Vísir - 23.10.1959, Blaðsíða 1
12
síður
V
12
síður
49. ár.
Föstudaginn 23. október 1959
232. tbl.
Veik ríkisstjórn býiiur
öngþveitinu heim.
Þess vegna er nú lífsskil-
yrði fyrir þjóðina að fá
sterka ríkisstjórn, sem getur
komið atvinnu og fjármálum
á fastan og heilbrigðan
grundvöll.
Flóðbylgju dýrtíðarinnar
er haldiði skefjum um stund
arsakir. Varnargarðurinn er
veikbyggður og stendur til
bráðabirgða. Hið minnsta
víxlspor getur opnað flóð-
gáttirnar og fært í kaf allt
atvinnu- og fjárhagskerfi
landsins.
Þjóðin á ekki margra kosta
völ. Annað hvort er nú að
stöðva verðbólguna eins og
allar aðrar þjóðir Evrópu
hafa nú gert, eða láta allt
fara úr böndunum — sem
þýðir aímennt öngþveiti,
skort og neyð.
VEIK RÍKISSTJÓRN
BÝÐUR ÖNGÞVEITINU
HEIM. SJÁLFSTÆÐIS-
FLOKKURIN N ER EINI
FLOKKURINN, SEM HEF-
IR MÖGULEIKA TIL AÐ
FA MEIRIHLUTA í KOSN-
INGUNUM OG STOFNA
STERKA RÍKISSTJÓRN.
Með því að veita Sjálf-
stæðisflokknum öfhigt fylgt
getur þjóðin byggt öryggan
varnargarð gegn verðbólgu
og upplausn — og tryggt sér
góð og lífvænleg kjör.
Vantar 10 km.
á Vestfjariaveg.
Frá fréttaritara Vísis.
ísafirði í gœr.
Bílddælinga vantar 10 kíló-
metra vegarspotta til þess' að
komast á nýja Vestfjarðaveginn
og ná sambandi við norðurhluta
Vestfjarða. Er þeim mikið á-
[hugamál að koma þessu í fram-
kvæmd sem fyrst. .Myndarleg-
ast hefði verið að vegarkafli
þessi hefði verið gerður i haust.
Þar sem það varð ekki, vænta
Bilddælingar að hann verði
gerður strax á næsta. vorj. —
Arn.
Lagt að Frökkum að íaílast
á fund æðstu manna.
Vilræíur í Psls. — Eisenltower viíl skjólan
fund vesfyænna ieiótoga.
Ottazt er, að vb.
IViaí hafi hvolft.
Lína bátsíns hefír fundizt auk
stampa og svefnpoka.
Menn hallast að þeirri skoð-
«#, að vb. Maí frá Húsavík hafi
hvoift í fyrradag, en hó eru
mnn ekki úrkula vonar um, að
mennirnir tveir af honum
kxmni að vera á gúmmí björg-
unarbáti, sem þeir höfðu með-
ferðis.
Átta bátar leituðu að Maí í
gær, auk flugvélar af Kefla-
víkurflugvelli, og fundu þeir
lóðastampa og svefnpoka á
þeim slóðum, þar sem báturinn
hafði lagt línu sína. Þeir fundu
einnig línuna, 20 stokka, en
þegar síðast var haft samband
við bátinn, áttu þeir félagar
á honum eftir ódregna 24
stokka. Virðist því óhappið
hafa komið fyrir skömmu síðar,
en veðurhæð var um þessar
mundir 7 vindstig.
Ef mennirnir hafa komizt í
gúmbátinn, hefir þá rekið til
hafs, því að vindur var suðlæg-
ur. Til vonar og vara hefir ver-
ið gengið á fjörur, en það hefir
enga árangur borið.
Henry Fálfdánsson sagði í
morgun, að búið væri að leita
um allt svæðið þar sem líkur
væru til að eitthvað fyndist af
bátnum eða úr honum. Flug-
vélin leitaði við beztu skilyrði
í gær. Var gott skyggni og
stilltur sjór. Talið er, að bátn-
um muni hafa hvolft og að
mennirnir hafi ekki haft tíma
til að losa hylkið með gúm-
bátnum, sem líklega hafi verið
geymt á þaki stýrishússins.
Heita vatnið
að brjótast upp
í morgun var farið að rjúka
úr djúpu borholunni við Nóa-
tún og er það fyrsti vottur um
árangur af hinni miklu borun,
2,20 metrar,
Upp komu 3 lítrar á sekúntu
af sjóðndi vatni, sagði Gunnar
Böðvarsson verkfræðingur, en
þetta á eftir að aukast. Það er
búið að hreinsa sandinn úr
botninum, en það er enn mylsna
j í holunni og fæst ekki almenni-
leg svörun fyrr en hún hefir
hreinsast burtu. Svona djúpar
holur eru lengi að svara, sagði
Gunnar, og vonir standa til, að
vatnsmagnið aukist að mun
eftir nokkurn tíma.
Hylkin með gúmbátum fljóta
og hefði það átt að finnast, ef!
það hefði verið losað frá bátn-j
um. Stampar og annað sem
fannst úr bátnum, var slcammt
frá þeim stað, sem talið er að
hann hafi sokkið. Aðrir hlutir,1
svo sem gúmbáturinn, hefðu þá
| átt að vera á svipuðum slóðum,!
því veðrið lægði svo til rétt
! eftir að báturinn mun hafa far-!
i izt- j
Eftir seinustu fregnum frá
París að dæma virðist afstaða
Frakka til fundahalda æðstu
manna enn nœsta óljós, þrátt
fyrir að De Gaulle hafi lagt til,
að fundinum verði frestað. til
nœsta vors.
Sagt er, að ambassador Sov-
étríkjanna hafi haldið áfram
viðræðum við stjórnina — hann
gekk fyrir nokkru á fund De
Gaulle og hefur nú rætt við
utanríkisráðherrann — og er
sagt, að hann hafi ítrekað, að
sovétstjórnin telji fund æðstu
manna æskilegan hið fyrsta. —
Einnig kunna viðræðurnar að
vera tengdar því, að sagt er,
að De Gaulle hafi boðið Krúsév
til Frakklands.
Eisenhower vill fund
'vestrœnna leiðtoga.
Eisenhower gerði grein fyrir
afstöðu sinni í gær á fundi með
fréttamönnum. Hann kvaðst
ekki hafa lagt fram neinar til-
lögur um fund æðstu manna,
en hann hefði gert öðrum vest-
rænum leiðtogum kunnugt, að
hann teldi fund þeirra til undir-
búnings fundi með Krúsév for-
sætisráðherra Sovétríkjanna,
æskilegan, og að hann yrði hald-
inn á þessu ári.
Eftir ag vita ■—•
Hann hefur þannig raunvéru-
lega tekið afstöðu með Macmill-
an, forsætisráðherra Bretlands,
sem hefur markvisst unnið að
fundi æðstu manná síðan hann
fór til Moskvu, og er nú eftir að
vita hver verður endanleg af-
staða De Gaulle, sem alkunm
ugt er um, að hann fer, ef ' því
er að skipta, sínar eigin götur,
hvað sem hver seg'ir. En svo
er nú komið, að lítill vafi er á,
að leiðtogar allra hinna Fjór^
veldanna eru á öndverðum meið
við hann að því er varðar fund
æðstu manna. Eftir talsmanni
frönsku stjórnarinnar og þar
með hans er sagt, að í rauninni
ráði sá ferðinni, sem hægast
fari.
Á Engiandi var 9 barna
móðir nýlega dæmd í
þriggja niánaða fangelsi
fyrir að svíkja út opinber-
an styrk. Fénu varði hún í
þágu barna sinna sem eru á
aldrinum 10 mánaða til 15
ára.
ViSl Tíiiiifiisi B'aniiMÍkn á
itörfnm skattstj óran§?
Tíminn hefur að undanförnu
verið að heimta rannsókn á nið-
urjöfnunarnefnd. Nú vita það
kannske ekki allir, að megnið
af störfum varðandi niðurjöfn-
un útsvara í Reykjavík er ekki
unnið af niðurjöfnunarnefnd,
sem aðeins er opinber nefnd, er
starfar lítinn hluta áári og held-
:ur þá aðeins takmarkaðan fjölda
funda. Hins vegar er það skatt-
stofan í Reykjavík og hið geysi-
f jölmenna starfslið hennar, sem
öll undirbúningsverkin vinnur,
yf irreilínar, endurskoðar og
breytir framtölum, ef hún sér á-'
stæðu íii, og leggur framtölin
þannig undirbúin fyrir niður-
jöfnunarnefndina. Það er því að
langmexíu leyti komið undir
stöiíum skattstofunnar, hvort
framtölum manna cr breytt og
útsvöi verða önnur, hærri eða
lægri, en menn væntu. Það er
kannske heldur engin tilviljun
að Eystéihn Jónsson hefur gætt
þess vendileg'a að ráða einungis
Framsóknarmenn á skattstof-
una og var m. a. síðasta emb-
æítisvetík ha'hs að skipá Ragnarí
Ólafsson — þann er sótti um
útsvarslækkunina fyrir hann
sjálfan — varaskattstjóra.
Ef ætti að rannsaka störf nið-
urjöfnunarnefndar, hlyti sú
rannsókn að beinast fyrst og
fremst að störfum skattstofunn-
ar og yfirmanns hennar, skátt-
stjórans, sem sjálfur sýnist ekki
njóta neitt lakari útsvarskjara
en aðrir, sem opinberlega hafa
verið tiltíndir, en tekjuskattur
hans er kr. 28.317, — en útsvar
kr' 22.400,—.
Siðasti kjósenda-
fundurinn í kvöld.
Síðasti kjósendafundur Sjálfstæðisfélaganna fyrir þess-
ar kosningar verður haldinn í kvöld í Gamla Bíó.
Fundurinn hefst kl. hálfníu, en þá leikur Lúðrasveit
Reykjavíkur nokkur lög í upphafi fundar.
Tíu efstu menn á lista Sjálfstæðisflokksins flytja ræður
á fundinum, þau Bjarni Benediktsson, Auður Auðuns,
Jóhann Hafstein, Gunnar Thoroddsen, Ragnhildur Helga-
dóttir, Ólafur Björnsson, Pétur Sigurðsson, Birgir Kjaran,
Davíð Ólafsson og Geir Hallgrímsson. Fundarstjóri verður
Björn Ólafsson.
Það mun óþarft að hvetja menn til að sækja fund þenn-
an. Réttara er að ráðleggja fólki að koma snemma til að ná
í sæti, !því vafalaust er að færri komast inn en vilja, — og
ekki missir sá, er fyrstur fær.
Frá fulltrúaráði Sjálfstæð-
isfélaganna í Reykjavík
ALLT SJÁLFSTÆÐISFÓLK er hvatt til starfa fyrir Sjálf-«
stæðisflokkinn á kjördegi.
SKRÁSETNING á sjálfboðaliðum fer fram i skrifsthfu flokks-
ins í Sjálfstæðishúsinu dagléga kl. 9—12:00 1—9.
Fólk er ámtnht atl láta skrá sig til stárfa sém fýrst. í :