Alþýðublaðið - 08.10.1965, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 08.10.1965, Blaðsíða 16
 0000000<0000000000<000000000000000< Fuglaket Þvílíkt bolvað þras og raus þó vér hjálpum náuuganum. Mér finnst alveg makalaus meinsemin hjá löggjaí'anum. Það er orðið alheimsmet hvað íslenzk lög og reglur banna, þótt finuist erlent fuglaket í frystiklefiun heiðursmanna. KANKVrÍS. €00000000000000000000000000000000 . .. Og halda sig auðvitað inest í námunda við þær krær og „bul!ur“ sem bílþjóf ar stunda mest . . . Vísir. Mér varð á að segja sisona við ungan mami: Hvernig skyldi fólk hafa farið að þvl að lifa í gamla daga án út varps og sjónvarps, Hann svaraði um liæl: O, þvi tókst það lieldur ekki. Það er allt gaman steindautt fyrir löngu Niður með brennivínið. sagði bindindismaðurinn. En ég gat bara ekki komið meiru niður. . , . ÞAÐ ER komið hálfgert hárlos á bítlana. Við hér á Alþýðublað- inu þurfum ekki að fara í graf- götur með orsökina. Þetta er okk- ar verk og engr? annarra, nema ef vera skyldi eins skólastjóra úti í bæ. Og þetta er þarft verk mætti segja. Svo brá við, þegar eftir að fyr- irsögn birtist hér í blaðinu þess efnis, að þeir söfnuðu helzt hári, sem miður eru gefnir, að rakara- stofur lentu í hers höndum svo til á sömu stund. Alls konar sögu- sagnir hafa spunnizt um bæinn um allt það uppnám, sem varð á þessum stofnunum. Hvernig lærl- ingarnir fengu skömm í hattinn, þegar þeir ætluðu að fara að túb- era hárið á „dömunum,” hvernig allir koppar og kyrnur voru orðn- ar fleytifullar af alla vega litu hári löngu fyrir hádegi og hvern- Fá sinn eig- inn íverustað ★ Tatarar í París eiga nú að fá sinn eiginn nýtízku íverustað í útjaðri borgarinnar. Þetta nýja hverfi er gjöf frá de Gaulle og hann gefur töturunum það vegna þess, að einu sinni á hinum erfiðu tímum ársins 1941 las tatar-akona í lófa lians, og þvi hefur hann aldrei gleymt. Dag nokkurn þeg ar tatarakona, sem hét Sarah, var að selja saumnálar á götuhorni í Lundúnum, sá hún mann réft hjá sér. Hún fylgdi manninum eftir inn í strætisvagn og sagði við hann. „Þú átt góða framtíð. Þú hefur heppnina með þér í öllu, sem þú tekur þér fjmir hendur.“ Oft síðar elti Sarah manninn, sem reyndist vera De Gaulle, en það var ekki fyrr en þegar hún isagði honum rétt fyrir um það, að næsla dag myndi konungur veita honum móttöku, að de Gaulle leyfði henni að lesa í lófa sér. Sarah dó fyrir nokkrum árunr síðan, en það er sagt að nýlega hafi tvær aðran tataraspákonur. heimsótt de Gaulle og spáð fyrir honum, og sjálfsagt hafa þær spáð vel fyrir Iionum í sambandi við forsetakosningarnar. ig venjulegir viðskiptavinir forð- uðu sér hið skjótasta jesúandi sig í allar áttir, jafnskjótt og þeir höfðu rekið nefið inn um dyrnar á uppáhaldsrakarastofunni sinni. Þetta var óttalegt uppnám og ágætt sem slíkt. Hitt er þó öliu verra, að einhverri bítlahljómsveit úr dreifbýlinu gekk þetta svo til hjarta, að þeir gerðu út leiðangur hingað til okkar í þeim tilgangi að sanna, svo ekki varð um villzt, að við hefðum liaft rétt fyrir okk- ur (og skólastjórinn auðvitað líka). Þó er annað jafnvel enn verra. Við vitum ofur vel, að skammt er öfganna á milli, þó langt sé end- anna á milli, á liárinu. Við höf- um nasasjón af því, að til að bæta sér upp hármissinn, ætli bítlarn- ir að krúnuraka sig, liversu ein- kennilega, sem það kann að hljóma. Við megum sem sé eiga von á því, að næstu daga fjölgi mjög unglingum á götum bæjar- ins, sem geta speglað sig í skallan- um hver á öðrum. Mig hryllir við þeirri tilhugsun að þurfa kannski að horfa á túttugu þrjátíu bítla í einni halarófu, kreistandi fíla- pensla úr nefinu á sér eftir spegil myndimni í skalla næsta manns fyrir framan. Þó verður gaman að sjá, hvernig fremsti bít- illinn bregst við sínum vanda, hvort iiann hefur yfirleitt vit á að hafa með sér venjulegan vasa- spegil. Svo er það sú hlið máisins, sem að kennurunum snýr. Okkur hef- ur sem sé flogið í hug, að með þessari stefnu málsins, sé háreyð- ingarherferð skólastjóranna í rauninni komin í vaskinn (hversu ! einkennilega, sem það kann ann- ars að liljóma). Hugsum okkur venjulegan sómakæran kennara, sem Jítur upp úr kennslubókinni í byrjun tíma og sér blasa við sér heilan hafsjó af skínandi sköll- um. Væri þetta ekki í rauninni stórhættulegt, ef hann væri kom- inn á hjartaslagsaldurinn? Hafa skólastjórarnir (og við auðvitað líka) í rauninni gengið til góðs, götuna fram eftir veg, eins og karl- inn sagði? Þetta er auðvitað mjög athyglis- vert vandamál, sem krefst tafar- , lausrar rannsóknar og lausnar í | samræmi við niðurstöður hennar. j Vér uppalarar og barnshafendúr, verðum að gera okkur ljóst, hvaða hvatir liggja á bak við þessa hegð- un unglinganna og sjálfsagt virð- ist að setja nefnd sálfræðinga í málið með rakarameistara, sem oddamann.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.