Alþýðublaðið - 09.12.1965, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 09.12.1965, Blaðsíða 9
stundir á dag og komi Elenu litlu alltaf í háttinn á kvöldin. Og á hverju kvöldi verði hún að syngja fyrir hana vöggulag. Og Valent ina fer með sönginn, hún syng ur ekki, hún segir fram orðin. Elena sofnar alltaf út frá vöggu' laginu, segir Valentina, og ekkert heyrist í henni alla nóttina. Hún sefur vært, og er þæg og góð. í öllu sem Valentína segir, kemur í ljós, að hún vill lifa sama lífi og aðrar mæður í landinu henn ar. Hún lagði áherzlu á, að láta það uppi, að hún og fjölskylda henn ar væru ósköp venju egar mann- eskjur, sem hefðu þau aðaláhuga mál að vinna fyrir land sitt og lifa rólegu lífi. Þegar hún fer út að ganga með Elenu í kerrunni sinni taka vegfarendur ekkert sér staklega eftir þeim, vegna þess að þeir þekkja hana alls ekki. Og hún segist ekki vilja, að allir bendi á Elenu og stari á hana, þegar hún stækkar, aðeins að hún verði heilbrigt og hamingjusamt barn. Og Valentina heldur áfram að segja frá dóttur sinni. — E1 ena tók fyrstu sporin, þegar hún var aðeins tíu mánaða gömul. Við héldum í hendurnar á henni, og svo gekk hún af stað. Það vár regluleg ,,geimferð“ hjá hennlL Valentína er hreykin af dóttur sinni og hún segir að hún sé al veg eins og pabbinn, hún hafi meira að segja sama göngulagið. Valentina Nikolajev er fædd í litlu þorpi, Masslenikovo. Þegar hún var tveggja ára, fór faðir hennar í herinn og barðist á landa mærum vestur Úkraníu. Hann fél í stríðinu. Þegar Valentína fór í skóla höfðu flest börnin í bekkn um misst feður sína í stríðinu við landamærin og konurnar urðu því að gegna störfum karlmanna, t.d. að vera lestarstjórar, en það var aðaláhugmál Valentinu, þegar hún var telpa að verða lestarstjóri. En brátt fékk hún ýmis önnur áhuga mál, hún byrjaði að leika á píanó og píanó konsertar Tschaikovskys var það sem hún vildi helzt spila og hlusta á. Vorið 1953 tók Val entiná lokaprófið úr skólanum og fékk sér vinnu. Eftir erfiða at- vinnuleit tókst henni loksins að fá vinnu í verksmiðju við að skera gúmmí. Vinnan var erfið og á kvöldin stundaði hún nám í kvöld skóla. í kvöldskólanum lagði hún aðallega stund á tæknifræði. Eftir að Valentina hafði tekið lokapróf í skólanum, hóf hún að leggja stund á fallhlífarstökk í frístund um sínum. Og dag nokkurn kom að því að velja átti geimfara úr hópi þeirra er stunduðu fallhlífar stökk í klúbbnum, sem Valentina var í. Va entina hafði mikinn á- huga á því að verða fyrir valinu, það var draumur liennar að kom ast út í geiminn í geimfari. Hún dáðist að geimförunum og las allt sem hún komst yfir um geimfara. Hún hafði brennandi áhuga á því að verða geimferðakona. Þess vegna settist hún niður og skrif aði bréf til yfirvaldanna um það, hvort þeir vildu taka sig á lista þeirra, sem æfðu fyrir geimferð ir. Meðan hún beið eftir svari, æfði hún fallhlífarstökkið af tvöföldu kappi. Og hún beið alltaf eftir bréfinu, sem hún vonaðist eftir að fá frá yfirvöldunum. En svarið kom ekki í bréfi. Flugmaður nokk ur, sem kom í heimsókn í fall 'hlífarstökksklúbbinn, ráðlagði henni að gangast undir læknisrann sókn. Og nokkru seinna fékk hún símskeyti frá Moskvuborg, þar sem hún var boðuð til geimferðarstöðv arinnar þar. Þegar þangað kom hitti hún bæði menn og konur, sem áttu að þjálfa til geimferðar. Og þar á meðal var Andrian Nikol ayev, sem síðar varð eiginmaður hennar. í geimferðastöðinni gekkst hún undir ýmiss konar prófraunir sem margar voru bæði óþægileg ar og erfiðar, en hún lét það ekki uppi, ságði aðeins að sér hefði lið ið vel, þó að hún hefði haft dynj andi hjartslátt og ýmiss konar ó- þægindi, bæði líkamlega og and lega. Svo var það einn júnídag árið 1963 að röðin kom að Valen tinu að fara í geimfari út í geim inn. Hún fór fjörutíu og átta hringi umhverfis jörðu, og minnisstæð ast var henni þegar hún kom í ja>ðsku#g£tmt Það varð fiemni ógleymanlegt. Geímfatinn Valentina Nikola- yev talar um þessa reynslu sína á mjög eðlilegan hátt, en auðséð er, að starfið hefur verið og er henni ánægju. En Elena litla Nik olayev er svo lítil enn þá, að hún héfur ekki hugmynd Um geimferð ir, en þegar hún verður stór, skyldi hún þá ekki vérða géim fafi eifls og 'pabbi hennar og mamma. Geimfararnir Valentína og Andrian Nikolayer með’ dóttur sína. DÆGURVÍSA eftir Jakobínu Sigurðarcfóttur er tvímœfalaust bezta skáldsagan sem út kemur á þessu ári. Allir, sem lesið hafa DÆGURVÍSU, Fofa skáld- konuna fyrir verk hennar. Eru hér nokkur sýnishorn úr ummcelum gagnrýnendas I Dcegurvísa er þess konar skáfcfsaga, aS enginn má fáta hana framh’iá sér fara, sá sem á annað borð vill fylgjast með þróun íslenzkra bókmennta. Erlendur Jónsson (MorgunblaSiS 5. cfes. 1965). Þ&GURVISA Svona getur engin manneskja skrifað nema hún hafi til að bera skáldsýn og rithöfundarhcefileika. stgr (Vtsir 22. náv. 1965), HMl . . hún hefur nú þegar sótt fram fyrir ffestar ís- fenzkar skáldkonur — gott ef ekki altar. Árni Bergmann /ÞióSviljinn 21. nóv. 1965), Þirnm . . . cetti að vera óhcett að kveða upp úr með það, að ísfendfngar hafa eignast hfutgenga unga skáld- konu sem nokkurs má vcenta ®f í framtíSinni. A.K. (Tíminn f. cfes. 1965), Fyrsta skáfdsaga Jakobínu SigurSardóttur er óvenju- veí skrifuS saga . . . Svona er hcegt að skrifa ef rrtaður kann tif þess. Ó.J. (AlþýSubíaSiS I?. nóv. 1965), Það er ánœgjulegt að korta skuFE skrífa beztu skáldsögu ársins, — skáldverk sem allir lofa sem Fesið hafa — og þar með hrinda ómild- um og óverðskulduðum sFeggjúdómi um „kerlingabcekur" og ritstörf kvenna. SHUBGSJ& Hatfabúð Reykjavíkur Laugavegi 10 Loðhúfur nýkomnar í miklu úrvali. Greiðslusloppar — Peysur, ínnlendar og út- lendar. — Samkvæmistöskur, fallegar ódýr- ar. — Skinnhanzkar, loðfóðraðir — Kven- töskur — Blússur, svartar, hvítar, mislitar. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 9. des. 1965 $

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.