Alþýðublaðið - 22.10.1965, Síða 8
um frá Reykjavik og Akureyri, en
sá flugvöllur, sem nú er á Siglu
i tfirði er ekki nógu1 stór fyrir
i stæn-i vélarnar. Nýjan er verið að
gera, og er. áætlað, að hann verði
kominn í gagnið síðari hluta næsta
árs. Er þessi flugvöllur þegar orð
inn 600 metra langur, en ætlun
in er að bæta sunnan við hann
150 metrum næsta sumar. Síðar
: meir má búast við, að hann verði
lengdur upp í 1000 metra. Ættu
þá nokkuð stórar innanlandsvélar
að geta lent á þessum nýja flug
> velli. Þess mætti geta, að á meðan
sjóflugvélanna naut við voru fast
ar áætlunarfugferðir til Siglufjarð
ar og að sjálfsögðu þaðan aftur.
En það eru víst liðin fimm ár frá
því að Katalínaflugbátur Flugfé
lags íslands hóf sig á loft af Siglu
firði i síðasta sinn.
Siglufjarðarkirkja stendur hátt
og gnæfir yfir bæinn. Á turn henn
ar var sett upp stundaklukka í
tilefni af aldarafmæli séra Bjarna
Þorsteinssonar tónskálds, og leik
ur hún eina laglínu úr lagi séra
Bjarna „Kirkjuhvoll'' á hverju
• kvöldi klukkan sex. Setur þetta
. sérstæðan og skemmtilegan blæ
á baainn og er aðkomufólk sér
lega hrifið af klukkuspilinu og
. margir bæjarbúar stanza og hlusta
, á meðan klukkan leikur þessa
' fallegu laglínu.
Á jólum er kveikt á stóru jóla-
- tré á aðaltorginu og alls konar
ljósaskreytingum víðsvegar um bæ
inn. A gamlárskvöld er svo brún
Hvanneyrarskálarinnar, sem er
beint upp af kaupstaðnum, skraut
lýst og gamla ártaiið myndað með
ljósum í hlíðinni. Kiukkan tólf á
miðnætti breytist ártalið í tölu
hins nýja árs og þúsundum flug
elda er skotið upp. Þannig er
nýja árinu heilsað og hið gamla
kvatt.
Mörg ár eru liðin frá því að
Þormóður rammi nam Siglufjörð
á landnámsöld. Einn af yngri íbú
um Siglufjarðar sagði mér að
Þormóður þessi hefði verið kall
aður rammi, vegna þess, að hann
hafi gert mikið af að innramma
myndir. en hið rétta í málinu mun
vera það, að hann, var talinn mjög
rammur að afli, og því nefndur
hinn rammi. Þormóður bjó á
Siglunesi, sem er austan megin
fjarðarins og lokar hluta af mynni
hans um leið og nesið stöðvar
stórar. öldur úthafsins, svo að þær
komast ekki inn á fjörðinn. Eyrin
sem kaupstaðurinn stendur á heit
ir Þormóðseyri, eftir hinum fyrsta
Siglfirðingi.
í þann tíð, er Þormóður hinn
rammi sigldi skipi sínu fyrst inn
á Siglufjörð, mun landið hafa ver
ið skógi vaxið milli fjallfc og
fjöru, eins og segir í íslendinga
bók. Nú eru fjallshlíðarnar að
mestu gróðurlausar, þótt stöku
grasflákar teygi sig upp eftir
Verzlunin Túngata 1 h.f.
SIGLUFIRÐI — SÍMAR 224 OG 133.
KVENNA og HERRAFATNAÐUR
Ávallt mikið úrval af kventízku-
vörum, kvenkápum og barnafatnaði.
Bifreiðaverkstæðið Neisti h.f.
Eyrargötu 12 — Sími 203
Sigiufirði.
Framkvæmum
allskonar bílaviðgerðir.
Bifreiðaverkstæðið Neisti h.f.
SIGLUFIRDI
Hér sér yfir nokkrar af síldarverksmiffjunum á Siglufirði, en þær eru alls fimm,
þeim. Niður við sjóinn er gróður
inn meiri og annars staðar á lág
lendi er mjög gróðursælt.
Tré er nú aðeins að finna í
görðum við hús bæjarbúa, en
fallegir garðar eru þónokkkuð
matgir, prýddir ýmsum tegund
um blóma»og túngróðurs.
Ef við lítum á spjöld sögunnar
kemur í ljós að fyrsta verzlunin
er stofnsett á Siglufirði árið 1788,
en þá voru íbúar staðarins vart
fleiri en svo, að telja mátti á
fingrum sér. Strax eftir þetta fer
svo Siglufjörður að verða meiri
staður unz þannig var komið mál
um að konungur löggilti hann
sem verzlunarstað 20 maí árið 1818
Líður nú heil öld milli merkis
atburða, en árið 1918 hinn 20.
maí, þegar verzlunarréttindin voru
orðin 100 ára, fékk Siglufjörður
kaupstaðarréttindi. Þá var þar kos
in fyrsta bæjarstjórnin.
Fyrr á öldum var mikil útgerð
frá Siglunesi. Bæði sóttu þá sjó
inn þeir, sem bjuggu á Siglunesi
og menn úr nálægum byggðarlög
um. Munu hákarlaveiðar hafa ver
ið mest stundaðar, og blómaskeið
þeirra verið á öldinni sem leið.
Til dæmis mætti nefna það, að frá
Siglunesi voru gerð út 14 hákarla
skip árið 1869.
Laust fyrir aldamótin, nánar til
tekið á árunum 1890—1900, gerðu
Norðmenn þaðan út 20 hvalbáta.
Svo kemur síldin til sögunnar
því að árið 1880 er á Siglufirði
stofnað félag, sem gangast á fyr
ir síldveiðum í svonefnda síldar
lása. Þessi aðferð þótti athyglis
verð, en fljótlega lognaðist félags
skapurinn útaf og síldarlásarnir
reyndust ekki betur en svo, að fljót
lega var hætt notkun þeirra.
Líða nú ár og dagar fram til
1903. Þá vöktu Norðmenn Siglfirð
inga aftur upp af dvalanum, sem
þeir höfðu legið í árum saman,
Norðmenn bentu á gildi síldveið
anna og sýndu Siglfirðingum ný
tæki til veiðanna, reknet og hring
nót. Þetta hreif, og síðun hefur
allt snúizt um síldina í þessum
laglega litla bæ.
Ár eftir ár hefur verið trúað
og treyst á síldina, þennan silfur
fisk, sem óvissari en en nokkurt
happdrætti. Stundum hefur hún
heimsótt Siglufjörð, sem yfirleitt
er nefndur gíldarbær, — stundum
ekki. Segja má, að síðastliðna
tvo áratugi hafi síldin ekki leitað
á miðin fýrir norðan land, og er
Úr
Og
klukkur
r
i
fjölbreyttu
úrvali
Svavar
Kristinsson
úrsmiður
S;glufirði
Húsbyggjendur Húseigendur.
Tökurn aff okkur byggingar allskonar húsa og annarra
mannvirkja. Önnumst viðgerðh'.
Smíffum: Hurðir, glugga og allar gerðir af innréttingum
til húsa. Sendum hvert á land sem er.
Getum útvegaff hverskonar byggingarvörur eftir pönt-
unum.
Höfum alltaf á lager hina velþekktu steinull til einangr-
unar, einnig allar þykktir af einangrunarplasti.
Höfum umboff fyrir hið heimsþekkta Cudogler, sem við
útv/'gum með stuttum fyrirvara.
BYGGINGAVERKSTÆÐiÐ S.F.
Grundargötu 1, Siglufirffi.
Skúli Jónasson. Sími 385. — Reynir Sigurðsson.
í 8 22. október 1965 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ