Alþýðublaðið - 11.04.1965, Side 3
NNTASKOLARNIR VEROA 6
FRÁ ÍSAFIRÐI
FRUMVARP til laga um að
fjölga menntaskólunum upp í
sex liggur nú fyrir alþingi, eins
ög Alþýðublaðið hefur óður
grei’nt frá.
Efnisgrein frumvarpsins hljóð-
ar svo:
1. gr.
„Menntaskólar skulu vera sex,
tveir í Reykjavik, einn á Akur-
eyri, einn að Laugarvatni, einn
á Vestfjörðum og einn á Austur-
landi . Menntaskólarnir utan
Reykjavíkur skulu vera heima-
yistarskólar. Menntaskólana á
Vestfjörðum og Austurlandi skal
stofna, þegar fé er veitt til þess
í fjárlögum. Einnig skal, þegar
fé er til þess veitt í fjárlögum,
heimilt að stofna fleiri mennta-
skóla í Reykjavík eða nágrenni.
Heimjlt er menntamálaráðuneyt-
inu að koma á fót kennslu í náms
efni 1. bekkjar menntaskóla við
gagnfræðaskóla, þar sem nem-
endafjöldi og önnur skilyrði gera
slíka róðstöfun eðlilega og fram
kvæmanlega. Er þá ráðuneytinu
heimilt að setja reglur um þetta
skólahald, þ- á. m. skilyrði um
lágmarkstölu rfemenda í hverjum
bekk. Heimilt skal að koma fram-
angreindum menntaskólum á fót
í áföngum, bæði að því er varðar
kennslu og bygging liúsnæðis
fyrir þá.
Kostnaður við stofnun og rekst
ur menntaskóla greiðist úr ríkis-
sjóði, svo og kostnaður við
menntaskóladeildir, er komið
kann að verða á fót við gagn-
ffæðaskóla samkvæmt lieimild
þessarar lagagreinar.
Greinargerð við frumvarpið er
svo hljóðandi:
„í 1. gr. laga nr. 58/1946, um
rsenntaskóla, segir, að mennta-
skólar séu tveir. annar í Reykja-
vík, en hinn á Akureyri, og að
stofna skuli hinn þriðja í sveit,
þegar fé sé veitt til þess í fjár
lögum. Samkvæmt þessum ákvæð
um eru nú þrír menntaskólar
starfandi, 1 Reykjavik, á Akur-
eyri og að Laugarvatni, en sá
skóli var stofnaður árið 1953
samkvæmt heimild í nefndum
lögum. Auk þessa er svo lærdóms
deild við Verzlunarskóla íslands
í Reykjavík, sem starfar sam-
kvæmt reglugerð nr. 95 frá 5.
nóvember 1942.
Með frumvarpi þessu er lagt
til, að menntaskólum verði nú
þegar fjölgað um einn í Reykja-
vík og heimild veitt til að stofna
heimavistarmenntaskóla á Vest-
fjörðum og á Austurlandi, þegar
fé er veitt til þess í fjárlögum.
f>á er einnig veitt heimild til,
,þegar Alþingi veitir til þess fé,
að stofna fleiri menntaskóla í
Reykjavik eða nágrenni. Enn
fremur er menntamálaráðuneyt-
inu heimilað að koma á fót
kennslu í námsefni 1. bekkjar
menntaskóla við gagnfræðaskóla,
þar sem nemendafjöldi og önnur
skilyrði gera sl(ka ráðstöfun eðli
lega og framkvæmanlega. Jafn-
framt er menntamálaráðuneytinu
veitt heimild til að setja reglur
um þetta skólahald, þ. á m. skil-
yrði um lágmarkstölu nemenda.
Ætlazt er til, að heimilt sé að
koma framangreindum mennta-
skólum á fót í áföngum, bæði að
því er varðar kennslu og bygg-
ingu húsnæðis fyrir þá.
í lok síðustu heimsstyrjaldar
var nemendafjöldi menntaskól-
ans í Reykjavík rúmlega 300, en
nú er hann rúmlega 900. Þessi
mikla nemendafjölgun hefur átt
sér stað á sama tíma og byggt hef
ur verið heimavistarhús við
menntaskólann á Akureyri,
menntaskóli hefur verið stofnað-
ur að Laugarvatni og lærdóms-
deild við Verzlunarskóla íslands
í Reykjavík.
Ríkisstjörnin markaði á sínum
tíma þá stefnu, að menntaskóli
skyldi framvegis vera í Reykja-
vík á núverandi skólastað rið
Lækjargötu, en að jafnframt yrði
byggður annar menntaskóli í
Hamrahlið. Var síðan hafizt
handa um skipulagningu svæðis-
ins umhverfis gamla mennta-
skólahúsið, og er miðað við að
menntaskólanum verði í framtíð
inni ætlað allt svæðið milli Lækj
argötu, Amtmannsstíg, Þingholts
strætis og Bókhlöðustígs, að frá
teknu nokkru belti vegna húsa-
raðar við Þingholtsstræti. Hefur
nú verið byggt og tekið í notkun
kennsluhúsnæði rétt hjá gamla
skólahúsinu. Er þessi nýbygging
raunar stærri að rúmmáli en
gamla skólahúsið eða 5000 ten-
ingsmetrar, en gamla skólahúsið
er 4450 teningsmetrar. Hið nýja
húsnæði er fyrst og fremst ætl-
að til kennslu í sérgreinum, þ. e.
náttúrufræðigreinum, efnafræði,
eðiisfræði og kennslu í tungu-
málum og miðað við, að þarna
verði hægt að beita nýjustu
tækjum og aðferðum í þessum
kennslugreinum. Þá hefur verið
hafizt handa um undirbúning að
byggingu menntaskólahúss við
Hamrahlíð. Hefur teikning verið
gerð að húsinu, og er miðað við
að byggja það og taka í notkun
í áföngum. Er stefnt að því, að
sex kennslustofur verði byggðar
í sumar og teknar í notkun haust
ið 1965. Lýtur það frumvarp, sem
hér er flutt, m. a. að því, að hinn
nýi menntaskóli verði sérstök
stofnun.
Þá hefur verið ákveðið að
stækka Menntaskólann að Laug-
arvatni í áföngum á fimm árum
þannig, að nemendur verði 200,
en nú eru þeir um 100. Næstu
byggingarframkvæmdir við
Menntaskólann að Laugarvatni
eru heimavistir þær, sem á vant-
ar til þess, að skólinn verði 200
neinenda skóli. Síðan verði
kennslurými aukið svo, að komizt
verði hjá tvísetningu í skólan-
um. Menntaskóli má ekki vera
minni en 200 nemenda skóli til
þess að starfsemi hans verði eðli-
leg og með hagkvæmum hætti,
t. d. um nýtingu kennslukrafta.
Þótt byggt hafi verið fyrir
skömmu heimavistarliús við
Menntaskólann á Akureyri, þá
þarf að horfast í augu við, að
Framhald á 13. síðu
WKk
FLÝGUR FISKISAGAI
1200 mála kast?
14 pokar í hali?
Nei, — ná
talar allur flotinn.
um vorfargjöld
Flugfélagsins.
Flugfélagið býður 25°fo afslátt af
fargjöldum til 16 borga í Evrópu í vor.
Leitib upplýsinga um lágu fargjöldin
hjá FlugféLaginu eða ferðaskrifstofum
h/ldíj
J/F
ICEL-AJVÆDAIJRl
er flugfélag íslands
ALÞÝÐUBLAÐIÓ - 11. apríl 1965 3