Alþýðublaðið - 28.07.1965, Side 4

Alþýðublaðið - 28.07.1965, Side 4
Ritstjórar: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Ritstjórnarfull- trúi: Eiður Guðnason. — Símar: 14900- 14903 — Auglí’singasími: 14900. Aðsetur: Alþýðuhúsiö við Hverfisgötu, Reykjavik. — Preiitsmiðja Alþýðu- blaðsins. — Askriftargjald kr. 80.00. — I lausasölu kr. 5.00 eintakið. tJtgefandi: Alþýðuflokkurinn. m Dýrmætasta eignin Í>ÚSUNDIR íslendinga ferðast um byggð og ó- byggð landsins nú um hásumarið. Þeir, sem hafa aug un opin, munu taka eftir ummerkjum eins hrikaleg- asta hildarleiks, sem háður er í náttúru landsins, en það er uppblásturinn. í nokkrar ajdir hefur gróðurinn verið á hægu undanhaldi. Vatn, ís og eldfjöll hafa höggvið skörð í hinn græna varnarmúr lífsins, en vindurinn feykt jarðveg eða árnar horið hann á haf út. Þannig hafa stór svæði landsins lagzt í auðn og gróðurmold hef ur tapazt svo nemur þúsundum lesta á ári hverju. Fyrir nokkrum áratugum hóf þjóðin skipulegar mótaðgerðir með sandgræðslu. Dugmiklir menn hafa txnnið mikið verk á því sviði og fagnað sigri úr cnargri smáorrustu. En í stríðinu sem heild hefur samt hallað undan fæti. Enn þarf meiri átök til að jafna metin, og hefur Alþingi nýlega samþykkt frum varp ríkisstjórnar um að hefja gróðurvernd, sem á að verða ný sókn gegn eyðrngu landsins. Þarna var itigið skynsamlegt skref fram á við, en meiri fórna |nun verða þörf, ef þjóðin ætlar sér að stöðva með ijllu uppblásturinn og hefja almenna sókn gegn eyði nörkinni, teygja grænu skikana yfir allt láglendi og inn til heiða. Mikið starf er nú unnið við að rannsaka gróður landsins og kortleggja hann. Er sérstaklega athugað feeitarþol afrétta og um leið kannað, hvað sauðkind in leggur sér helzt til munns. Á þessum. rannsóknum verður síðar hægt að byggja skynSamlegar ályktan ir um, hve mikið landið þolir, án þess að það eyðist eða fé rýrni. Kemur þá til kasta landsmanna að hafa manndóm til að fereyta eftir niðurstöðum rannsókna, sem falla ekki alltaf saman við gamla trú eða fjár- hagslegan stundarhag. Steindór Steindórsson sagði í viðtáli við Alþýðu folaðið nýlega, að hann og aðrir sérfræðingar, sem dvalizt hafa langdvölum við gróðurrannsóknir á af réttalöndum, hefðu tekið mjög eftir. hve fljótt land ið grær upp, ef það fær sæmilega hvíld. Annars benti Steindór á, -að svo mikið væri af ógrónu eða lítt grónu landi í byggð, að uppgræðsla hlyti að byrja þar, og myndu menn síðan færa sig inn í landið, þegar bolmagn yrði til. Er þetta vafa- laust rétt, enda leyna sér ekki verkefnin á þessu sviði, þegar ekið er um sveitir landsins. Engum getur dulizt, að landið sjálft og náttúra þess j eru mestu verðmæti, sem íslenzka þjóðin á. Fyrsta boðorð þjóðarinnar hlýtur að vera áð varð- veita þann fjársjóð og láta hann ekki eyðast frekar en þjóðin vill eyða fiskimiðum hafsins umhverfis 'íl't ^ ^ ^ JÞAÐ GLEÐUR MIG a3 fylgjast framkvæmdum í Áirtiíinsbrekku. Þar er nú að koma ný braut af brekkubrún og niður að Elliða ánum — og ég sá í gær, að bifreið ar eru farnar að aka þessa nýju braut. Menn eru og að búa til þríhyrning upp á brúninni og munu eiga að koma þar merki, er vísa vegfarendum Ieið hvora braut ina þeir eigi að fara þegar þeir koma tU borgarinnar. ÉG HEF NOKKRUM SINNUM á undanförnum þremur árum, skrifað um öngþveitið við Eilliða árnar. Það fór vitanlega vaxandi með mikilli fjölgun bifreiða á tii tölulega skömmum tíma og oft hefur það verið nsesta óviðráð anlegt. Ég fór fram á það, að gerð væri ný braut við hliðina á -þeirri gömlu um brekkuna svo að hægt væri að létta á umferðinni þó sérstaklega upp brekkuna, þvi stór farartæki og þung hafa hald ið allri umferð niðri þessa leið. Vonandi verður ekki aðeins skipað að bifreiðarnan skuli fara nýju brautina niður heldur einnig upp. ÉG HEF LAGT til að þessi nýja braut verði sett í samband við Miklubrautina, þannig að veg farendur viti hvora brautina þeir eigi að fara eftir því hvort þeir ætla sér Vesturlandsveg eða Aust urveg. Þá geta þeir ekið inn á Miklubraut eða Suðurlandsbraut Úr borginni hvaðan sem þeir koma. Þetta mundi gjörbreyta öllum að stæðum. NÝJA BRAUTIN er komin, en aðeins niður að Elliðaánum. Það ei- ekki nóg. Það hlýtur að vera hægt að setja bráðabirgðabrú yf ir árnar úr járnstyrktum stórum bjálkum og að vegurinn verði síðan tengdur við Miklubraut. Ég veit það, að samið hefur verið mikið skipulag við Elliðaárnar fyr ir framtíðina, en það á langt í land, og reynslan hefur sýnt okk ur það á undanförnum þremur ár úm, að við igetum ekki béðið eftir því. ÉG SÉ EKKI BETUR en að hægt sé að einhverju leyti að not ast við undirstöður og veggi gömlu brúarinnar fyrir þessa nýj u bráðabirgðabrú. Það gæti auð veldað umbæfcurnar, en aðalatrið ið er að tengja saman nýju braut Ný braut upp frá Elliðaánum. ir Brýnar og nauffsynlegar framkvæmdir. ic Austurvegur og Mikiabraut. ic Vesturlandsvegur og Suðurlandsbraut. ina upp brekkuna og Miklubraut Þegar það hefur verið gert eiga allir, sem fara úr borginni að aka inn c Miklubraut og halda svo beina línu á Austunveg, en þeir sem ætla Vesturlandsveg að aka inn Laugaveg eða Hverfisgötu, á Suðurlhndlsbraut og síðan upp gömlu brekkubrautina. Ef þetta verður gert er vandamálið leyst þangað til nýja skipulagið kemur ANNARS DETTUR MÉR ekki í hug að kenna sérfræðingum vega gerðir, en það gleður mig að sjá það, að mér hefur ekki skjátlast um það, hvernig hægt væri að leysa þann mikla vanda, sem þarna hefur lent í fanginu á okkur við þá stórkostlegu fjölgun vél knúinna farartækja á síðastliðn um árum, sem raun er á. Hannes á horninu. MEÐ HELGAFELLI NJÓTIÐ ÞÉR ÚTSÝNIS, FLJÓTRA OG ÁNÆGJULEGRA FLUGFERÐA. AFGREIÐSLURNAR OPNAR ALLA DA'GA. Y/G«' SÍMAR: ____ VESTMANNAEYJUM 1202 REYKJAVÍKURFLUGVEUI 22120 Skrifstofustarf Flugfélag íslands h.f. óskar að ráða menn nú þegar til starfa hjá bókhaldsdeild félagsins í Reykjavík. Verzlunarskólapróf eða hliðstæð menntun æskileg. Umsóknareyðublöðum, sem fást á skrifstof- um félagsins, sé skilað til starfsmannahalds fyrir 6. ágúst n.k. vtgfé/fff A/tmds /CSÍAA/DA//? YOGA Séra Þór Þóroddsson, fræðari, flytur erindi fyrir almenning um kristna dulspeki í Tjarn arbæ miðvikud. 28. júlí kl. 8 e, h, Kennslufundir runnið í Tíbet - kvöld á eftir. í aðferðum Yoga — upp- - verða haldnir nokkur næstu 4 28. júlí 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ £

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.