Alþýðublaðið - 28.07.1965, Page 2
eimsfréttir
....siáastliána nótt
★ LONDON: — Edward Heath fv. efnahagsmálaráðherra
■verður næsti leiðtogi brezka íhaldsflokksins. Hann hlaut hrein
an meirihluta í atkvæðagreiðslu i þingflokki flokksins í gær en ekki
15% fleiri atkvæði en næsti maður, Reginald Maudling fjármálaráð
Rerra eins og tilskilið var. En Maudling hefur ákveðið að draga
eig í hlé, svo og þriðja leiðtogaefnið, Enoch Powell, þannig að
Héath verður kjörinn leiðtogi einróma í annarri atkvæðagreiðslu
á fimmtudag.
★ SAIGON: — Bandarískar sprengjuþotur afmáðu í gær flug
skeytavígi í Norður-Vietnam og löskuðu annað. 46 þotur tóku þátt
t árásinni og 3 voru skotnar niður. Árásin eru skoðuð í liósi at-
burðar þess á laugardaginn er bandarísk þota var skotin niður
með sovézku flugskeyti.
★ GENF: — Johnson forseti segir í boðskap til afvopnunar
ráðstefnunnar. sem hófst í Genf í gær eftir langt hlé, að banda-
rísku fulltrúarnir mundu bera fram nýjar tillögur og Bandaríkin
vildu sáttmála er miðaði að því að koma í veg fyrir dreifingu kjarn
orkUvopna. Tsarapkin, aðalfulltrúi Rússa, sagði að tilraunir til að
kotna á fót kjarnorkuliði innan NATO mundu torvelda tilraun-
ir til að koma í veg fyrir dreifingu kjarnorkuvopna.
★ AÞENU: — Báðir aðilar í stjórnmálaerjunum í Grikklandi
<töldu niðurstöður allsherjarverkfalls í Aþenu og stærstu bæjum
latidsins -sigur fyrir stefnu sína. Bakatselos verkalýðsmálaráðherra
eagði að verkfallið hefði farið út um þúfur. Verkalýðsleiðtoginn
Hapávherorhiu sagði að verkfallið væri því sem næst álgert.
★ LONDON: — Brezka stjórnin skýrði í gær frá víðtækum að-
gerðum er miða að því að draga úr kauþmætti á heimsmarkaði og
éfla útflutning í því skyni að treysta gengi pundsins og draga úr
greiðsluhalla. Gallaghan fjármálaráðh. sagði, að að því væri stefnt
að útrýma greiðsluhallanum fyrir 1966. Innleidd verða strangari
ákvæði um kaup með afborgunum, dregið verður úr opinberum
íramlögum, vissum þjóðfélagsumbótum verður frestað, dregið verð
ur úr eyðslu hins opinbera og framlög til landvarna skert.
★ VESTUR-BERLÍN: — Yfirvöld í Austur-Þýzkalandi hafa að
undariförnu lokað mikilvægustu ám og skurðum, sem farið er um
•Crá Bérlín til Vestur-Þýzkalands. en ekki er búizt við alvarlegri'
deilu um þessa umferð á næstunni.
★ TOKIO: — Vietnam-friðarnefnd Ghana er komin til Hanoi
Og hefur haldið fyrsta fund sinn með stjórninni þar, að sogn norður-
vietnamisku fréttastofunnar.
★ STOKKHÓLMI: — 600.000 sænskum krónum var í gær stol
éð í éinu mesta bankaráni sem sögur fara af í Svíþjóð.
í Keflavík var í ár jafnað niður
kr. 21.873.500,00 á 1420 einstak-
linga og kr. 1.832.700,00 kr. á 71
fyrirtæki.
Aðstöðugjöld voru:
Einstaklingar kr. 1.296.300,00
Fýrirtæki kr. 3.973.400,00
Veittur var 10% afsláttur frá
núgildandi útsvarsstiga. Sjómanna
frádráttur var tekinn til greina að
fullu. Ekki var lagt á trygginga-
bætur Almannatrygginga. Hálft
AÐEINS 2000
teini ösón
tekjuútsvar var lagt á gjaldendur
65-70 ára og ekkert tekjuútsvar á
gjaldendur eldri en 70 ára.
Hæstu útsvarsgreiðendur voru:
Einstaklingar:
Magnús Bergmann 129.800
Sævar Brynjólfsson 121.000
Halldór Brynjólfsson 104.000
Fyrirtæki:
Keflavík lif. 235.400
Ægir hf. 134.500
Eldey hf. 113.900
Hæstu aðstöðugjaldendur:
Kaupfélag Suðurnesja 592.000
Hraðfrystih. Keflav. 303.000
Vélbátatr. Reykjaness 250.000
Skrlli Skídason, ritstjóri,
átt.i 75 ára afmæli í gær. Við
það tækifæri færði stjórn
Blaðamannafélags íslands
honum blómakörfu. Myndin
er tekin við það tækifæri, og
þar eru talið frá vinstri: ívar
H. Jónsson, Emil Björnsson
formaður Blaðamannafélags-
ins, Skúli Skidason, Bjarni
Guðmundsson, Tómas Karls•
son og Atli Steinarsson.
HMMMMWMWMMMHMMHi
T raktor
stolið
Rvík, OTJ.
RAUÐRl dráttarvcl af Intematl
onal-gerð var stolið í fyrrinótt frá
athafnasvæði Véltækni hf. á mót
um Bolholts og Skipholts. Að þvl
er Tómas Einarsson hjá rannsókn
arlögreglunni sagði okkur, er
Framhald á 15. síðu.
Reykjavík KB
REÝKVÍKINGAR hafa verið
fcýsna duglegir að koma og s'ækja
cafnskírtcini sín, en afhending
4>c>rra liófst um síðast liðin mán
eðainót. Hafa nú verið afhent eitt
- €»Vað ýfir 37 þúsund skírteini, en
ésótt eru þá enn um 2000 nafn
ekfrteini.
Samkvæmt upplýsingum skrif-
stófunnar í gamla Iðnskólahúsinu
viIS Vonarstræti, sem afhendir
fikirteinin, hefur afhending skír-
•teinanna géngið mjög þokkalega
-íram að þessu, en síðustu dagana
iiefur þó heldur dregið úr aðsókn.
Jafnframt nafnskírteinunum eru
-4^'ar einnig afhent ný sjúkrasam-
4agsskírteini til Reykvíkinga og
má vera að það hafi ýtt undir
menn að koma eftir plöggunum
fyrr en síðar. A.m.k. virðist af-
hending nafnskírteinanna yfirleitt
ekki- ganga eins greitt utan Reykja
víkur, þar sem nafnskírteinin
eru afhent ein sér. í Hafnarfirði
er enn mikið af nafhskírteinum
ósótt, og á Selfossi, svo að dæmi
séu nefnd, á geysimikið af þelm
eftir að fara í sveitir sýslunnát.
Unglingar hafa þar verið einna
drýgstir við að sækja skírteinið,
og langoftást hafa þeir komið með
mynd, en án myndar gildir skír-
teinið ekki sem sönnun um ald-
ur.
Afhending nafnskírteina verð.
ur haldið áfram næstu daga, ög er
þess að vænta, að þeir sem enn
Hafa ekki sótt skírteini geri það
hið bráðasta.
ÓK Á BRÚ
Reykjavík, EG
BÍLSLYS varð I Ljósavatns-
skarðl skömmu eftir hádegið í
dag, er VW-bifreið úr Reykjavík
var ekið á brúarstöpul á Djúpár
brúnni, en slæm beygja er á veg
inum áður en kemur á brúna.
Ökumaður bifreiðarinnar Guðjón
Jónsson, knáttspyrnumaður í
Fram. mun hafa slasast nokkuð
og var fluttur á sjúkrahús. Aðra,
sem í bilnum voru, sakaði ekki,
en bíllinn er mikið skemmdur.
it*j
Hlaut Miss Uni-
verse titilinn
Fegurðardrottning heims var
fyrir helgina kjörin á Mi-
amifjöru í Flórida, og féll
hnossið í hlut 18 ára gam-
allar stúlku frá Thaílandi,
sem heitir Apasra Hongsa-
kula. í öðru sæti varð finnsk
stúlka, Vírpi Miettinen, og í
þriðja sæti varO bandaríski
þátttakandinn.
Apasra er dóttir liðsfor-
ingja i flugher Thailands, og
hann var viðstaddur úrslitin
í fegurðarsamkepþninni. —
Hann skýrði blaðamönnum
frá þvi, að Apasra hefði
ekki fengiö nafn fyrr en hún
var orðin þriggja ára gömvj.
Þangaö til var hún kölluð
Framhald á 5. síðu
I
2 28. júlí 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ