Vísir - 15.12.1959, Síða 12
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir.
Látið hann færa yður fréttir og annað
lestrarefni heim — án fyrirhafnar af
yðar hálfu.
Sími 1-16-60.
Munið, að þeir sem gerast áskrifendur
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-60.
Ráðherrafundur Nato
settur í París í dag.
Óeiningin og gagnrýnin á Frakka
meðal helztu mála.
í dag hefst í París fundur
Utanríkisráðherra N orður-At-
landshafsbandalagsins.
Spaak framkvstj. bandalags-
ins sagði í gær, að hann vonaði
að fundurinn ræddi gagnrýni
Twinings, bandaríska hershöfð
ingjansí gerð Frakka og fleiri
bandalagsþjóða fyrir að hafa
vanrækt skuldbindingar sínar
við Nato. Spaak kvað ganrýni
Twinings ekki hafa verið
hneykslanlega. Brezk blöð
segja, að Twinings hafi aðeins
rætt það, sem sé almennt um-
ræðuefni.
Meðal mála, sem utanríkis-
ráðherrarnir ræða eru fundir
æðstu manna, afvopnun, Berlín
Hálka á Aktir-
eyrargölum.
Frá fréttaritara Vísis. —
Akureyri í gær
Glerhálka var á götum Akur-
«yrar í nótt og í morgun, eink-
um uppi á brekkunni.
Voru mikil brögð að því að
menn dyttu á hálkunni þegar
þeir voru að fara til vinnu og í
skóla í morgun, en ekki hafði
frétzt af neinum meiri háttar
slysum.
í gær var frost á Akureyri og
Igötur víða svellaðar. í nótt brá
svo til hláku og gerði mikla
rigningu, sem enn stóð í morg-
un með 3 stiga hita.
Allir vegir eru færir, ekki
aðeins um Eyjafjarðarsýslu,
heldur um alla Þingeyjarsýslu,
allt norður til Þórshafnar.
Greiðsia virni-
inga hjá Happé.
Happdrætti Háskólans ósk
ar þess getið, að vinningar
verði greiddir dagana 17., 18.,
21. og 22. desember kl. 2—4
í Tjarnarbíói (gengið inn um
, portið). Síðar í skrifstofunni,
Tjarnargötu 4, kl. 10—11 og
j 13.30—16 alla virka daga
m nema laugardaga kl. 10—11.
Vinningar verða að vera
áritaðir af umboðsmönnum.
■— og seinast en ekki sízt, sam-
starfið innan Nato.
Herter og Selwyn Lloyd
ræddust við í 4 klst. í gær. —
Óeiningin milli vestrænu þjóð-
anna veldur enn vaxandi á-
hyggjum. De Gaulle er ekki
sagður sérlega trúaður á gagn-
semi þessara samtaka. Annars
hafa Frakkar sent Bandaríkj-
unum mótmæli út af gagnrýni
Twinings, sem hélt því fram,
að Frakkland hefði veikt sam-
tökin, í fyrsta lagi með brott-
flutningi Alsír, í öðru lagi með
afstöðu, sem hefði leitt til, að
Bandaríkjamenn hefðu orðið
að flytja herlið frá Frakklandi
til Bretlands.
Rússar tala um nýtt
vígbúnaðarkapphlaup.
Rússar hafa sent frá sér mót-
mæli — sem um varð kunnugt
á þeirri stundu að kalla, er ut-
anríkisráðherrar Nato koma
saman í París, Þeir mótmæla
vopnakaupum Vestur-Þjóðverja
og vígbúnaði og segja raun-
verulega vera hér um kjarna-
vopn að ræða (kjarnaoddar eru
þó ekki afhentir með sprengj-
um). og fljótlegt að setja þá á
(öll kjarnavopn í V.Þ. eru í
vörzlu Breta og Bandaríkja-
manna) Settur ambassador V.-
Þ. sagði í gær, að hér væri um
byrjun vígbúnaðarkapphlaupa
að að ræða. Mótmæli voru einn
ig send Bretum, Frökkum og
Bandaríkjamönnum.
Kjarnorkan í
algieyniingi.
Kjarnorkusögum fjölgar nú
jafn og þétt í öllum löndum,
cins og eðlilegt cr á kjarnorku-
Öld.
Snæfell í Hafnarfirði hefur
sent frá sér ,,Kjarnorkuborinn“
eftir Victor Appleton. Segir þar
frá ævintýrum Tom Swifts, en
hann er ungur uppfinninga-
rnaður, svo að bækurnar um
hann fjalla um uppfinningar
framtíðarinnar. Er þetta hörku-
spennandi bók og við hæfi nú-
tímadrengja. Skúli Jensson
þýddi söguna.
Byggðasafn opnað í gær í
Garðhúsum á Akranesi.
Er í elzta steiiihúsi á íslandi.
Frá fréttaritara Vísis. —1
1 Akranesi í gær.
Byggðasafn Akraness var
opnað í gær. Er það í gamla
Garðshúsinu, hinum forna
kirkjustað Akurnesinga. Garðs-
húsið er elzta steinhús á íslandi
hyggt 1876.
Fjöldi gamalla muna er þeg-
ar kominn. á safnið og kennir
þar að sjálfsögðu ýmissa grasa,
allt frá saumnálum að róðrar-
báti. Hafa Akurnesingar gengið
ötullega fram í að safna til
byggðasafns síns, sem þegar frá
upphafi er hið myndarlegasta.
Hreppsnefndir utan Heiðar sátu
boð bæjarstjórnar Akraness í
gær þegar safnið var opnað.
Santið um verðlagningu
landbúnaðarahirða.
Samningar hafa sfaðið
í 10 daga.
í tilefni af 60 ára afmæli sínu
í sl. viku, gaf Trésmíðafélag
Reykjavíkur bæjarstjórninni
fagurlega skorinn skurðhamar,
gerðan af Ríkharði Jónssyni. —
Gjöfina afhenti Guðni Árna-
son, formaður félagsins, en
Gunnar Thoroddsen,, forseti
bæjarstjórnar, tók við og þakk-
aði gjöfina.
Hér er staddur í stuttri hejm-
sókn Donald R. Nuechterlein,
sem var blaðafulltrúi banda-
ríska sendiráðsins á árunum
1954—56.
Síðan hann fór héðan, hefir
hann starfað í upplýsingadeild
utanríkisráðuneytisins í Was-
hington og fjallað meðal annars
um mál, sem ísland og íslenzk
málefni snerta. Hefir hann því
Kaldbakur selur
í Grímsby.
Frá fréttaritara vísis.
Alcureyri í morgun.
Togarinn . Kaldbakur . seldi
afla sinn 158 lestir, í Grímsby
í gær fyrir 10884 sterlingspund.
Kaldbakur verður nokkra
daga í Grímsby til viðgerðar á
stefni skipsins, en er samt vænt i
anleg'ur heim fyrir jólin.
Gert er ráð fyrir að allir Ak-
ureyrartogararnir verði í
heimahöfn um jólin. Harðbak-
ur kom af veiðum í gær með
um 130 lestir af þorski eftir 9
sólariiringa útivist. Togarinn
fer strax út aftur, en mun
koma til Akureyrar á aðfanga-
dag. Svalbakur er væntanlegur
af veiðum fyrir helgi og slétt-
bakur á mánudag. Þeir munu
báðir fara til smávægis viðgerð
ar og ekki fara á veiðar aftur
fyrir jól.
Undanfarna 10 . daga hafa
staðið yfir samningaviðræður
milli fulltrúa Stéttarsambands
bænda annars vegar og liins
vegar fulltrúa neytendasam-
taka, Alþýðusambands íslands,
Landssambands iðnaðarmanna
og Sjómannafélags Reykjavík-
ur, um það, hvernig haga skuli
verðlagningu . landbúnaðaraf-
urða. . Landbúnaðarráðherra,
Ingólfur Jónsson og Gunnlaug-
ur Briem, ráðuneytisstjóri,
tóku þátt í viðræðum þessum.
S.l. nótt náðist samkomulag
milli þessara aðila um það,
hvernig með þessi mál skuli
farið framvegis.
Aðal breytingar frá fyrra
skipulagi eru sem hér segir:
1. Svokölluð sexmannanefnd,
sem skipuð er tveim mönnum
frá Stéttarsambandi bænda,
einum frá Framleiðsluráði land
búnaðarins og þremur mönn-
um frá framangreindum neyt-
endasamtökum, skal skipuð að
nýju þegar í stað.
Höfuðverkefni sexmanna-
engan veginn slitið sambandi
við ísland, þótt hann hafi horf-
ið af landi brott, og loks má
geta þess, að han ritaði á sínum
tíma ritgerð mikla um utanrík-
is- og varnamál fslands eftir
1944 og hlaut Nuechterlein
doktorsnafnbót fyrir hana.
Meðan Nuechterlein var starf-
andi hér, kynntist hann miklum
fjölda manna bæði hér í Reykja
vík og annars staðar á landinu
og átti vinsældum að fagna.
Jöklarannsóknafél. Islands
sýnir kvikmynd af leiðangri
Sir Vivian Fuchs yfir Suður-
skautslandið í Tjarnarkaffi,
niðri, þriðjudaginn 15. des.,
kl. 20.30.
Eisenliower Bandaríkjafor-
seta var tekið með virðingu og
innileik í gær í Aþenu. Er gizk
að á, að yfir milljón manna hafi
fagnað honum.
Eisenhower og Páll konung-
ur óku í opnum vagni til kon-
ungshallarinnar. Á leiðinni var
numið staðar og lagður sveig-
ur á gröf. óþekkta hermanns-
ins. Eisenhower. ávarpaði
nefndar verður að ákveða verð-
lagsgrundvöll til bænda og
verð á búvörum í heildsölu og
smásölu. Gildir þessi skipan
fyrst og fremst um verðlagn-
ingu að hausti til og aðrar verð-
breytingar, er verulegu máli
skipta.
2. Söluverð landbúnaðarvara
á erlendum markaði skal ekki
bætt upp með því að hækka
söluverð búvara á innlendum
markaði. Hins vegar er bænd-
um tryggt að fá innlenda verð-
ið fyrir útfluttar búvörur.
3. Verðlagsgrundvöllur sá,
sem sexmannanefnd ákveður,
skal gilda frá 1. september s.l.
Reykjavík, 14. des. 1959.
Ný bylgjufengd
Ríkisútvarpsins.
í morgun hóf Ríkisútvarpið
að senda á nýrri bylgjulengd,
1437 metrum (eða 209 kílórið-
um), sem keniur í staðinn fyrir
1648 metra bylgjulengd áður..
Tvær þýzkar útvarpsstöðvar
hafa nú um nokkurt skeið út-
varpað svo nálægt bylgjulengd
íslenzka útvarpsins, að miklar
truflanir hafa hlotizt af. Hinar
þýzku stöðvar eru Evrópa I. í
Saar á 1621 m og austur-þýzka
stöðin Deutschlandsender í
Berlín á 1665 m bylgjulengd,
■og stöðvarnar eru það sterkar,
að Ríkisútvarpið hefur ekki séð
sér annað fært en að breyta
um bylgjulengd, eins og áður
segir.
Bretar taka við
flóttafólki.
Fyrsti hópur flóttamanna,
sem Bretar ætla að taka við nú
og næstu vikur kom til Bret-
lands fyrir helgi. Var þetta 49
manna hópur.
Sumt af þessu fólki er
berklaveikt. Það er flest frá
Júgóslavíu og Albaníu og hef-
ur verið í flóttamannabúðum á
Ítalíu.
gríska þingið og sat veizlu í
konungshöllinni.
I dag lýkur heimsókninni.
Leggur hann af stað frá Grikk-
landi á bandaríska herskipinu
Des Moines og kemur til Tunis
á fimmtudag og ræðir þar við
Bourgiba forseta.
Á föstudag' hefst Parísarfund-
urinn.
Ritaði doktorsritgerð, sem
fjaliaði um íslenzk málefni.
Fvi*ridii blaðafiillfnii liér í
sficíííri Iiclniisokii.
Eisenhower á leið til
fundar við Bourgiba.
Parísarfundurinn hefst n.k. laugard.