Alþýðublaðið - 17.09.1965, Síða 3
£v jv vX-vv-w. *.-. V.^O^ •.
U Thant vongóður
eftir ferð sína
Londonl6. 9. (NTB-Heuter.)
1 Ferð mín til Indlans og Pakist
• an var ekki misheppnuð. Þið skilj
Stórlækkun
hja SAS?
Stokkhólmi. 16. 9. (NTB-TT).
Forstjóri SAS, Karl Nilsson,
sagði í viðtali við sænska útvarp
ið í-dag að búast mætti við að far
fijóldin yfir Atlantshafið yrðu stór
lækkuð á næsta ári.
Ilann sagði, að eftir þessa lækk
un mundi verð farmið'a standa í
stað í nokkurn tíma og mundu verð
lækkanir á næstu fimm árum að
eins nema um 5%. Nilsson, sagði
að einnig mætti búast við far
gjaldalækkun á innanlandsleiðum.
ið mig betur þegar þið leslð
skýrslu mina í Öryggisráðinu á
morgun, sagði framkvæmdastjór
inn í SÞ, U Thant, er hann hafði
viðdvöl í London í dag á leið sinni
til New York frá Indlandi og Pak-
istan. Hann sagði , að hann mundi
ef til vill fara aftur til Nýju Delhi
og Karacki.
Forsætisráðhenra Sovétríkjanna
Anastas Mikojan sagði í kvöld að
vinir Indlands og Pakistans yrðu
að s+öðva þá sem vildu blása að
glæðunum í Kasmírdeilunni. Hann
sagði þetta í vezlu til heiðurs Ne
Win hershöfðingja, forseta Burma
sem er í heimsókn í Sovétríkjun
um.
Forsætisrdáðherra Indlands, Lal
Hahadur Shastri, lýsti því yfir
að Indverjar gætu ekki fallizt á
þau skilyrði, sem Pakistanar settu
fyrir vopnahléi. Hann sagði, að
U Thant hefði sagt í skriflegri á
skorun til hans og Ayub Klians
forseta Pakistans, að óhugsandi
Framh. á 14. síðu.
Urslitin í Noregi
TAI.NINGU er nú að fullu lokið í norsku kosningunum og hér fer á
eftir lokayfirlit NTB um úrslit þeirra:
1965 1961
V erkamannaf lokkurinn 879.036 43.3% 858.642 46.9%
Hægri flokkurinn 408.906 20.1% 354.795 19.3%
Konunúnistar 29.450 1.4% 53.523 2.9%
Kristilegi flokkurinn 157.724 7.8% 172.026 9.4%
Miðílokkurinn 191.226 9.4% 125.644 6.8% j
Vinstri flokkurinn 205.491 10.1% 134.243 7.3%:
Sameiginlegir borgaralistar 37.448 1.8% 92.340 5.0%
Sósialistíski þjóðarfl. 121.909 6.0% 43.992 2.4%
Aðrir 442 0.0% 475 0.0%
Greidd atkvæði alls: 2.031.632 (1.835.680)
Kosningaþátttaka: 84.4% (77.3%)
ALLIR Á MÓTI ÞVI AD
ÉG SKRIFI LEIKRIT"
Reykjavík — OÓ
UPPHAF mannúðarstefnu nefn-
ist nýtt ritgerðasafn eftir Hall-
dór Laxness, sem út er komið
hjá Helgafelli. í því eru 32
greinar um ýmis efni. Flestar
þeirra hafa ekki áður birst á
íslenzku, en komið í blöðum og
tímaritum víða um heim á und-
anförnum árum. Tvær ritgerð-
anna hefur skáldið flutt í út-
varp, Morgunhugleiðingar um
Bach og Upphaf mannúðar-
stefnu. Sú ritgerð var samin
fyrir tékkneskt tímarit, sem
ekki treysti sér til að prenta
hana vegna hugmyndafræði, en
síðan birtist hún í timaritum
í ísrael og Ítalíu.
Halldór Laxness rabbaði við
blaðamenn í gær I tilefni út-
gáfu ritgerðasafnsins, og kom í
ljós að hann er með nýtt leikrit
í smíðum og er byrjaður að
reykja, eingöngu stóra vindla.
— Framhald af Skáldatíma?
Það er til athugunar, það er
ekki til skrifað orð enn. Ég hef
verið beðinn um það úr ýmsum
áttum og skrifa það þegar ég
fæ tóm til þess.
— Ég hef lítið gert í sumar,
en er að vinna að skáldverki. Er
með allan hugann við leikrit. Er
að skrifa það fyrir sjálfan mig,
er svona að ala mig upp á gam-
alsaldri. Annars eru allir á
móti að ég skrifi leikrit. Þau
fást ekki útgefin og enginn vill
leika þau.
Fyrst þegar ég skrifaði leikrit
kom það í öllum blöðum, sums
staðar með mynd. Ofurlítið var
skrifað um leikrit númer tvö,
en þriðja lelkritið var ekki
minnst á og nú þegar fólk heyr-
ir að ég er að skrifa fjórða leik-
ritið fer um það kaldur hrísl-
ingur. Útlendir forleggjarar
hafa keypt nokkur leikrit, en
þau eru hvorki leikin eða gef-
in'út. Það er bara eitt eins-
mannsforlag í Gautaborg, sem
gaf út leikrit en einsmannsfor-
lögin hafa ekki bolmagn til að
koma neinu á framfaeri í stór-
um löndum. Menn vilja ekkert
gera fyrir smáa karla. Leikritið
var mjög snoturlega gefið út en
enginn minntist á það. Þetta er
mjög skemmtilegt. Það er ekk-
ert auðhlaupið fyrir skáldsagna
höfund að gerast leikritahöfund
ur. Skáldsagnapublikum vill
lesa skáldverkin heima hjá sér
og leikhúspublikum vill fara í
leikhús. Við þessu er ekkert að
gera.
Laxness var spurður hvort
hann áliti að honum tækist bet-
Framhald á 15. síðu
00000000000<y<^00000000000<000000000000000000000000<
Eldur kom upp við Lyfjabúðina Iðunni í gærdag. Þar var tvöföld gluggarúða í kassa, sem átti
að fara að setja upp, og komst eldur í hálminn í kassanum. Rúðan skemmdist en annað ekki, og
voru slökkviíiðsmenn fljótir að ráða niðurlögum eldsins. — Mynd: JV.
Kirkjudagur Óháða safn-
aðarins á sunnudaginn
SUNNUDAGINN 19. september
verður árlegur kirkjudagur Óháða
safnaðarins í Reykjavík. Hefst
hann með guðsþjónustu í kirkju
safnaðarins við Háteigsveg kl. 2
e. h. Að lokinni messu hefst kaffi-
sala, sem kvenfélag safnaðarins
annast í safnaðarheimilinu Kirkju-
bæ.
Um kvöldið kl. 8.30 verður
kvöldvaka í kirkjunni, þar sem all-
ir eru velkomnir. Þar syngur Guð-
mundur Jónsson óperusöngvari,
Kjartan Sigurjónsson leikur á org-
el, fluttur verður frásöguþáttur og
kvikmynd sýnd. Á eftir verða svo
kaffiveitingar í Kirkjubæ.
Á þessum stað er áhugasamt
fólk að byggja upp söfnuð, og söfn
uðurinn hefur komið sér upp fal-
legri kirkju og félagsheimili. Hér
er mikið starf, sem kostar fé og
fyrirhöfn. Kvenfélag safnaðarins
hefur annazt undii’búning þessa
kirkjudags, og er ekki að efa, að
kirkjugestir vilja í senn njóta
þarna frábærra veitinga og styrkja
gott starf um leið. Fjáröflunarhlið
kirkjudagsins er að sjálfsögðu
mikilvæg, — þess vegna vilja kon-
urnar, að sem flestir fái sér kaffi-
sopa, — en hitt er ekki minna um
vert, að fólk komi f kirkju til þess
að lofsyngja sameiginlega.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 17. sept. 1965 3