Alþýðublaðið - 07.08.1965, Page 10
1 ■'« A.k4í
Skemmtiferðir
aiíf-iw með skipum
Baltic liríe:
Vín-Yalta-Vín. Með flugvél til Lúxemborgar og
Vínar og frá Vín til Yalta með fljótaskipi eftir
Dóná með víðkomu í Bratisslava-Budapest-Bel-
grad-T. Severin-Ruse-Djudrju-Galaz-Ismail og
til Yalta við Svartahaf. Sömu leið til baka, Verið
3 daga á Yalta og stansað í hinum borgunum
part úr degi. Alls 14 daga ferð. Mjög heillandi og
skemmtileg ferð. Hljómsveit um borð í skipinu,
ágætis aðbúnaður. Verð: 21.500 kr. á mann. 16
daga ferð.
-V*
I
Mmmmmm
London — Kaupmannahöfn — Gauta-
borg — Stokkhólmur — Hélsinki — Leningrad.
og til baka. 14 daga ferð. Ve'rð 13.400. Farið með
skemmtiferðaskipum í júní-júlí-ágúst og október.
á 12 daga fresti.' Flogið til London og til baka
Rólegar ferðir um Norðursjó og Eystrasalt með
fýrsta flokks skemmtiferðaskipi, höfð viðkoma í
fyrrnefndum borgum. Hægt að hafa viðdvöl eftir
jjörf á útleið og heimleið í London
'fi'
mmmmwwwwr
Genoa — Napoli S
Marseilles
• — Pireaus — Istanbul •• Varna
lÉ 'il'-r•— Constanta — Odessa — Yalta
^ V. m og gochi. (Miðjarðarhaf og Svartahaf).
Verð: 21. 500..00. Flogið til Parísar — Marseilles
og farið með sketmmtiferðarskipi á .fyrrtalda staði.
| 21.daga ferð.
W)))))))))))))))))))))))))))))))))
= Gdynia — Amarica line SS
= London - Las Palmas — Martinque — Nassau 3e
= Miami — Curaco — Barbados — London. 17.1- jgj
1 22.2 1966 36 daga ferð. Verð frá 24.570.00-46.170 3=
= 00. Flogið til London og til baka. Dvalið í 1 dag jgr
= til 4 daga á hverjum stað. S
})))))))))))))))))))) ' (((((((((((((((((((((((((((((((((U
r Kaupmannahöfn — London — Quebec -— Montre -3=
= al. 18 dagar. Verð: 28170.00. í báðum tilfellum §§
= ferðast með M.s. Batory. Glæsilegt skemmti- §
= ferðaskip, =3
1 Upplýsíngar veittar í ferðaskrifstofu vorri §
LAN □ S 9 N ^
___ FERBASKRIFSTOFA §
§ Skólavörðustíg 16. II. h»ð 3=
§ SlMl 22890 BOX 465 REYKJAVÍK 1
^////////////////////)//////)////;/)/))))))))))/)))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))k
Gang!eri
Framhald úr opnu.
væntanlega tekin upp fyrir
næstu áramót.
í stuttu viðtali við Alþýðu-
blaðið skýrði hinn nýi ritstjóri
frá því, að Gangleri hefði haf-
ið göngu sína árið 1926 á veg-
um sr. Jakobs Kristinssonar,
síðar fræðslumálastjóra, og
undir hans ritstjórn, en Guð-
spekifélagið tekið við útgáfu
hans árið 1930; frú Kristín
Matthíasson, kona Steingríms
• læknis og tengdadótt Matth-
• íasar skálds, gerðist þá rit-
• stjóri og hafði það starf með
höndum til 1935, er Gretar
1 Fells tók við því. Hefur hann
því unnið manna mest að út-
,(gáfu blaðsins síðastliðin þrjá-
tíu ár, og auk þess skrifað í
það fjölmargar stórmerkar
greinar.
Gangleri er nú prentaður í
2000 eintökum, að sögn Sig-
valda Hjálmarssonar, og hefur
því fundið hljómgrunn hjá
fleirum en félagsmönnum Guð-
spekifélagsins, sem eru u.þ.b.
620 að tölu. „Enda er ritið al-
mennur vettvangur fyrir þá
menn, sem hafa áhuga á and-
legum málum og vilja fræðast
um sem flest í þeim efnum,
jafnt vísindi, heimspeki og
trúarbrögð sem hin svokölluðu
dulrænu fræði,” svo að notuð
séu orð Sigvalda sjálfs. — í
þessu sambandi tók ritstjórinn
það enn fremur fram, að allir
þeir, sem í ritið skrifuðu, —
yrðu sjálfir, að bera ábyrgð
orða sinna, enda prédikaði
Guðspekifélagið engar skoðan-
ir heldur heimilaði félags
mönnum sínum fullkomið skoð-
anafrelsi.
„Guðspekifélögin gefa út
tímarit víða um heim,” sagði
Sigvaldi að lokum, „en þau
eru yfirleitt ætluð félagsmönn-
um sjálfum, — Gangleri hefur
hins vegar þá sérstöðu, að vera
í senn félagsrit og alþýðlegt
fræðslu- og fréttarit. Upp á
síðkastið hef ég verið að vinna
þeirri tillögu fylgi, að hefja
útgáfu alþjóðlegs fræðslurits
almenns efnis 1 þessum anda
með útkomustað í Englandi,
en enn sem komið er, get ég
ekkert sagt um, hvort af þyí
verður. Þó er ég vongóður . .”
Bless...
Framh. úr opnu.
— Eg heiti Smári, sagði sá
tninni.
— Já, sagði ég.
— Finnst þér ekki hann
Kristján eiga fínt hjól? spurði
sá, sem hét Smári.
— Jú, jú, svaraði ég.
— Og það drífur agalega
vel, maður, bætti hann við.
— Er það, Kristján? spurði
ég.
— Já, svaraði eigandinn,
það drifur nærri því alltaf vel.
— Nú, en ekki alltaf?
— Nei, svaraði eigandinn
hálf vandræðalegur, það spól-
ar nefnilega, þegar maður fer
á því upp brekkur. — ór.
Hannes á horninu
Framhald af 4. síðu
ÉG MAN í>VÍ MIÐUR EKKI,
hvað langt er síðan að byrjað var
á byggingu beint á móti Hverfis-
götu 32, að líkindum 2—3 ár, en
ekki kemst upp af byggingunni
annað en súlur, sem steinflötur
var svo steyptur ofan á, en fyrir
nokkru var svo slegið ryðguðu
járni og timbri utan um þessa
beinagrind, og þarna blasir þessi
ómynd við öllum, sem leið eiga
um götuna. Eru engin takmörk
fyrir því hvað lengi menn mega
hafa hús í smiðum, sérstaklega
við helztu umferðargötur borgar-
innar?
Víða á gangstéttum borgarinnar
er kominn allgóður og frjósamur
jarðvegur, enda sprettur gras og
arfi víða meðfram húsunum á
gangstéttunum, — það er kann-
ski sízt að lasla. en einhvern veg-
inn kann ég ekki við þessa frjó-
semi á þessum stöðum. Vildi ég,
Hannes minn, mælast til þess, að
þú gengir um þessa staði, sem ég
hef nefnt, helzt í rólegheitum
snemma að morgni, og vita þá
hvers þú verður vísari, — og
hvort mál mitt hefur ekki við rök
að styðjast. Þá gætir þú líka at-
hugað hvernig þakrennurnar á
sumum húsunum eru, t. d. ef
gengið er upp Klapparstíg, hægra
megin frá Hverfisgötu, — þar eru
rennurnar, margar hverjar verri
en engar, því miður, og svo mun
viða vera um borgina. Óþrifnaðar-
púkinn sést of viða að verki í þess-
ari borg, sem gæti verið fögur, ef
þeir sem byggja hana reyndu
sumir hverjir að ganga um hana
sem sannir þegnar hennar.
ÞAR SEM ÉG fór að stinga nið-
ur penna langar mig til að minn-
ast fáum orðum á Hafnarfjarðar-
kaupstað, — þó að það sé á öðr-
um vettvangi, en það sem að
framan er ritað um höfuðborgina.
Ég hef oft verið að hugsa um það,
að ég hef aldrei heyrt getið um, að
farið sé með erlenda ferðamenn,
sem hér hafa stutta viðdvöl, til
Hafnarfjarðar, en þangað eiga all-
ir ókunnugir erindi, því staðurinn
hefur margt að bjóða gestum, sem
aðrir bæir eiga ekki til. — Þar er
hraun, og áreiðanlega sérkennileg
asta bæjarstæði hér á landi, og
líklega þótt víðar væri leitað. —
Þeir eiga fallegan og um leið sér-
stæðan blett til að sýna, og láta
dást að, en þar á ég við garðinn
þeirra „Hellisgerði”.
AKUREYRARBÆR. SEM RÍK-
ASTUR er af fallegum görðum,
svo ég tali ekki um sjálfa höfuð-
borgina, Reykjavík, getur ekki boð
ið erlendum ferðamönnum annað
eins náttúruundur af garði að vera
eins og Hafnfirðingar geta. — Það
getur skeð að til Hafnarfjarðar sé
yfirleitt farið með ferðamenn, en
þá hefur það farið fram hjá mér,
og bið ég þá velvirðingar á fá-
fræði minni. Leiðin frá Reykjavík
er ekki löng, en bví miður er veg-
urinn, þó malbikaður eigi að
heita, einhver sá leiðinlegasti og
versti á þessu annars fallega
landi okkar”.
ÞórsmörBc
Framhald af 5. síðu.
ára. En það er mjög erfitt að
koma í veg fyrir að unglingar kom
ist með áfengi inn í Þórsmörk,
því að lagreglan hefur hvorki
mannafla né aðstöðu til þess að
leita í farangri unga fólksins, en
þar hefur án efa leynzt mikið
magn af sterkum drykkjum. Sam
kvæmt upplýsingum lögreglunn-
ar var hellt niður geysimirklu
magni af áfengi, sem tekið var af
unglingunum eftir að þeir fóru að
staupa sig inni í Þórsmörk. En
það hefur þó ekki verið nema
nokkrir dropar úr hafinu. Svo
almenn var ölvunin í Þórsmörk
bæði á laugardag og sunnudag.
Hitt er svo annað mál að allir,
sem í Mörkina fóru, skemmtu sér
vel og nutu þess að vera í dásam
Iegu veðri á þessum sérkennilega
og fagra stað. Það er ekki ungl-
ingunum að þakka, heldur veðrinu
og æðri máttarvöldum. Það gleym
ist þeim seint, sem heyrðu Úlfar
Jacobsen syngja ljóðið um hann
„Old McDonald", sem átti fullt
af kindum, kúm, svínum. hund-
um og alls konar kvikindum, á
meðan flugeldunum var skotið og
varðeldurinn tendraður um mið-
nætti á laugardagskvöld.
Þeir, sem hlustuðu á útvarps-
messu séra Bjarna á sunnudags-
morguninnn uppi á Valahnúki,
gleyma því seint.
Þeir, sem viðstaddir voru dans
samkomurnar í Húsadal á laugar
dags og sunnudagskvöld, gleyma
se:nt þeirri einsföku „stemmn-
ingu” sem ríkti þar, þegar tónlist
piltanna úr Sóló blandaðist hávað
anum frá díselmótornum, sem
framleiddi' rafmagn handa gítörum
um þeirra, en áðum dimmdi yfir
fjöllunum í fjarska og vinalegur
hálfmáninn brosti á rauðleitum
kvöldhimninum.
— ór.
Vinnuvélar
til leigu
Leigjum út litlar rafknúnar
Bteypuhrærivélar Ennfremur
rafknúna grjót- oe múrhamra
með borum oe fleyeum.
LEIGAN S.F
Sími 23480
,1,0 7- ágúst 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3 :