Alþýðublaðið - 08.10.1965, Blaðsíða 11
l=RifrsfiórS Örn Eidsson
GLÍMUDEILD ÁRMANNS
BREYTIR ÆFINGATÍMUM
Á FYRSTA DEGI, sem innritað
var hjá Glímudeild Ármanns til
vetraræfinga á mánudagskvöldið
er var, létu um 70 drengir skrá
sig til þátttöku. Eru þeir á aldr-
inum 6-16 ára. Vegna þessarar
miklu þátttöku varð að færa til
aefingatíma yngri flokka glímu-
deildarinnar. Tímar eldri glímu-
★ Dinamo, Búkarest sigraði
B-1909 í s’ðari leik féla'ffanna í E\
rópubikarkeppni meistaraliða í
gær, 3 gegn 2. Rúmenarnir unnu
fyrri leikinn með 4 gegn 0 og fara
í 2. umferð.
★ Manchester Utd. sigraði HIK,
Helsingfors 6 gegn 0 í síðari leik
liðanna í Evrópubikarkeppni.
meistaraliða. United vann fyrri
leikinn 3 gegn 2.
★ Glasgow Rangers sigraði Kil-
marnock í undanúrslitum deildar-
bikarins í gær með 6 gegn 4.
★ Tottenham sigraði Sundar-
land með 3 gegn 0 í I. deild í gær.
Coventry vann Cardiff með 2 gegn
1 í 2. deild.
manna haldast óbreyttir frá því
sem auglýst hafði verið, á mánu-
dögum og fimmtudögum kl. 21-
22,30.
Glímuæfingar drengja verða á
miðvikudögum og laugardögum,
kl. 7-9 fyrri daginn, en 7-8,30
þann síðari. Verður tímunum skipt
þannig, að drengir fæddir 1954
eða síðar læra og iðka glímuna kl.
7-8 en drengir fæddir 1950-1953
kl. 8—9. Allar æfingar Glímu-
deildar Ármanns fara fram í í-
þróttahúsi Jóns Þorsteinssonar við
Lindargötu, á miðvikudögum í
minni sal, niðri, en á laugardögum
í stærri sal, uppi. Kennari yngri
flokka verður, eins og uridanfarin
ár, Hörður Gunnarsson.
Þjálfari eldri flokka hefur verið
ráðinn hinn góðkunni glímumaður
Gísli Guðmundsson, einn snjallasti
glímumaður landsins um árabil.
Þá hefur glímudeildin fengið sem
aðstoðarþjálfara bróður Gísla,' —
glímukónginn þekkta, Rúnar Guð-
mundsson. Æfingarnar munu fara
fram í stærri =al íþróttahússins,
Þeir drengir, sem liug hafa á að
læra og iðka glímu, en hafa ekki
látið skrá sig ennþá, geta mætt á
framangreindum tímum eða í
skrifstofu Ármanns í íþróttahúsinu i
i við Lindargötu, sími 13356, á
| mánudögum, fimmtudögum og
| föstudögum kl. 8-8,30.
Kjartan Bergmann glímukennari veitir ungum glímuinönnum
tílsögn. Mynd: JV.
Brumel fót-
brotnaði
Heimsmethafinn í hástökki
Valerij Brumel fótbrotnaði
í Moskvu í gær. Þetta er
opið brot á hægra fæti, frek
ar slæmt segja læknar.
Brumel getur ekki æft eða
keppt í íþróttum í amk. sex
mánuði. Eltki er hægt að
segja ákveðið á þessu stigi
hvort óhappið hefur áhrif á
frekari íþróttaiðkun Brumels
en lán er það í óláni, að það
var hægri fótur Brumels,
sem brotnaði en hann stekk
ur upp af vinstri fæti. Brmn
el var á heimleið með knnn
ingja sínum á mótorhjóli er
óhappið skeði. Ilann átti að
keppa í sovézka meistaramót
inu um helgina.
FH bezta knattspyrnufé-
lag Hafnarfjarbar '65
Haustmóti Hafnarfjarðar lauk um
síðustu helgi með leikjum í þrem
ur flokkum. Eins og kunnugt er,
þá er Haustmótið síðari hluti Hafn
arfjarðarmótsins, en fyrri hluti
mótsins nefnist Vormót. Það félag
sem fleiri stig hlýtur úr þessum
mótum, fær nafnbótiLa „Be^ta
knattspyrnufélag Hafnarfjarðar“,
og hlaut FH. þann titil nú í ár.
FH fékk samanlagt 11 stig gegn 9
stigum Hauka. í fyrra sigruðu
Haukar í mótinu á betri marka
tölu, en stigin voru þá jöfn.
Úrslit einstakra leikja Haust
mótsins voru sem hér segir:
I. fl. FH-Haukar 1-0
II. fl. FH-Haukar 3-1
III. fl. FH-Haukar 1-4
GLIMUÆFINGAR
UMF. VÍKVERJA
Ungmennafélagið Víkverji efnir
til glímunámskeiðs, sem hefst
föstudaginn 8. október. Kennslan
fer fram í íþróttahúsi Jóns Þor
stemssonar, Lindargötu 7. Kennt!
verður þrjá daga í viku. Á mánu ■
dögum og föstudögum kl. 7 — 8 og
á laugardögum kl. 5,30—6,30.
Félagið vill sérstaklega hvetja
unga menn á aldrinum 12—20 ára
til þáttöku i námskeiðinu.
Öllum ungmennafélögum hvað
an sem er af landinu er heimil þátt
taka.
Kennsluform verður með svip
uðum hætti og var á sl. vetri.
Ungmennafélagið Víkverji leggur
áherzlu á, að glíman verði æfð
á þann hátt að hinir góðu eigin
leikar glímunnar njóti sín til fulls
Níð og bol á að hverfa úr glím
unni. Mýkt og fimi og snerpa skipi
öndvegi glímunnar ásamt dreng
skap í leik.
Aðalkerinari námskeiðsins verð
ur Kjartan Bergmann, en auk
hans kenna Þorsteinn Kristjánss
son, hinn kunni glímusnillingur og
Gunnar R. Ingvarsson.
Að glímunámskeiðinu loknu
mun hefjast námskeið hjá Víkverj
um í vikivökum og þjóðdönsum.
IV. fl. FH-Haukar 0-1
V. fl. FH-Haukar 2-2
Samanlögð útkoma félaganna,
FH 11 stig 27-16 mörk.
Haukar 9 stig 16-27 mörk.
Framhald á 15. síðu.
Áustur-Þýzkal.
í alþjóða Olym-
piunefndina?
Á FUNDI alþjóða Olympíu-
nefndarinnar, þeim 63. í
röðinni, sagðist forseti nefnd
arinnar, Avery Brundage, bú-
ast við því, að samþykkt yrði
að Au.-Þýzkaland fengi inn-
göngu í lOC sem sjálfstæður
aðili. Af 26 iþróttasérsam-
böndum, er Au.-Þýzkaland
viðurkennt af 20 og meiri
hluti IOC mun styðja inn-
göngu landsins í nefndina.
Éf Austur-Þýzkaland verður
ur samþykkt sem aðili
að IOC, mun það skapa mik-
inn vanda varðandi Vctrar-
leikana í Grenoble í Frakk-
landi 1968, þar sem NATO
ríki veita ekki austur-þýzk-
um íþróttamönnum keppnis-
leyfi. Ef Frakkland sam-
þykkir ekki keppni Austur-
Þjóðverja sem sjálfstæðs að-
ila 1968, verður að flytja
leikana.
HMMMMMMMWMMMWUtW
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 8. okt. 1965 %%