætu haldið áfram beinum viðskiptum víð þá sem vildu, með ógeril- sneyddri mjólk. Mjólkiu-samsalan undi illa þessari sókn kvennanna og kærði þær. Gengu næstu S mánuðir yfir með stöðugum yfir- heyrslum, og voru þær kallaðar til þeirra daglega í langan tíma.- Félagskonur byrjuðu að safna fé ef til þess skyldi koma að stjórn arkonurnar yrðu sektaðar, en Guð rún Jónasson kvaðst énga sekt mundu greiða, heldur fara í fang elsi. Kom þá til umræðu að benda mönnum á að stækka steininn, því að hinar félagskonurnar á- kváðu óðara að sitja inni með lienni. Til þess kom þó ekki, því að smámsaman hljóðnaði um málið. Jónína telur þó, að jafnvel þótt kröfurnar hefðust ekki í gegn, hafi þær veitt töluvert aðhald í mjólkurmálum, og það hefði vissu iega haft sitt að segja. Hún gat þess einnig að jafnan hefði verið hlýtt á milli þeirra, og mannanna sem þær stríddu við, og núna þeg ar allt var fallið í ljúfa löð. skemmtu þau sér oft við minning arnar. En þó að Húsmæðrafélag ið hafi grafið stríðsöxina í þessu máli, á það sér enn baráttumál> og ekki síður mikilvæg. Á vegum þess hafa verið haldnir margs konar fræðslufundir sem jafnan hafa verið vel sóttir, og einnig hefur verið komið upp sumarhúsi fyrir fátækar mæður, þar sem þær geta dvalizzt nokkurn tíma sum- arsins með börn sín. Skortur á húsnæði hefur háð Húsmæðra- félaginu mikið, eins og fjeiri góðum félögum. Nú er þetta mál þó lað leysaat að miklu leyti, þar eð félagið fær rúmgott hús næði á Hallveigarstöðum þar sem hægt verður að hafa námskeið og fundi. Núverandi stjóm skipa Jónína Guðmundsdóttir, formað- ur, Kristín Bjarnadóttir, vara formaður, Stefana Guðmundsdótt ir, gjaldkeri, Þorbjörg Skjald- berg, ritari og meðstjómendur eru Guðfinna Jóhannsdóttir, Sig- ríður Bergmann, Þórdís Andrés- Framhald á 13. síðu. INNRETTINGAR OG SKÁPAR Smíðum eldhúsinnréttingar og skápa. Getum bætt við okkur verkefnum. Tilboð sendist blaðinu merkt „smíðar“. (4 3. febrúar 1965 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.