Vísir - 15.12.1959, Blaðsíða 6
VISIR
Þriðjudaginn 15. desembeí 1959
VISIR
D A G B L A Ð
Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson.
Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3.
Ritstjójmarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,30—18,00.
Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00.
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00.
Sími: 11660 (fimm línur).
Vísir kostar kr. 25,00 í áskrift á mánuði,
kr. 2,00 eintakið í lausasölu.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Vitmaður og ritsniíiingur taiar.
Maaaii]*aiiiiir eftir l'álma Ifaaaaa-
essoaaai* afbragðslaók.
Hefnifir kommiínista.
Kommúnistar eru menn heift-
ræknir og það er líka stað-
reynd, að þeir eru næsta
lengi að gleyma mótgerðum.
Þetta kom fram um helgina,
, þegar Þjóðviljinn gerði það
að aðalfrétt sinni, að komið
, væri upp „nýtt fjársvikamál
, innan Framsóknarflokksins".
Virðist blaðið vita næsta vel
um það„ sem gerist innan
herbúða Framsóknarflokks-
ins og í innsta hring hans, og
það fór heldur ekki leynt, að
það hlakkaði í kommúnist-
um yfir að geta komið þess-
ari skemmtilegu fragn á
framfæri við lesendur sína.
Þarna hafa kommúnistar vafa-
laust verið að hefna fyrir
það, þegar Hannes Pálsson
bar skjalaþjófnað á einn
helzta trúnaðarmann komm-
únistaflokksins, Sigurð Sig-
, mundsson, enda er nafni
Hannesar komið á framfæri
í fregninni. Hann er raunar
eini maðurinn, sem nefndur
er, og frá því skýrt, að hon-
um hafi verið falið að rann-
saka fjársvikin sem eru með-
] al annars fólgin í því, að
horfin eiga að vera fylgi-
skjöl úr bókhaldi í sambandi
við fé það, sem safnað var í
kosningasjóð Framsóknar-
flokksins á sl. sumri.
Oll er þessi fregn Þjóðvijans
skrifuð á hinn lævísasta hátt
til að sannfæra lesendur um,
hvílíkir fantar Framsóknar-
menn eru — það er talað um
„ný fjársvik“ og með því
gefið í skyn, að um mörg
,,gömul“ svikmál sé að ræða,
og svo einn maður nafn-
greindur, sem á að leita að
týndu fylgiskjölunum. Ber
víst að skilja það svo, sem
skipun hans í embættið sé í
samræmi við enska máltæk-
ið: „Set a thief to catch a
thief“, og ber að líta á það
sem meðmæli með nokkuð
sérstökum hætti.
í sambandi við þetta verða
menn að hafa hugfast, að
Framsóknarmenn og komm-
únistar eru sem einn maður
í baráttu sinni gegn stjórn-
inni. Ætli hið fornkveðna
eigi ekki við í því sambandi:
„Sækjast sér um líkir!“
Ef eg ætti að kjósa mér ein-
liverja eina bók til lesturs og
eignar af þeim 200 bókum, eða
rúmlega það, sem á markaðiml
hafa komið í haust, myndi eg
velja bók Pálma Hannessonar:
Mannraunir, og ekki þurfa til
þess langan umhugsunarfrest.
Mannraunum skipa eg á bekk
með því bezta sem skrifað hefur j
verið á íslenzku síðustu áratug-
ina og gefið hefur verið út. j
Mannraunir er lokabindi rit-;
safns Pálma rektors, sem Bóka-^
útgáfa Menningarsjóðs gefur út,'
en alls eru bindin þrjú og er^
þar birt allt meginefni, sem frá
hendi Pálma hefur komið. —j
Þetta er einstætt ritsafn, sem
! erindi á inn á hvert einasta
heimili þar sem bækur eru lesn-
ar og bókmenntir í heiðri hafð-
ar. í bókinni Mannraunum nær
ritsnilld Pálma og frásagnar-
máti hámarki.
Bókinni er skipt í tvo megin-
þætti, frásagnir af ýmsum svað-
ilförum og mannraunum svd,
og skólaræður, sem Pálmi hélt,
fyrir nemendum sínum í
Menntaskólanum í Reykjavík.
Þetta efni er um 'margt ólíkt,
en í hvorutveggju nýtur rit-
snild Pálma sín með ágætum.
Enginn maður, sem eg hefi
kynnzt kunni betur að segja
sögu heldur en Pálmi Hannes-
son. Þar bar margt til. í fyrsta
lagi var hann einlægur aðdá-j
andi karlmennsku og hetju-
I lundar, í öðru lagi var íslenzka!
Pálma meitlaðri heldur en hjá
flestum samtímamönnum öðr-!
Sigurför Eisenhowers.
Ferðalag Eisenhowers Banda-
ríkjaforseta hefir snúizt upp
í sannkallaða sigurför, og
mun engan hafa órað fyrir
því, að honum yrði svo vel
, tekið sem raun hefir á orðið.
Kommúnistar hafa oft haft
lag á að efna til óeirða í sam-
! bandi við ferðir andstæðinga
sinna, sbr. för Nixons um
Suður-Ameríku, en í þetta
skipti bar ekkert á þeim.
Almenningur í löndum þeim,
sem Eisenhower hefir heim-
sótt, hefir fært sönnur á
vinfengi sitt við hann sem
tákn Bandaríkjaþjóðarinnar.
Mest urðu fagnaðarlætin í
' Indlandi, og er ástæðan vafa-
* laust meðal annars sú, að
Indverjar óttast yfirgang
Kinverja — og ekki að á-
stæðulausu — og vilja láta
vita um hug sinn til þeirra
og hinna, sem eru á öndverð-
um meið við þá.
Indverjar eru stærsta lýðræðis-
þjóð heimsins, enda þótt lýð-
ræðið standi þar ekki á
gömlum merg, en þeir hafa
fengið að kynnast nýlendu-
stjórn, svo að þá langar ekki
til að komast undir svipað
stjórnarfar aftur. Og sízt
munu þeir óska þess, að land
þeirra kæmist undir hinn
rauða imperíalisma, sem
Nehru er nú farinn að tala
um. Móttökurnar við Eisen-
hower undirstrika þetta
greinilega.
um, og í þriðja lagi hnitmiðaði
Pálmi frásögu pína og byggði
eftir listrænum lögmálum.
Engu atviki varð ofaukið, ekk-
ert vansagt. Hann meitlaði efni-
viðinn unz listaverk var skapað.
Pálmi var ekki mikilvirkur
höfundur — því miður — en
þeim mun velvirkari, og það
gerði gæfumuninn.
í skólaræðum sínum kom
Pálmi ekki við þeirri einstæðu
frásagnargleði sem honum var
gefin í vöggugjöf og gaf frá-
sögum hans meiri svip og þunga
en hjá flestum öðrum sögu-
mönnum sem skráð hafa örlög
og hetjudáðir íslenzkra manna.
En þar kom annað til. Og það
ar alhliða þekking hans og vit,
og þó fyrst og fremst eldlegur
áhugi hans að gefa æsku lands-
ins og verðandi menntamönnum
og þjóðarleiðtogum vegarnesi
sem verða mætti þeim að haldi
og giftu um alla 'framtíð. Þess
vegna eru skólaræður Pálma
hvorki stað- né tímabundnar,
heldur alhliða hvatning og leið-
beining til allrar æsku á öllum
tímum. Þeim sem les þessar
ræður Pálma dylst ekki að þetta
eru orð viturs manns, sem gott
er að hugleiða og gefa börnum
og vinum í vegarnesti áður en
haldið er út í alvöru lífsins.
Fyrir margt framtak á Menn-
ingarsjóður þakkir skildar. Út-
gáfustarfsemi hans hefur stór-
batnað á skömmum tíma, en
fyrir enga bók er eg jafn þakk-
látur, sem rit Pálma Hannes-
sonar.
Þ. J.
Varist eldiitn in jó!in.
Húseigandaféfagið aðvarar bæjarbúa.
Yftrgangur Kínverja.
Annars má segja það um yfir-
gang Kínverja, að hann hefir
gert mikið gagn, því að hann
hefir opnað augu milljóna í
Asíu fyrir því, sem leynist
. raunverulega bak við bros og
fleðulæti kommúnista. Fög-
. ur orð eru einungis ætluð til
að blekkja þá, sem ætlunin
er að kúga og undiroka, þeg-
ar tími verður til þess kom-
inn.
Menn gera ráð fyrir, að fundur
æðstu manna verði haldinn
snemma á næsta ári, og þar
er vitanlega ætlunin að reyna
að finna einhverja leið til að
draga úr spennu á alþjóða-
málum. Krúsév hinn gerzki
hefir verið manna áfjáðastur
í að koma þessum fundi á,
því að hann vill vera sérstak-
ur friðarpostuli. Hætt er
hinsvegar við, að aðstaða
hans verði erfiðari en hinna,
þegar á fundinn verður kom-
ið, því að í hans herbúðum
er sá aðilinn, sem virðist eng-
Það er . alkunna, hve . eld-
hætta eykst, er líður á skamni-
degið, og notkun hitunar- og
ljósatækja verður meiri og al-
mennari. Hátíð ljósanna, — jól-
in — eru einmitt á svartasta
skammdegistímanuin, en þá
keppast bæði böm og fullorðn-
ir við að hlýja og lýsa upp hí-
býli sín, og því meiri sem jóla-
gleðin er, því meira ljós, og
gleði. i
Þess vegna er það að jólin
eru hættulegasta tímabil árs-
ins, hvað eldhættu áhrærir, og
hefur reynslan sýnt og sannað
það áþreifanlega.
Húseigendafélag Reykjavík-
ur hefur tekið að sér það hlut-
verk fyrir Reykjavíkurbæ, að
aðvara og benda á ýmsar hætt-
ur í sambandi við meðferð elds
og ljósa, og hefur í þeim til-
gangi birt mikið af aðvörunum
og ábendingum undanfarna
mánuði, haft opna skrifstofu til :
an áhuga hafa á vinsamlegri
sambúð við grannþjóðir sín- (
ar. Kínverjar virðast stað-!
ráðnir í að gera orð Krúsévs
um nauðsyn friðsamlegrar
sambúðar að engu, og þeir
hafa sannfært marga um, að
þeir hafa engan áhuga fyrir
slagorðum manna i Kreml.-
leiðbeininga, og unnið ýmislegt
til undirbúnings frekari aðgerð
um. Núna fyrir jólin sendir fé-
lagið út lítinn bækling í tilefni
jólanna, ög er þar bent á ýmsar
hættur, og hvað fólk þarf helzt
að varast yfir hátíðarnar. Bækl
ing þessum verður dreift svo
víða um bæinn, sem hægt er,
og verður útbýtt í ýmsum
verzlunum til viðskiptavina.
í undirbúningi er annar leið-
beiningabæklingur um olíu-
kyndingartæki og meðferð
þeirra, sem verður vonandi til-
búinn upp úr nýári, og verður
þá dreift til þeirra, er olíu-
kynditæki nota.
í Húseigendafélaginu eru nú
um eða yfir 2000 meðlimir, og
er starfsemi félagsins all fjöl-
þætt, og húseigendum veitt
margs konar þjónusta. Formað-
ur og framkvæmdastjóri félags
ins er Páll S. Pálsson hæsta-
réttarlögmaður.
Skrifstofur þess eru að Aust-
urstræti 14, III. hæð, og opnar
alla virka daga kl. 1—4 og 5—
7, og geta menn fengið þar all-
ar upplýsingar varðandi stai'f-
semi þess, svo og ráðleggingar
í ýmsum vandamálum.
Bezt a5 augiýsa í Vísi.
Viggó Oddsson, form. Reykja-
víkurdéildar Bindindisfélags öku-
manna, hefur ski’ifað eftirfar-
andi til birtingar i Bergmáli:
Götuvitar ogf
stefnunierki.
Bindindisfélag ökumanna hef-
ur nokkrum sinnum vakið at-
hygli almennings og yfirvalda á
nauðsyn þess að sett verði upp
rétt gönguljós á götu-ljósvitana,
fyrir gangandi fólk, því grænt
ljós fyrir akandi og gangandi
kviknar jafnsnemma fyrir báða
og veldur því að gangandi fólk
verður oft að stelast yfir götu á
rauðú ljósi ef það á ekki að daga
uppi á götuhorninu. Þetta ástand
er sérlega bagalegt á horni
Bankastrætis og Lækjargötu,
því þar eru bílarnir úr Banka-
stræti oftast búnir að loka
göngubrautinni áður en nokkur
hefur tíma til að komast yfir
götuna. Þarna hefur oft munað
litlu að slys verði.
Kétt notkun stefnuljósa.
B.F.Ö. hefur notað hvert tæki-
færi, sl. 10 mánuði, til að vekja
athygli á mikilvægi réttrar stefnu
Ijósanotkunar til að auka á um-
ferðar-öryggi og til að gera um-
ferðina liprari og greiðari fyrir
jafnt akandi og gangandi. Loks
er svo komið að lögreglan segist
hafa tekið upp eftirlit með stefnu
Ijósanotkuninni og hótar þeim
afarkostum, sem eru gleymnir
á gildandi umferðarreglur.
Gleðifréttir.
Þetta eru miklar gleðifréttir
og verður umferðaryfirvöldun-
um seint þak-kað ef þessi áhugi
endist lengur en til jóla. Síðan í
marz 1959 hefur notkun stefnu-
Ijósa aukizt úr ca. 14% í 24% í
júní, í október byrjun 54% en í
lok okt. 43%. Um þessa helgi, 11.
—13. des.er notkun stefnumerkja
nálægt 65% af umferðinni. Til-
litssemi og kurteisi bílstjóra hef-
ur því aukizt úr 14% í marz, í
ca. 65% i des. Er vissulega leit
að meiri og almennari framför-
um í umferðarmenningu.
Esperantéafmæii.
La 100-jara dat reveno
Zamenhof.
Esperantistar halda um þess-
ar mundir upp á hundrað ára
afmæli dr. Zamenhofs, höfund-
ar alþjóðamáisins esperanto.
í júlíumánuði árið 1887, þeg-
ar dr. Zamcnhof var aðeins tæp-
lega 28 ára að aldri, gaf hann
út fyrstu kennslubók sina í
esperanto. Síðan eru nú liðin
rúmlega 72 ár, og allan þann
tíma hefir alþjóðamálið esper-
anto verið notað meira og minna
á öllum sviðum talaðs og ritaðs
máls. Bókmenntir þess hafa
blómgast og dafnað vel á þessu
tímabili, og áratugum saman
hafa komið út mörg myndarleg
rt á málinu, ekki hvað sízt nú á
síðustu árum.
Afmælisins er minnzt víða
um lönd, m. a. héldu esperant-
istar í Reykjavík upp á það sl.
sunnudag með sérstökum fundi,
þar sem Baldur Ragnarsson
flutti erindi um Zamenof, og í
kvöld (15. des.) flytur Árni
Böðvarsson cand. mag„ formað-
ur esperantistafélagsins Aur-
oro í Reykjavík, útvarpserindi
um hann.