Alþýðublaðið - 11.04.1965, Qupperneq 14
yrig*-
Ég hef verið að velta fyr-
Ir mér binni æðri pólitík í
heiminum og komizt að eftir
farandi niðurstöðu:
★ Sósíalismi: Þú átt tvær
kýr og gefur nágranna þín
um aðra.
★ Kommúnismi: Þú átt
tvær kýr og stjórnin tekur
þær báðar og gefur þér
mjólkina.
★ Fasismi: Þú átt tvær kýr
stjórnin tekur þær báðar og
selur mjólkina bína.
★ Nazismi: Þú átt tvær
kýr, stjórnin tekur þær báð
ar og skýtur þig.
★ Kapitalismi: Þú átt tvær
þýr, selur aðra og kaupir
þér naut.
Kvenfélag Bústaðasóknar býður
Ðræðrafélagi Bústaðasóknar til
sameiginjegs fundar í Réttarholts
skólanum Mánudagskvöld kl. 8.30.
Stjórnin.
MESSUR
Dómkirkjan. Messa kl. 11 f. h.
sr. Jón Auðuns. Ferming kl. 2 e. h.
sr. Óskar J. Þorláksson. Barna-
sámkoma kl 11 f. h. að Fríkirkju-
vegi 11. sr. Óskar J. Þorláksson.
Neskirkja. Ferming kl. 11 f. h.
Ferming kl. 2. e. h. sr Jón Thor-
arensen.
Hallgrímskirkja. Barnaguðsþjón-
usta kl. 10 f. h. Messa kl. 11 f. h.
sr. Sigurjón Þ. Árnason.
Háteigsprestakall. Fermingar-
messa í Fríkirkjunni kl. 11. f. h.
sr. Jón Þorvarðsson. Bamasam-
köma í Sjómannaskólanum kl.
10.30 f. h. sr. Arngrímur Jónsson.
Bústaðaprestakall. Barnasam-
koma í Réttarholtsskóla kl. 10.30
f. h. Fermingarmessa í Langholts-
kirkju kl. 4 e. h. sr. Ólafur Skúla-
son.
Grensásprestakall. Breiðagerðis
skóli. Barnasamkoma kl. 10.30 f. h.
Messa kl. 2 e. h sr. Felix Ólafsson.
Áspreslakall. Barnasamkoma kl.
10 f. h. í Laugarásbíói. Fermingar-
guðsþjónusta kl. 2 e. h. í Laugar-
neskirkju. sr. Grímur Grímsson. I
Laugarneskirkja. Messa kl. 10.30
f. h. Ferming, altarisganga. sr.
Garðar Svavarsson.
Elliheimilið Grund. Kl. 2 e. h.
messar sr. Björn O. Björnsson. —
Heimilispresturinn
Kópavogskirkja. Fermingar-
messur kl. 10.30 f. h. og 2 e. li. —
sr. Gunnar Árnason.
Hafnarfjarðarkirkja. Messa kl.
2 e. h. Ferming. sr. Garðar Þor-
steinsson.
Frikirkjan í HafnarfirðL Messa
kl. 2 e. h. Ferming. sr. Kristinn
Stefánsson.
Frikirkjan í Reykjavík. Kristni-
Sýning Heimllisiðnaðarfélags
íslands er opin daglega frá kl.
2-10 í Bogasal Þjóðminjasafnsins.
Minningarspjöld Flugbjörgunar
sveitarinnar, fást á eftirtöldum
stöðum; Bókabúð Braga Brynjólfs
sonar. Sigurði M. Þorsteinssyni
Laugainesveg 43, Sigurði Waage
Laugarásvegi 73, Stefáni Bjarna-
syni Hæðargarði 54 og Magnúsi
Þorsteinssyni, Álfheimum 48.
Sunnudagur 11. apríl
Pálmasunnudagur
8.30 Létt morgunlög.
8.55 Fréttir — Útdráttur úr forustugreinum dag-
blaðanna.
9.10 Gestir í útvarpssal: Stross-kvartettinn frá
Múnchen
9.25 Morguntónleikar.
11.00 Messa í Dómkirkjunni
Prestur: Séra Jón Auðuns dómprófastur.
Organleikari: Dr. Páll ísólfsson.
12.15 Hádegisútvarp.
13.20 Ævintýrið í Vesturdal; fyrri hluti
Árni G. Eylands flytur hádegiserindi: Upphaf
félagsins Norsk Hydro,
14.00 Miðdegistónleikar.
15.30 Kaffitiminn.
16.30 Veðurfregnir. — Endurtekið efni:
a. Margrét Bjarnason spjallar við Ásgerði
Ágústsdóttur um lifnaðarhætti í Alsir. (Áð-
ur útv. 28. jan. s.l. í þættinum „Við, sem
heima sitjum”).
b. Sinfóníuhljómsveit íslands leikur tvö ís-
lenzk tónverk undir stjórn Páls Pampichlers
Pálssonar.
c. Ólafur Gunnarsson sálfræðingur flytur er
indi um starfsfræðslu (Áður útv. 19. f.m.),
17.30 Barnatími: Anna Snorradóttir stjórnar.
18.30 Frægir söngvarar: Beniamino Gigli syngur.
18.55 Tilkynningar.
19.20 Veðurfregnir. — 19.30 Fréttir.
20,00 Upphaf mannúðarstefnu
Halldór Laxness rithöfundur flytur síðara
erindi sitt.
20.40 Kaupstaðirnir keppa:
Síðari hluti undanúrslit: Sauðárkrókur og
Siglufjörður.
Birgir ísleifur Gunnarsson og Guðni Þórðar-
son stjórna keppninni
Gunnar Eyjólfsson kynnir.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 í'þróttaspjall
Sigurður Sigurðsson flytur.
22.25 Danslög, valin af Hreiðari Ástvaldssyni dans-
kennara.
23n.30 Dagskárlok,
í kvöld kl. 20 00 flytur
Halldór K. Laxness
síðara hluta erindis
síns. Erindið nefnir
hann Upphaf mann-
úðarstefnu.
Ég elska náungann.
Þjóð mína elska ég afarheitt,
og einkum ef aS ég kemst í feitt.
Ég legg á náungans bakið breitt
mínar byrðar — og geri alls ekki neitt.
Kankvís.
Skrílslœti á
bítlakonsert
Kaupmannahöfn, 10. apríl
(NTB . Ritzau)
Svokallaðir „gaddavírs-tónleikar”
í hljómleikasalnum í Tívolí í gær-
kvöldi leiddu til árása á lögreglu-
menn og starfsmenn Tivoli. Lög-
reglan handtók 18 unglinga.
Þegar tónleikunum lauk laust
fyrir miðnætti ríkti mikil æsing í
salnum og áheyrendur ruddust upp
á leiksviðið. Lögréglan og starfs-
fólk reyndu að fá unglingana til
að yfirgefa salinn, en fengu ekki
við neitt ráðið.
Ráðizt var á einn lögreglumann
og nokkra úr starfsliðinu og marg-
ir unglingar unnu skemmdarverk
á húsinu. Tjónið er metið á um
50 þús. danskar krónur. Lögreglan
beitti kylfum gegn unglingunum,
en þeir grýttu lögreglumennina.
Rúður brotnuðu og margir meidd-
ut.
Lögreglan yfirheyrði hina 18
handteknu og voru þeir síðan
sendir heim til sín. Einn þeirra er
ákærður fyrir skemmdarverk
„Gaddavírskonsert“ er sú teg-
und dægurlagatónlistar, sem The
Beatles og The Rolling Stones eru
Kvikmyndir Ósvalds Knudsen hafa að undanförnu verið sýndar við
góða aðsókn í Gamla bíói. Myndirnar eru þrjár — Surtur fer sunn-
an — Sveitin milli sanda — og Svipmyndir. Allar myndirnar hafa
vakið verðskuldaða atliygli, enda fallegar og frábærar heimildar-
myndir unnar af vandvirkni. — Nú fer hver að verða síðastur að
sjá myndir Ósvalds, en fáar sýningar eru eftir. Er fyllsta ástæða
að hvetja fólk til að sjá myndirnar áffur en það er um seinan.
Norðaustan gola, síðan stinningskaldi, skýjað með
köflum. í gær var austan eða norðaustan átt á
öllu landinu. í Reykjavik var sunnan kul, hiti 4
stig, bjartviðri.
Á móti hverri skvisu sem
gerir mann að fifli, er
önnur, sem gerir manu
úr fífli ....
'Í4 11. apríl 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ