Alþýðublaðið - 29.04.1965, Blaðsíða 2
1
■ttatjörar: Gylfl Grondal (ftb.) og Benedlkt GröndaL — Kttstjömarfull-
•'ffi : Klöur GuOnason. — simar: 14900-14903 — Augiyslngaslml: 149M.
(Jtgefandi- AlMÐuflokkurlnn
AOseuir: Alþjouimsta vlB Hverflsgötu, Reykjavlk. — Prentsraioja Alþyöu-
luaosffis. — Askrutargjald kr. 80.00, — I lausasölu kr. 5.00 elntaklO.
Verkamannabústaðir
ALÞINGI samþykkti fyrir nokkrum dögum ný
lög um verkamannabústaði. Ein af breytingunum,
sem felast í nýju lögunum, er sú, að tekju- og
eignamörk hafa verið rýmkuð þannig, að fleiri
eiga þess nú kost en áður að njóta hinna hag-
kvæmu kjara, sem verkamannabústaðakerfið býð-
ur. Þá voru lánin um leið hækkuð mjög verulega
frá því sem áður var og nokkrar fleiri breytingar
gerðar. Ekki hefur verið hægt að fullnægja öllum
umsóknum, sem borizt hafa um lán úr Byggingar-
sjóði verkamanna, því eftirspum eftir lánum þar
hefur ekki verið minni en eftir öðrum lánum til
íbúðabygginga. Þrátt fyrir þetta þótti enn ástæða
til að rýmka tekjumörkin, en Emil Jónsson, félags-
málaráðherra, tók fram í ræðu, sem hann hélt á A1
þingi við lokaafgreiðslu laganna, að sjálfsagt væri
og eðlilegt að afgreiða fyrst allar lánsumsóknir,
sem fullnægja tekjumörkunum, er vom í gildi,
áður nýju ákvæðin koma til framkvæmda.
Verkamannabústaðakerfið hefur gegnt þörfu
hlutverki í þjóðfélaginu, sem seint verður full-
* metið. Fyrir fulltingi þess hafa hundruð fjöl-
skyldna eignazt eigin íbúðir af hóflegri stærð. Ef
hinna hagkvæmu lána kerfisins hefði ekki notið
' við má fullyrða, að flest af því fólki, sem í verka-
mannabústöðum býr, mundi búa í Ieiguhúsnæði og
aldrei hafa eignazt eigin íbúð.
Alþýðuflokkurinn beitti sér fyrir því að bygg
ingar verkamannabústaða hófust. Forystumönnum
Alþýðuflokksins hefur alla tíð verið ljóst mikil-
<vægi þess, að þeir sem minna mega sín séu að-
stoðaðir í lífsbaráttunni. Undir forystu Alþýðu-
flokksins hefur verkamtmnabústaðakerfið vaxið
og dafnað. Kappkostað er að láta kerfið svara kröf-
! luni tímans, og mun flokkurinn í framtíðinni sem
áður standa dyggilega vörð um hagsmuni hinna
lægst launuðu í þjóðfélaginu.
Hernámsandstæðingar
ÖÐRIJ hverju heyrist skræmta úr búðum her
! námsandstæðinga, þótt starfsemi svokallaðra sam
taka þeirra liggi dauð að mestu allan ársins hring.
í fyrra var því lýst yfir með pomp og pragt, að
' íslenzkir hernámsandstæðingar hygðust hafa sam-
starf og samband við hernámsandstæðinga í öðr-
um löndum.
Alþýðublaðið spyr nú enn: Hvemig gengur
zslenzkum hernámsandstæðingum samstarfið við
hernámsandstæðinga til dæmis í Austur-Þýzka-
' landi, Ungverjalandi eða Tékkóslóvakíu? Fróðlegt
' væri að fá nánari fregnir þar af og væntanlega
stendur ekki á svörum.
m
ÞEGAR TVEIR FLUGMENN
voru að tala í símann fyrir nokkr
um dögum, kom stúlkurödd skyndí
legra inn í linuna og sagði: ,Loft
Ieiðir góðan daginn". Það sló
þögn á flugmennina og hræði-
legur grunur greip þá heljartök
um. Þeir þóttust sannfærðir um,
að erkifjandi þeirra, atvinnurek
andinn .hleraði símtöl þeirra,
njósnaði um þeirra hernaðarað-
gerðir og hefði jafnvel gert um
sinn. Við svo búið mátti ekki
standa svo að þeir kærðu til saka
dómaraembættisins, sem hóf þegar
rannsókn og upplýsti, að atlt þetta
hefði verið „eðlilegt".
ÞAÐ ER GOTT NOKK að segja
að svonalagað sé eðlilegt- Satt er
það, að þetta er ekki óvenjulegt.
Fyrir fáum dögum reyndi ég hvað
eftir annað að ná sambandi við
númer kunningja míns, en ég fékk
ekki hringingarsón og beið- AUt
í einu fóru tveir menn að tala
saman. Þeir voru báðir þreytu
legir í málrómnum. Mér skildist
að annar væri útgerðarmaður en
hinn einhvers konar verkstjóri
hans.
VERKSTJÓRINN bar sig aum
lega: , Ég fæ bara ekki nokkum
kjaft", sagði hann. „Ég er bók-
staflega búinn að gera allt, sem
í mínu valdi stendur, en það þýð
ir ekkert að bjóða mönnum þetta
kaup nú á tímum. Ég hætti því
bara- Ætli sé ekki bezt að þú
leUÐIR
BIFREIÐIR
HÚSBÍJNAÐUR
ALLT EFTIK EIGIN VALI VIMNENDA
AÐALVINNINGUR ARSINS
KIMlVLISHOS AÐ I.IXDAKÍ'LÖI 32, GAKDAHREPPI
24DD
STDRUINNING3R
l••llllll■lllllllllllllllllllllll•ll■ill■■llllla
jg Símahlerunin reyndist „eðlileg".
jg Hlustað á táknrænt samtal í sima.
jr Að hlaupa sig móða eftir fluguin.
jf Um tryggingar á bifreiðum.
reynir að finna annan, því ég get
ekki meir."
„NEI, ÞAÐ VIL ÉG EKKI taka
í mál,“ sagði útgerðarmaðurinn-
„Það væri að gera illt verra. Þú
verður bara að bjóða hærra kaup
Það dugar ekki annað. Annars
veit ég það að allir taxtar eru
foknir út í veður og vind, og ég
held að fólk yfirleitt átti sig alls
ekki á því, hvað bónuskerfi er.
Það heldur jafnvel að í því sé
fólgin einhvers konar blekking-
Blessaður góði haltu áfram að
reyna."
bræðurnir og ég lagði símann á.
bræðurnr og ég lagði simann á.
Vitanlega á maður ekki að vera
að hlusta á svona samtöl í síman
ura( en ekki ruddist ég inn í það,
það var símabilunin sem átti alla
sök- Það var eiginlega vegna þreyt
unnar í röddum beggja mannanna
að ég hlustaði í stað þess að leggja
tólið á. — Enda má segja, aff sam
talið hafi verið tímanna tákn- Það
er næstum því broslegt að vita
það, að nú standa fyrir dyrum
miklar la-unadeilur um taxta, sem
eru í raun og veru ekki til. Ær5
ir hlaupum við okkur móða eftip
flugum. !
i
BIFREIÐAEIGANDI skrifar:
„Undanfarið hefur verið mikiff
rætt um bifreiðatryggingar. ÞaS
er svo sem ekki tiltökumál eftir
að tryggingarfélögin hafa tilkynnt
stórfelldar hækkanir á öllum trygg
ingargjöldum. Með stofnun hins
nýja tryggingarfélags FÍB mua
fást úr því skorið hvort hækkun
in hefuv haft við rök að styðjast
Ef til vill munu tryggendur hjá
því félagi gæ*a betur að í umferff
inni, því '?ð þeir eiga tryggingar
félagið siálfir, en á það hefur
sannar^ega viliað skorta til þessa
Væri þá og nokkuð unnið-"
Eyjóifur K. Sigurjónsson
Raf nar L Magnússon
Löggriltir endurskoðendur
Flókagötu 65, 1. hæð, siml 17901
Áöalíundur
Fasteignalánafélags
Samvinnumanna
verðtir haldinn í Keflavík, föstudaginn 21
maí ’65 kl. 2 e. h.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
STJÓRNIN.
Abalfundur
Samvinnutrygginga
verður haldinn í Keflavík, föstudaginn 21.
maí ’65 kl. 2 e. h.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
STJÓRNIN.
ABalfundur
Líftryggingafélagsins Andvöku
verður haldinn í Keflavík, föstudaginn 21.
maí ’65 kl. 2 e. h.
Dagskrá:
Venjuieg aðalfundarstörf.
STJÓRNIN.
j2 29. apríl 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ