Alþýðublaðið - 07.08.1965, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 07.08.1965, Qupperneq 2
iieimsfréttir ....siáastlidna nótt ★ WASHINGTON: — Utanríkisráðherra Ghana, Quaison-Sac- ■íkey, sagði í gær að boðskapur sá er hann flytti Johnson forseta frá Nkrumah, forseta Ghana, gæti sennilega stuðlað að framgangi frið arins í Vietnam Nkrumah hefur beðið Quaison-Sackey að færa John Æon boðskapinn að fenginni skýrslu um niðurstöður heimsóknar sér legs fulltrúa hans, Kwesi Armah, í Hanoi. ★ PLEIKU: — Bandarískir hernaðanráðunautar sögðu í gær að Kínverjar berðust við hlið hermanna vír fastaher Norður-Vietnam i orrustunni um Pleiku í SuðurVietnam. Vopnaviðskiptin virðast vera að þróast í einhverja stórfelldustu orrustu Vretnamstríðsins óg kunna að vera upphafið að ,,monsún-sókn“ Vietcong, sem lengi dvefur verið beðið eftir. ★ NEW YORK: — Sendiherra Bandaríkjanna hjá SÞ, Arthur Coldberg, kom til New York í gærkvöldi að ræða við fulltrúa Örygg isráðsins um Vietnamdeiluna. Goldberg sendi forseta ráðsins, rúss anum Morozov, bréf fyrir viku þar sem hann kvaðst vilja hafa eamvinnu við meðlimi ráðsins í tilraunum til að koma á samningum ■um lausn í Vietnam. U Thant aðalritari telur 'gagnslaust að kalla ráð ið saman án þátttöku Kínverja eða Norður-Vietnammanna en kann að falla frá því. ÞORSTEINN ÞORSKABITUR LEGGUR BRÁTT ÖR HÖFN Siglufirði. — JM-GO. TOGARINN Þorsteinn þorska- bítur kom liingað fyrir skömmu og er nú verið að leggja síðustu hönd á undirbúning skipsins, en það á að gera tilraun til að flytja sjókælda síld af Austurlandssvæð- inu til söltunarstöðva á Norður- Ný brú byggð DANIR hafa nú í hyggju að byggja nýja brú yfir Litla-Belti, milli Jótlands og Fjóns, og er áætlað að smíðin muni kosta um 200 milljónir danskar. Mun nýja brúin verða tekin til notkunar ár- ið 1970 og verður hið glæsilegasta mannvirki. landi. Búizt er við að skipið haldi úr höfn alveg á næstunni. Síldarflutningaskip Rauðku, Gulla, kom í gær með tæp 4000 mál af síld að austan. Alltaf er nóg vinna í frysti- húsunum við að vinna úr ufsa. Bátarnir fá ufsann í nót hér út af firðinum, inni á Skagafirði og nú síðustu dagana alla leið aust- ur við Mánáreyjar. Til marks um aflann má taka fram að vélbátur- inn Hringur er búinn að fá 600 tonn á einum mánuði. Skipstjóri á Hring er Jón Sveinsson. Nokkr ir aðkomubátar leggja svo upp hjá hraðfrystihúsi ísafoldar. Veður er gott hér á Siglufirði, sólskin og blíða og mannskapur inn fremur hress í bragði þrátt fyrir síldarleysið. 4r MOSKVU: — Sendiherra Bandaríkjanna í Moskvu, Foy D. Köhler, yfirgaf í dag veizlu í Kreml til heiðurs konungi Afghanist- -an vegna harðrar gagnrýni Aleksej Kosygin forsætisráðherra á «tefnu Bandaríkjanna í Vietnam. ★ AÞENU: — Konstantin konungur lýkur viðræðum við st5órn •nálaforingja á morgun og skipar nýjan forsætisráðherra. Papand- reou verður sennilega ekki fyrir valinu og ástandið er sagt alvar- Jegt. I ★ SAIGON: — Minnst 24 Suður-Vietnammenn og Bandaríkja flnenn biðu bana eða særðust er bandarísk flugvél hrapaði til jarð •ar í 'gær á aðalgötu bæjarins Nha Trang, 320 km norðaustur a£ Saigon. ★ WASHINGTON: — Johnson forseti undirritaði í gær hin taýju lög um jafnan kosningarétt og lýsti því yfir að rutt væri ú-r vegi síðusu leifum ánauðar blökkumanna. ★ LONDON: — Afvopnunarmálaráðherra Breta, Chalfont lá varður, kom til Genf í gær frá Lundúnum eftir að hafa ráðfærzt við Stewart utanríkisráðherra um tillögur vesturveldanna um bann við •dreifingu kjarnorkuvopna. Hann telur heldur litlar líkur á að sam komulag náist fljótlega í þessu máli. ★ KHARTOUM: — Mahgoub, forsætisráðherra Súdan, kom til Khartoum í gær eftir að hafa fengið tryggingu fyrir því hjá grann ríkjum að þau aðstoði ekki uppreisnarmenn í Suður-Súdan. Hern. um hefur verið skipað að hefja sókn gegn blökkumön'num. Þórshöfn í Færeyjum. — HJ. Nú er Ólafsvökunni, þjóðhátíð Færeyinga, lokið. Að þessu sinni var óvenjulega margt um útlenda gesti hér í bænum, mest bar þó á íslendingum, sem fjölmenntu hingað. Voru þar á ferð hópar frá Austfjörðum, sem tekið höfðu sig saman og komið flugleiðis. Einnig kom margt íslendinga sjóleiðina, þar á meðal 30 félagar úr ung-. templarafélaginu Hrönn í Reykja- vík, sem komu í heimsókn til góð- templara hér í Þórshöfn. Hrönn keppti í knattspyrnu og handknatt ■leik um Ólafsvökuna. Nú er orðið fátt um íslendinga hér i bænum. Þeir eru flestir farn- ir heim með minninguna um góða skemmtun og ánægjulega hátíð. Lögþing Færeyja var sett á Ól- afsvökunni. Athöfnin hófst með því að þingmenn og prestar gengu skrúðgöngu til kirkju og hlýddu messu. Síðan fór þingsetning fram í þinghúsinu, þar sem Hákon Djuurhus lögmaður hélt þingsetn- ingarræðuna. Hann sagði m. a. að ekki yrði efnt til kosninga í haust, þar s.em stjórnarflokkarnir hefðu veitt sér traustsyfirlýsingu. Þess má geta, að þjóðveldismaðurinn Erlendur Patursson var ekki við- staddur þingsetninguna, þar eð hann var ekki í landinu, en eins og kunnugt er var það Erlendur, sem mestan þátt átti í því að stjórnar- kreppan komst á sl. vor. Fundir hafa verið haldnir daglega síðan þingið var sett, en engin mál lögð fram. Hækkerup forseti Allsherjarþings? PER HÆKKERUP kemur til greina sem forseti næsta Allslierj- arþings SÞ, sem hefst í september, að því er áreiðanlegar heimildir herma. Aðrir norrænir stjórnmálamenn koma einnig til greina, þar á með- al Sivert A. Nielsen, sendiherra Noregs hjá SÞ, og Ralph Encklen, fv. sendiherra Finna hjá SÞ. Sagt er, að Nielsen, sem nýtur mikils álits í aðalstöðvum SÞ vegna starfa sinna í Öryggisráðinu, þar sem hann liefur verið fulltrúi um. tveggja ára skeið, hafi engan sér- stakan áhuga á forsetastarfinu. MÁLGAGN sovézku stjórnarinnar Izvestia sakar Interpol um að vera of önnum kafið við að hafa upp á andfasistiskum flóttamönnum fyr- ir ríkisstjórnir Spánar og Portú- gal, en hirða þess í stað minna um sitt aðalhlutverk, uppljóstrun alþjóðlegra glæpamála. mWmmWm mmmmm að lífi litlu stúlkunnar. Þau hafa árangurslaust reynt að ná sambandi við lækn- inn, en síminn heima hjá honum svarar ekki, — því að læknirinn er í sumarleyfi ein- hvers staðar í Evrópu. Sæn- sku dagblöðin hafa gengið í lið með foreldrunum til að reyna að hafa uppi á læknin um, — því að öllu óbreyttu er talið að litla stúlkan, Linda, eigi aðeins örfáar vikur ólif- aðar. Myndin er af Lindu og móð- ur hennar. LITLA stúlkan hér á mynd- inni er tveggja ára gömul, og læknarnir á borgarsjúkrahús- inu í Malmö í Svíþjóð hafa kveðið upp þann úrskurð, að lífi liennar verði ekki bjarg- að, þar sem hún sé með ó- láeknandi lungnakrabba. Foreldrar stúlkunnar hafa þó veika von um að takast megi að bjarga lífi hennar, ef þeim tekst að hafa uppi á lækni, sem Elis Sandberg heit ir, en hann hefur framleitt sérstakan hormón, sem tal- ið ér að ef til vill geti bjarg- 2’ 7. ágúst 1965 - ALÞÝDUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.