Alþýðublaðið - 03.02.1965, Side 9

Alþýðublaðið - 03.02.1965, Side 9
 t með fyrir- isamtö um islegt bendir til þess, að fyrir- tækjasamtök séu nú orðin tals- vert útbreidd hér á landi, en hins vegar vantar alla vitneskju um ástand þessara mála hér í einstökum atriðum, vegna þess að aldrei hefur farið fram nein athugun á þeim. Hníga ýmis rök að því, að slík athugun verði látin fara fram.” íslenzk löggjöf hefur ekki á- kvæði, sem lúta að heimild liins opinbera til að hafa eftirlit með tilraunum fyrirtækjasamtaka til aðgerða, sem gætu haft óæski- leg áhrif á vöruval og verðlag í landinu. Með flutningi þess- arar tillögu er lagt til, að ríkis- stjórnin láti rannsaka starfsemi þeirra fyrirtækjasamtaka, sem hafa einkasöluaðstöðu eða líkleg þykja til að geta öðlazt hana, og láti síðan undirbúa og leggja fyrir Alþingi frumvarp til laga upi opinbert eftirlit með slíkum samtökum einkafyrirtækja. Myndun fyrirtækjasamtaka hefur verið eitt meginvandamál- ið í narkaðsþróun síðustu ára- tuga, einkum meðal þeirra þjóða sem hafa vilja í heiðri lögmál frjálsrar verðmyndunar og at- hafnafrelsi einstaklinga. Sérstak- lega kveður að þessum vanda i þeim ríkjum, sem nú eru með lækkun tolla og afnámi inn- flutningshafta að taka upp frjáls ari viðskiptahætti sín á milli. Víðari markaðsheild á Vestur- löndum ásamt greiðari samgöng- um og fullkomnara vörudreif- ingarkerfi eykur til muna hag- kvæmni sérgreiningar og stór- rekstrar, sem á hinn bóginn skapar skilyrði til enn víðtaekari verkaskiptingar yfir landamær- in, en það er einmitt ein aðal- undirstaða efnahagslegra fram- •• fara. En samtímis því, að aukin sjálfvirkni í vélvæðingu og nýj- ar uppfinningar, sem gera bylt- ingu á sviði tækniframfara, leiða til enn frekari stóriðju, þá safn- ast framleiðsla hverrar einstakr- ar vörutegundar saman á færri og stærri hendur, sem fá með þessum hætti einokunaraðstöðu og efnahagsleg völd. Þessi þróun stafar meðal ann- ars af því, að markaðshættir nú- tímans’mótast í vaxandi mæli af einkasöiusamkeppni með mikl- um fjölbreytileika vörutegunda, þar sem hver framleiðandi kepp- ir að því að gefa afurð sinni einhverja sé^stöðu, sem veitir honum tækifæri til að reka sjálf stæða verðstefnu án verulegs tillits til verðákvörðunar ann- arra. Reynsla undanfarinna áratuga Iiefur sýnt, að rík tilhneiging hefur verið til samvinnu fyrir- tækja í stað samkeppni. Hafa fyrirtækin myndað með sér efnahagssamsteypur fyrirtækja í stað samkeppni. Hafa fyrirtækin myndað með sér efnáhagssam- steypur (trusts) eða efnahags- samtök (cartels) til að sölsa und- ir sig einhvers konar einka- söluaðstöðu á markaðinum. í staðinn fyrir verðsamkeppni kemur þá formlegur verðsamn- Framhald á 10. síffu. TUNGUMALANAM NOKKRIR enskir kaupsýslu menn voru staddir í Moskva. Þeir áttu tal við nokkra sov- ézka kolleka sína og undruð- ust hve ágætlega þeim rúss- nesku lék enskt mál á tungu. Og þeir ensku voru leiddir í allan sannleika um- hvernig þeir lærðu ensku þarna austur í Rússíá. Sérfræðingar höfðu valið fá- eina texta, lesið þá inn á seg- ulband og siðan hafði segul- lilllllllIlliiBIlÍllllllllllllllllllllllllíllllíÍIIIIl!líílliMllllll!Ul!!il bandið verið leikið, meðan þeir sváfu. Þó ekki meira en svo, að lesinn var einn kafli, sem var um það bil 35 orð. Er þeir vöknuðu var það nær und- antekningarlaust, að þeir mundu kaflann utan að. En þetta er ekki rússnesk uppfinning og þótt furðulegt megi heita, þá hafa Rússar viðurkennt, að þeir hafi tekið aðferðina upp frá Grikkjum hinum fornu, en þeir höfðu þá aðferð við tornæma nem- H endur, að þeir lásu yfir þeim a í svefni lexíuna frá morgnin- Jf um. Aðferð þessi hefur gefizt vel og rússneskir stúdentar g við málanám hafa óspart not- jgj fært sér þetta. Einn ■ várnagla verður þó að slá: þýðingai’- laust er að leika texta á seg- ulbandi yfir sofanda, nema ulbandi yfir sofanda nema hafi hann ekki lesið áður. iHiiiiiiiwauiiiu&rjniiuuii iinimiiiiiiiiiuiin Útsala Útsalan stendur yfir. — Næstu daga selj- um við talsvert af ágætum fatnaði á mjög hagstæðu verði. Karlmannaföt frá kr. 990,00 — Frakkar frá kr. 600,00 — Buxur, kr. 595,00 — Stakir jakkar frá kr. 500,00. llltima h.f. KJÖRGARÐI — Laugavegi 59 RennismíÖi - Rennismíði Getum bætt við okkur rennismíði. VéEsmiSja Eysteins Leifssonar hf. Síðumúla 17. — Sími 18662. Starfsstúlka óskast Starfsstúlku vantar í eldhús Landspítalans. Upplýsingar gefur matráðskonan í síma 24160. Skrifstofa ríkisspítalanna. Bifreiðaeigendur Bifreiðaverksfæði Tökum að okkur rennslu á breinsuskálum. Véismiðja Eysteins Leifssonar hf. Síðumúla 17. — Sími 18662. HREINLÆTIER HEILSUVERND Frágangsþvottur, blautþvottur, stykkjaþvottur. Tökum einnig fatnað tíl hreinsunar Þvottahúsið EIMIR Síffumúla 4, sínii 31460. — Bröttugötui 3, sími 12428. Útsala í KRON Útsalan heldur áfram í dag og á morgun. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 3. febrúar 1965 $

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.