Alþýðublaðið - 09.12.1965, Side 7

Alþýðublaðið - 09.12.1965, Side 7
Undrandi yfir dönsku- kunnáttu íslendinga Rvík, — ÓTJ. DANSKA blaðið Politiken birti fyrsta desember sl. grein um dönskukunnáttu íslendinga, og er blaöamaðurinn, Aksel D^slov mjög undrandi yfir hversu marg ir tala hana og skilja. Átti hann viðtal við Heiga Elíasson fræðslu tnálastjóra sem gaf honum ýms ar upplýsingar um dönskukennsl una hér. Blaðamaðurinn segir að ísland sé eina iandið í heiminum þar sem danska sé meðal þeirra erlendra tungumála er teljast til skyldufaga. Getur hann þess að þetta séu alls ekki áhrif eða leifar frá þeim tímum er ísland var hluti af Da). tnörku, þetta hafi fyrst verið lög leitt 1946. Hann segir einnig að döfeskukennfila^. valdi inokkjrum erfiðleikum, þar sem erfitt sé að fá nægilega lærða kennara. Það ;sé einkum framburðurinn sem menn strandi á, hann fáist ekki góður nema menn hafi dvalis.t í Flestir, sem komnir eru á miðj aldur, muna eftir skáldsög- unni Valdimar munkur EFTIR SYLVANUS KOBB Sagan þótti hrífandi ög með afbrigðum spennandi, bæði sem ástarsaga og saga um mikla karlmennsku. Bóikin 'hefur nú uim langt skeið verið ófánanleg og er ekki að efa að nú muni hún þykja kær- komin á jólamarkaðánn. Bókaútgáfan Vörðufell. Danmörku. Þessvegna sé tekið með þakklæti allri aðstoð frá Dan- möi ku og þess er m.a. getið að ifyr^r þremur árum síðan hafi danska menntamálaráðuneytið veitt 60 þúsund danskra króna styrk til aðstoðar. Hefur þetta einkum verið notað til bókakaupa Einnig hefur danska menntamála i. áðuneytið aðstoðað við að koma íslenzkum kennurum á námskeið í Danmörku, og danskir stúdent ar hafa heimsótt íslenzka skóla til þess að leyfa nemendum þar að heyra hvernig réttur framburð ur sé. Að lokum spyr blaðamaður inn Helga um þýðingu dönskunnar fyrir- íslenzka skóla, og fræðslu málastjóri svarar m.a.: Ég veit að margir á hinum Norð urlöndunum halda að ísland sé orðið mjög undir amerískum á- hrifum. Þetta er ekki rétt. Við eru enn bundnir sterkum bönd um við frændþjóðir okkar og sú staðreynd að fólk Norðurlandaþjóð anna skilur hvort annars mál er ómetanlegt. Þeir nemendur sem læra vel dönsku geta fylgst ná kvæmlega með norrænum bók- menntum, því að öll meiriháttar verk á norsku og sænsku eru þýdd yfir á dönsku. Blaðamaðuir inn bætir Við persónulegri reynslu sinni og segir að hafi hann gætt þess að tala hægt og greinilega hafi hann ekki átt í neinum vand ræðum í viðtölum sínum við fólk og að um 75 prósent Reykvíkinga hefðu þá getað tekið þátt í sam ræðunum. Hann hafi einnig hitt marga íslendinga sem töluðu dömku án nokkurs keims, og eng um hefði getað dottið annað í húg en að þeir væru danskir háskólaborgarar. Leiðrétting Það láðist að geta þess í blaðinu í gær, að grein sú er birtist um sögu og uppruna Skarðsbókar var unnin upp úr skýrslu, sem Ólafur Halldórssqfn, cand. mag., starfs maður Handritastofnunarinnar, hefur gert fyrir menntamálaráðu neytið. Ritgerð Ólafs mun birtast í heild í næsta hefti af Studia Islandica. FORMANNARÁÐSTEFNU IÐNNEMAFÉLAGA LOKIÐ Dagana 13, 14. nóv. sl. var hald- in í húsi Hins íslenzka prentara- félags í Reykjavík, formannaráð- stefna aðildarfélaga Iðnnemasam- bands íslands, með sambands- stjórn. Þátttakendur voru for- menn iðnnemafélaga víðsvegar á landinu og fulltrúar þeirra. Formaður I.N.S.Í., Gylfi Magn- ússon, setti ráðstefnuna og ávarp- aði íundarmenn. Fundarstjóri var síðan kosinu Sigurður Jensson og ritari Ingi Torfason. Flutt var skýrsla um störf sam- bandsstjórnar og kom þar fram að unnið er að stofnun nýrra iðn- nemafélaga í Reykjavík, Hafnar- firði og Vestmannaeyjum. Þá hafði stjórn sambandsins rætt um kjarabætur til handa hárgreiðslu- nemum, við stjórn Félags hár- greiðslumeistara, en árangurs- laust. Ýmislegt fleira kom fram í skýrslu stjórnarinnar og mátti Framhald á 10. síffu. Jólafargjöld Fl fyrir skólafólk Eins og mörg undanfarin ár, mun Flugfélag íslands nú auð velda skólafólki ferðir heim um jólin, með því að veita því sér- stakan afslátt af fargjöldum. Allt skólafólk, sem óskar eftir að ferðast með flugvélum félags ins um hátíðirnar á kost á sér stökum lágum fargjöldum, sem ganga í gildi 15. desember n.k. og gilda til 15. janúar 1966. Þessi isérgtöku fargjöld . skóla fólkg eru tuttugu og fimm af hundraði lægri en venjuleg far gjöld. Til þess að njóta þessara kjara þarf að sýna vottorð frá skóla stjóra, sem sýni að viðkomandi stundi nám og að keyptur sé tví miði og hann notaður báðar leið ir. Fólk, sem ætlar að ferðast um hátíðirnar er bent á, að panta far tímanlega, því samkvæmt jreyn'lu liðinna ára*. verða síð ustu ferðir fyrir jól fljótt full. skipaðar. Tll jólagjafa Vanti yður góða jólagjöf þá munið FACÍT ferðaritvélar F A C I T tryggir gæðin, Shíi c7. clöíinsQn /,.f. Túngötu 7 — Símar 12747 og 16647. KAUPMENN OG KAUPFÉLÖG FYRIRLIGGJANDI: Barnableyjur, mjög ódýrar. Bómull, 50, 100 og 200 gr. plastpokar. Tabú dömubindi. Pappírsvasaklútar. Kr. Þorvaldsson & Co. Heildverzlu'n — Grettisgötu 6. Símar 24478 og 24730. Kaupmenn Kaupfélög Eins og undanfarin I ár erum við með alls f.i konar skrautflug- elda fyrir áramótin. | ★ | Rafknúin leikföng, J margar tegundir. Everest j Ttradisig Company Grófin 1. Símar 10090 og 10319. Augiýsingasíminn er 14906 ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 9. des. 1965 J UiúA Jöuui djA tídti. .aab ll

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.