Alþýðublaðið - 21.12.1965, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 21.12.1965, Blaðsíða 11
Valur vann Skogn maö 12 gegn 11 og leikut i 2. umferð E vrópubikarkeppninnar Valsstúlkurnar eru komnar í II. umferð í Evrópukeppni meistara- liða. Það var leikurinn í gærkvöldi sem skar úr um þetta, en þá 'sigr- uðu þær norsku meistarana Skogn með 12 mörkum gegn 11 í spenn- andi leik. ★ Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn, þó Valur leiddi til að byrja með en þær komust mest í 3:1. Fyrsta markið skoraði Sigrún G. úr vítakasti, en áður höfðu þær norsku fengið vítakast en misnot- að það. Tröite jafnaði með skoti af línu. Sigríður nær yfirhönd- inni með laglegu marki og Sigrún ★ Danir sigruðu Norðmenn í handknattleik á sunnudag með 19:9 og höfðu mikla yfirburði Beztu menn danska liðsins voru Jörgen Petersen, sem skoraði 7 mörk og Gelvad í markinu. Ole Sandhöj var einnig góður. ★ Þrír leikir fóru fram í Ev- rópubikarkeppni karla í handbolta á sunudag. RK, Svíþjóð vann Op- eratie, Hollandi 21:20, Dulka Prag sigraði Frischauf, Göppingham 11:7 og Zagreb, Júgóslafíu vann Marseilles, Frakklandi 30:16. Síð- ari leikur þessara félaga fer fram 9. janúar G. skorar úr vítakasti. Hin smá- vaxna snögga Björg Tangen skor- ar næstu tvö mörk Skogn með smuguskotum. Þá skorar Sigrún Ingólfsdóttir mjög fallega 4:3 fyrir Val. Enn jafnar Tangen með góðu skoti. Sigrún G. nær forystu, en á síðustu mínútu skorar Norög úr vítakasti og lauk fyrri hálfleik þannig með jafntefli 5:5. Valur byrjar vel í síðari hálf- leik og Erla Magnúsdóttir skorar af línu eftir góða sendingu frá Sigríði. Skömmu siðar er Björg frí á línu, en hindruð og vítakast er dæmt, úr því skorar Sigrún G. örugglega. Þær norsku ná að jafna á 9. mín. Næstu 3 mörk eru Vals, fyrst skorar Ragnheiður Lárusdóttir, þá skorar Sigríður og Sigrún G. skorar það 10. En norsku stúlkurnar gefa sig ekki og jafna, þegar um 2 mín eru eftir af leik og æsist nú leikurinn. Sigríður skorar 11:10 og rétt á eftir skor- ar Sigrún G. með upphoppi og sigurinn blasir við og er stað- reynd, þó svo að Tröite skori síð- asta mark leiksins. Úrslitin 12:11 verða að teljast sanngjörn og eru allavega ánægjuleg fyrir okkur og þá sérstaklega Valsunnendur. Bezt í liði Vals var Sigrún Guð- mundsd., en þær Sigrún Ingólfs OOOOÓOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO Kentucky leikur við landsliðið á morgun ANNAÐ KVÖLD leikur banda- ríska körfuknattleiksliðið Kent- ucky state College við íslenzka landsliðið í íþróttahöllinni, en það verður fyrsta körfuknatt- leikskeppnin sem þar fer fram. Kentucky er áreiðanlega lang- bezta körfuknattleiksliðið, sem hingað hefur komið og hér eru nokkrar upplýsingar um bezta manninn í liðinu. Floyt Theard, bakvörður i liði Kentucky State, var ein af aðalstjörnunum l bandaríska háskólaliðinu, sem sigraði i Heimsmeistarakeppni háskóla- liða, sem fram fór l Budapest í sumar. Theard er talinn vera fljótasti varnarleiksmaður í bandarísk- um háskólaliðum í dag. Það er ekkert smáræði, þegar hugsað er um að körfuknattleikslið við bandariska háskóla skipta þúsundum og Bandaríkjamenn eru fremstir allra þjóða í heimi í þessari íþróttagrein. íslenzkir áhorfendur munu áreiðanlega njóta þess að sjá þennan snilling á gólfinu í nýju íþróttahöllinni i Laugar- dalnum. ■ Floyt stundar nám við Iþrótta kennaradeild skólans og lang- ar mest til að verða sjálfur körfuknattleiksþjálfari þegar fram líða stundir. og Guðbjörg í markinu voru einn- ig góðar. Sigriður virðist ekki í æfingu og skot hennar voru mjög misheppn- uð. Beztar hjá Skogn voru mark- vörðurinn og Björg Tangen, en liðið er jafnt en vantar ískyggi- lega skyttur. Dómari leiksins var Gudnitz og voru dómar hans margir í hæsta máta furðulegir. ★ Forleik léku mfl. karla FH og Valur. FH sigraði 22:19. Verður nánar sagt frá þeim leik á morgun. I. V. Sigrún Guðmundsdóttir skorar glæsilega fyrir Val. Leikir Vals og Skogn í Evrépukeppninni: Valur hafði betur fyrri daginn II: 9 VALUR sigraði Skogn í fyrri leik liðanna í Evrópubikarkeppn- inni með 11 mörkum gegn 9, en staðan í hléi var 5:3. Leikurinn var frekar lélegur, Valsstúlkurnar eiga harðskeyttari skyttur og það gerði gæfumuninn. Aftur á móti er léttara yfir leik Skogn, en liðið skortir betri skyttur. FYRRI HÁLFLFIKVR. Eftir fimm mínútna leik skorar Sigríður Sigurðardóttir fyrsta mark leiksins úr vítakasti, en mín útu síðar jafnar Háfjeld með góðu skoti og Törresvold bætir öðru marki við skömmu sfðar Aftur skorar Sigríður og enn úr víta- kasti, 2:2. Sigrún Guðmundsdóttir færir Val aftur forystu á 9 mín- útu með góðu skoti, en Tröite jafnar fyrir Skogn. Síðustu mínútur leiksins skorar Sigrún tvö mörk í viðbót, Skogn fékk dæmt vítakast á þessu tima- bili, en skotið lenti í stöng. SÍDARI HÁLFLEIKUR Valur byrjar síðari hálfleik vel og um miðjan hálfleikinn munar sex mörkum 10:4. Síðustu mínút- urnar virðist úthald Valsstúlkn- anna á þrotum og þær norsku minnka stöðugt bilið og þegar tíma vörður gefur merki um, að leik sé lokið, sézt 11:8 fyrir Val á marka- töflunni. Dómarinn Aage Gudnitz, Danmörku var ekki á þeirri skoð- un, að leik væri lokið, taldi klukku tímavarðarins vitlausa og leikið er eina mínútu í viðbót. Á síðustu sekúndu leiksins skorar Noröy fyrir Skogn, þannig að leiknum lauk með 11:9 fyrir Val. LIDIN. Eins og fyrr segir léku norsku stúlkurnar betur úti á vellinum, höfðu meiri hraða og betra úthald. Aftur á móti voru skyttur Vals sterkari. Sigrún Guðmundsdóttir var bezt hjá Val og Sigrún Ingólfs- dóttir lék einnig vel. Sigríðar Sig urðardóttur var vel gætt og hún 1 naut sín ekki. Katrín í markinjj varði vel. Hjá Skogn bar mest á Törres- vold og Háfjeld. Skjetnemark stóð sig vel í markinu. Mörk Vals skoruðu: Sigi’íður Sigurðardóttir 3, Sigrún Guðm. dóttir 5 og Sigrún Ingólfsdóttir 3. Mörk Skogn skoruðu: Noröy 3, Törresvold 2, Hafjeld, Tröite, Aune og Tangen 1 hver. Dómarinn Aage Gudnitz var frekar slappur og þessi aukamín- úta hans var nánast furðulegt uppS tæki. Dómarinn Gudnitz og Bjarni I Björnsson, timavörður Valur vann Fram 17:16 VALUR sigraði Reykjavíkur- meistara fram í forleik í hand- knattleik í sambandi við leik Skogn og Vals á sunnudag, skoraði 17 mörk gegn 16. Leikurinn var sæmÞ legur, Valsmenn höfðu mun betur í fyrri hálfleik og komust í 10:4. Þá komst Fram fyrst í gang, eða sofnuðu Valsmenn á verðinum. A nokkrum minútum breyttist staf> an í 12:10 Fram í vil! Síðustu min- úturnar voru spennandi, en sigun* * inn lenti Valsmegin og það var verðskuldað. Allt bendir til þess að Valur blandi sér í stríðið um ís- landsmeistaratililinn. Liðið verður að fá meira jafnvægi í leik sinA, þegar það er orðið, mega FH cg Fram vara sig. v ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 21. des. 1965

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.