Alþýðublaðið - 03.02.1965, Síða 7

Alþýðublaðið - 03.02.1965, Síða 7
sem hér er alltof óþekktur ÉG LAS á ný fyrir skömmu Skáldsöguna „Hærværk” eftir Tom Kristensen og þessu sinni í hinu ágæta ritsafni ^Gylden- dals, sem rekur í meginatriðum einstaklingsafrek og samhengi danskra bókmennta. Þá varð mér til þess hugsað, að Tom gerðist sjötugur í hitti fyrra án þess að ég kæmi því við að láta hans gét ið nokkrum orðum. Svo stóð til( að hann yrði gestur listahátíðar innar í vor, en það fórst fyrir og þar með tilefni þess að gera ein- hverja grein fyrir honum. En kannski er betra seint en aldr- ei, þó að þetta verði aðeins sundurleitar hugleiðingar og hann verðskuldi sannarlega skárri kynningu. Danir eru sízt á eitt sáttir um snilli þessa manns. Sumir álíta hann bezta núlifandi ljóðskáld þjóðar sinnar, aðrir vegsama skáldsöguna „Hærværk” öðru fremur Tom Kristensen til frægðar, og naumast leikur á tveim tungum, hvers virði ferða- bækur hans og snjöllustu rit- gerðir og þýðingar séu. Hann er sannkallaður þúsund þjala smið- ur. Ritstörf hans myndu því mörgum íslendingum næsta for- vitnileg. Hann hlýtur að teljast allt of óþekktur liérlendis. En Tom hefur líka góðu heilli slopp- ið við þá ógæfu( að skáldskap hans væri spillt á viðundurslegri íslenzku. Tom Kristensen mun víst kunn astur af skáldsögunni „Hær- værk‘‘ þessari furðulegu dverga- smíð, sem upphaflega kom ýms um harla einkennilega fyrir sjón ir, en hefur nú löngu borið höf- undinum ótvírætt vitni um dirfsku, hugkvæmni og persónu- leika og hlotið merkilega sér- stöðu. Samt er hún ekkert eins- dæmi af hans hálfu. Enginn ræðst til fylgdar við Tom um Ítalíu eða Spán án þess að ferða- bækur hans verði lesandanum ó- gleymanlegar. Helztu ritgerðirn- ar sverja sig í sömu ætt, en eigi að síður þykir mér vænst um ljóð hans, fegurð þeirra og fjölhæfni, þá listrænu vand- virkni. sem þar kennist, óg hversu skóldið liefur jafnt á valdi sínu alvöru og gamansemi. Tom Kristensen er að' sönnu mis- tækur eins og allir miklir af- kastamenn, en þvílík snilld og unun, þegar honum tekst upp! Maðurinn hefur og margt lifað, fæddist í Lundúnum, ólst upp í Danmörku og lauk þar háskóla- námi, en lagði svo stund á sitt af hverju, varð kennari, blaða- maður, víðförli, þýðandi, skáld og rithöfundur. Líferni hans var slíkt, að hann blótaði flesta guði, og enn vex honum varla í aug- um að bregða á leik eða ráðast í erfiði. Hann er engum öðrum líkur að sjá eða heyra. Návist hans á fundum dómnefndarinn- ar, sem úrskurðar bókmennta- verðlaun Norðurlandaráðs, verð- ur mér áreiðanlega rík í minni. Hann brá „stórum svip yfir dá- lítið hverfi” bæði í Stokkhólmi og Kaupmannahöfn, hvort held- ur var við umræðurnar og at- kvæðagreiðsiurnar eða máltíð- irnar. Nú mætir hann ekki fram- ar á þeim málþingum, læzt vera gamall, en þætti þar vafalaust yngstur í andanum. Þá gef ég Tom Kristensen orðið. Fyrsta ljóðabók hans hét „Fribytterdrpmme” * og hafði að geyma kvæðið Berserkjabrag, sem Magnús heitinn Ásgeirsson þýddi af undraverðri íþrótt: Það skein í Bæheimsbyggðum einn bær með háa turna, með hundráð háa turna og hallir eins og stóð, og kát og fjörug fljóð og fullan bæjarsjóð. Ein liáborg hundrað turna, sem hreint í gulli óð. Það sat í Bæheimsbyggðum einn berserkur með sveina, með þúsund svakasveina, en sáralítið gull. En pyttlan fæst ei full, ef fólkið vantar gull, og þúsund svakasveina, þá sefar ekkert bull. í Bæheimi var barizt, og berserkurinn gamli, ' hann réðst með brauki og bramli á borgarkastalann, og blóð um rústir rann, og ráðið inni brann, og fólk í fleinasvamli til fjandans sendi hann: Það skein í Bæheimsbyggðum einn bær með helga turna. Um hærri helgiturna menn höfðu aldrei spurn. í blossum báls hver turn þar brast sem eggjaskurn, og þegar heim þeir héldu, var hvergi nokkur turn. Hjá Mikjálsmunkum fundu þeir mikinn fjölda af kistum og fundu í fjölda af kistum i fjölda af kistlum gull og klausturkerin full með klerkamjöð og gull, en þegar heim þeir héldu, var hvergi nokkurt gúll. Þeir hittu að húsabaki á hóp af fríðum meyjum, af þrýstnum, þýðum meyjum, — og þá hljóp djöfsi í spil. Við loga og baugabil hver berserkur fékk yl, en þegar heim þeir héldu, var hvergi meyja til. Og þegar heim þeir héldu frá háborg glæstra turna, frá háborg hundrað turna, var hvergi nokkur turn, var livergi nokkurt gull, var hvergi nokkur mær, og þegar heim þeir héldi, var hvergi nokkur bær. Til samanburðar læt ég fyljgja næst síðasta erindið á frúm- málinu og spyr svo, hvort ætlazt verði. til nákvæmari og snjjpll- ari túlkuhar: 1 De fandt í snævre Gyder en Hoben smækre Tpse, en Hoben lækre Tpse, og saa var Fanden lps. Hver Lanseknægt, som frps,1 blev hed af Brand og T0s. Men der de drog fra Byefi, saa var der ingcn T0s. , ; Síðasta ljóðabókin, sem Topy Kristensen hefur látið frá sér fara, „Den sidste Lygte,” endar þannig, og nú kemur til söguiih- ar danska, þar sem meistaralega er kveðið: ol Begik ,du Livct, y- bedrev du Livet, som det er givet, du bpr og gpr, saa er det givet, at alt i Livet, — det blev dig givet, fordi du tpr. 1 For alt i Livet, som blev dig givet, er Lys og M0rke Framhald á 13. síðu. !l!llliil!i), □ □□□□□ í FORYSTUGREIN Alþýðu- ijiannsins, blaðs jafnaðar- manna á Akureyri eru land- búnaðarmálin rædd fyrir skömmu. í lok greinarinnar segir: Vér viljum leggja þessi at- riði fram í umræðurnar: 1. Landbúnaðurinn á hvorki að vera hornreka né eftirlæti ríkisfyrirgreiðslu. Hann á hvorki að skoðast sem vand- ræðabarn né eftirlætissonur, heldur blátt áfram jafnréttis- atvinnuvegur við aðra höfuðat- vinnuvegi landsmanna: sjávar- útveg, iðnað, verzlun og sigl- ingar. 2. Lífskjör manna og lífs- þægindi eiga að vera sambæri- leg við landbúnað og við aðrar atvinnugreinar. 3. Gera þarf heildaráætlun um, hvernig svo megi vera, án þess að landbúnaðurinn verði ómagi á öðrum atvinnu- greinum og þó að það verði aíltaf matsatriði, má ekki skirr ast við að horfast í augu við þann vanda, svo sem hve langt skal teygja vegi, síma og raf- magn um strjálbýli. 4. Endurskoða verður þátt verðlags landbúnaðarvara í kaupgjaldsvisitölu með það fyr- ir augum, að draga úr deil- um þar að lútandi. Má í því sambandi vekja athygli á, hvort ríkisvaldinu væri ekki hollt að skoða betur niður í kjölinn áburðarverð til bænda og verð á fóðurvörum. Þessir punktar verða að sinni látnir nægja, en að lok- um undirstrikað, að vér meg- um ekki halda áfram að deila um keisarans skegg í svo þýð- ingarmiklu máli sem framtíð landbúnaðar er og farsæll rekst ur hans. Allir virðast í raun sammála um, að þar þurfi að stokka upp og gefa á ný, og skiptir þá höfuðmáli að það sé gert af einlægum umbótavilja en ekki pexi um það, hver græði á hverjum og hver hlunnfari hyern. i Sllllllllllllll Sýnir í Bogasalnumi Reykjavík, 29. jan. - OÓ EYBORG Guðmundsdóttir opnar í dag málverkasýningu í Bogasal Þjóðminjasafnsins. Er þetta fyrsta sjálfstæða sýning hennar og jafn- framt í fyrsta sinn sem hún sýnir myndir sínar hér á landi en hún hefur tekið þátt í mörgum sam- sýningum erlendis, aðallega í Frakklandi. Eyborg hefur stundað nám í Frakklandi síðan árið 1960 og auk þess- farið í námsferðalög til margra Evrópulanda. Á sýningunni í Bogasalnum eru 35 olíumyndir og nokkrar klipp- myndir og teikningar. Þess tná geta að sýningaskráin er óvenju vel úr garði gerð, með mörgum myndum og tveim stuttum grein- um um list Eyborgar. i ; l Sýningin verður opin frarn yfir næstu helgi. - , ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 3. febrúar 1965 J

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.