Alþýðublaðið - 29.04.1965, Blaðsíða 6
Bondbíllinn
laðaði
HINNI mi'klu bílasýningu í
New York er nýlokiS og allt
fram á síðustu stund stóðu
jnenn í biðröðum til að skoða
James Bond-bílinn — Aston
Martin bílinn, sem notaður
var í kvikmyndinni Goldfing-
er. Bíll þessi, sem er méð
innbyggðum byssum, sætis-
vörpu, rnnbyggðum hnífum
til að skera dekk á öðrum bíl-
um o. fl., var aðalaðdráttar-
afl sýningarinnar.
Annars gerðu framleiðend
ur annarra bíla kröfu til að
vera taldir þeir, sem helzt
löðuðu menn að, en hvernig
sem það nú er, þá virðist aug
ljóst, að allir hafi „gert góð-
an bissness" á sýningunni,
og er búizt við, að bílar verði
á þessu ári fyrir 150 millj.
dollara á sýningunni, sem
mun vera 25% meira en í
fyrra.
ÞAÐ stóð maður á járnbrautar-
palli og bei.ð eftir lest. Lestinni
seinkaði og maðurinn varð gram-
ari og gramari eftir því sem hann
beið lengur, þar til hann að síð-
ustu snaraðist að stöðvarstjóran-
um og sagði:
— Of seinn í dag aftur? Til
hvers eru járnbrautirnar að hafa
áætlanir?
— Tja, sagði stöðvarstjórinn —
ef allar lestir væru á réttum
tíma, til hvers væru þá biðsal-
irnir?
. $
Sovézki vísindamaðurinn Lev
Mi'sjurin frá Norilsk er senni-
lega eini maðurinn, sem etið hef
ur kjöt af mammút, er lifði fyr
ir mörg þúsund árum. Nokkrir
fiskimenn fundu mammútinn í
hinni gegnfrosnu jörð við ána
Pjasina í Síberíu í grennd við
Norilsk. Mitsjurin féll fyrir freist
ingunni að smakka á kjötinu, skar
sér bita og steikti hann. Honum
og minna einna helzt á nautakjöt.
fannst hann bragðast ágætlega
Brezka kvikmyndaleikkonan
June Wilking on — 25 ára göm
ul —hafði saksótt útgófufyrir
tæki eitt og heimtað nálega 10
milljónir króna í skaðabætur fyr
ir leyfislausa birtingu á opinská
um myndum af henni.. Sátt hef
ur nú náðst í mállinu og hefur
June látið sér nægja að fá rúm
ar 3 milljónir í skaðabætur.
OG SVO VAR ÞAÐ . : .
konan, sem sótti um stöðu í
fjármálaráðuneytinu og taldi það
sín beztu meðmæli til starfans,
að hún hefði alltaf haft ánægju
af að hafa mikið fé undir hönd-
um.
Kvikmyndaleikkonan Elizabeth Taylor er mikil bjórkelling og
Iætur gjarna senda sér góffan miff-evrópskan bjór yfir Atlants-
haf, þegar liún er vestan þess. Um daginn kom hnn til Garmisb
í Vestur-Þýzk alandi, þar sem veriff er aff taka krikmyndina
„The Spy Who Came in from the Cold“ — effa njósnarinn, sem
koin inn úv kuldanum. Ekki leikur hún sjálf í myndinni, heldur
ma lur hennar, Richard Burton, og hann var hún aff heimsækja.
Hún lét ekki hjá líffa aff bragða á hinum bæjerska bjór á
meöan hún stóff viff, eins og sjá má á myndinni.
■Ilílllllllllllll
Feguröardís frá
aldamótunum
HINN ákafi andstæðingur dr. Erhards kanzl
ara í vestur-þýzka þinginu, dr. W. Stam-
berger, hefur gefið þessa vægast sagt hörðu
lýsingu á „der Dicke":
— Pólitík dr. Erhards minnir mig mest á
deig. Hún er alveg eins lin og lagast alltaf
eftir utanaðkomandi áhrifum.
— ★ “
MARIA FREIHARDT, 66 ára gömul kona frá Baden, komst að því full-
keyptu, er hún var á ferð í Vínarborg fyrir skemmstu. Er hún ætlaði
aff ganga yfir götu eina, rann hún til á hálku og meiddi sig illa. En
rétt er hún var að komast á fæturna aftur kom bíll fyrir hornið, og
þótt bílstjórinn hemlaði, tókst honum ekki að komast hjá því að.
rekast lítillega á konuna, sem hlaut af því smávægileg meiðsl í viðbót.
Nokkrum minútum seinna kom svo sjúkrabíllinn, en bílstjóri
hans missti stjórn é bifreiðinni og rakst bíllinn á vesalings konima,
sem sat á gangstéttarbrúninni og þá hlaut hún verstu meiðslin.
— ★ “
FIDEL CASTRO á Kúpu hefur nú komizt
að þeirri niðurstöðu, að eiginlega sé kúa-
rekstur kvenmannsverk — og því hefur
hann sett 3000 kúbanskar blómarósir í læri
sem kúreka og hyggst þar með losa sömu
tölu karlmanna til erfiðari starfa.
~ —
LINO Ventúra, sem hingað til hefur verið þekktur sem reiði maður-
inn í frönskum kvikmyndum, ó nú að fá stærsta og bezta hlutverk sitt.
Jean Delannoy hefur ráðið hann til að leika aðalhlutverkið í tólftu
kvikmyndinni, sem gerð er eftir „Vesalingum" Victors Hugo. í Frakk-
landi hafa Harry Bf.ur (1934) og Jean Gabin (1957) leikið hlutverkið
í kvikmyndum. Annars á þessi nýja mynd að verða í litum og verður
einhver mesta stórmynd, sem yfirleitt hefur verið tekin í Frakklandi.
BAK VID TJÖLDIN
CAROLINE OTERO, sem gekk
undir nafninu „La Belle Otéro“
— hin fagra Otéro — og var ein-
hver fegursta, dáðasta og bezt
heppnaða gleðikona Frakklands á
árunum fyrir fyrri heimsstyrjöld-
ina, dó fyrir skemmstu ' Nice í
blíðu hennar og greiddi ótæpi
lega fyrir. Mestu af auð sínum
tapaði hún við spilaborðin á Ríví-
erunni, einkum í spilavítinu í
Monte Carlo. Skýrðu spilastjórn-
endurnir (Croupiers) svo frá, að
komið hefði fyrir, að hún hefði
Þessi mynd var tekín nýlega af Carline Otéro í Nice. Hin myndin
til hliðar var af henni um aldamótin.
Frakklandi, 97 ára gömul og dán-
arorsökin var hjartabilun. Augus
tine Otéro, sem alltaf kallaði sig
Caroline, fæddist í Cadiz á Spáni,
en bjó í 75 ár í Frakklandi.
Starfsævi sína hóf hún á sið-
ustu árum 19. aldar, og rúss-
nesklr stórfurstar, brezkir aðals-
menn og milljónungar alls staðar
að úr heiminum, sóttust eftir
tapað hundruðum þúsunda gull-
franka á kvöldi.
Svo kom fyrri heimsstyrjöldin,
sem fór alveg með evrópska aðal
inn og rúði viðskiptavini La Belle
Otéro svo til inn að skyrtunni.
Með árunum hvarf fegurð henn-
ar og hún dró sig í hlé í litla
íbúð við Rue d’Angleterre í Nice.
Þar Iifði hún svo það, sem eftir
var lífsins, umkringd hinum
ákjósanlegri minjagripum lífs
sins.
Eftir síðari heimsstyrjöldina
var gerð kvikmynd um l!f henn-
ar, sem nefndist „La Belle
Otéro“, og það fé, sem hún fékk
frá framleiðendum myndarinnar,
gerði henni kleift að lifa tiltölu-
lega þægilegu lífi síðustu árin.
Konan, sem allt hafði snliizt
um í París um aldamótin, bjó í
Nice í ellinni sem einstæð pipar-
mey. Fáir vissu um fortíð hennar,
og kannski hefði flestum verið
sama, hefðu þeir þekkt hana.
Þegar hún var spurð, hvernig
henni hefði þótt leikkonan Maria
Felix i hlutverki sínu, sagði hún:
„Hún stóð sig mjög vel. Hún er
næstum eins falleg og ég var“.
MtUMMMMMWMMM* MW'
Mao fær I
lúxusbíl
SAMKVÆMT blaðafregnum
í Hongkong hefur öreiga-
prinsmn Mao Tse-Tung pant
að bíl hjá Mercedes Benz
verksmiðjunum- í ’Stuttgart.’
Þetta mun vera bíll af gerð-
inni 600 í sérstakr; útgáfu.
Auk þess að vera algjörlega
sjálfskiptur á hann að hafa
loftkælingu og hitun og bar..
Þetta er einn af dýrustu vögn
um, sem hægt er að fá og
verðið mun vera um 125.000
mörk, rúmlega ein og kvart
milljón króna.
HMHIMMHMMMMMWMHW
5 29. apríl 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
i