Vísir - 10.02.1960, Qupperneq 12
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir.
Látið hann færa yður fréttir og annað
iestrarefni heim — án fyrirhafnar af
yðar hálfu.
Sími 1-16-60.
WÍSXiC.
Munið, að þeir sem gerast áskrifeudur
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá hlaðið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-60.
Miðvikudaginn 10. febrúar 1960
’
SSHÍ
•'•■/•'/"sV.'v .• w
H
* t’i.. •
•. ■■•/•'•'/'.•■' •••'•^-'/'•■/•■</./^'/1 -Ail• >5
fri
' jff"
:
MWM
\
wm
*
■■ í'
■
S :■'■//
• '
. .■•'.■• '/-./ .■•/• :
- ' w ■; ■./ -
; ?/%'•-• /•• .'••• .•■■/- ./,•',•- .-*.•.. .,.'.-.••
í lok sl. viku lauk Barbara
Moore, 56 ára kvenlæknir í
Bretlandi, 1600 km. göngu frá
nyrzta odda Skotlands til Lands-
enda á Cornwall-skaga, syðsta
bletts í Englandi. Hún gekk
jþetta á rösklega þrem vikum
og gerði það til að sanna ágæti
grænmetis til manneldis. Hún
ér að hugsa um að ganga þvert
yfir Bandaríkin — 5000 km.
Flugfreyjur
eftirsóttar.
Flugfélag íslands auglýsti
fyrir nokkru eftir flugfreyjum
til starfa hjá félaginu, og var
umsóknarfrestur útrunninn 27.
jan. s.I.
Óvenjumikið barst félaginu
af umsóknum, og sóttu 60
stúlkur um starfið. Er það
meira en verið hefur undan-
farin ár. Ráðnar verða 10—12
stúlkur, og mun senn líða að
því að ákvörðun verður tekin
um hverjar hljóti hncssið.—
Stúlkurnar eiga að vera á aldr-
inum 19—28 ára, og kunna
eitthvað í tungumálum, en þeg-
ar þær verða ráðnar, verður
haldið námskeið fyrir þær, og
þeim kenndir ýmsir gagnlegir
og þægilegir hlutir.
Astæðan fyrir því að svo
margar stúlkur verða ráðnar
nú, er sú, að flugfreyjur ,,ganga
svo ört út“ að til vandræða
horfir, og hafa t.d. þrjár þeirra
látið ánetjast á undanförnum
mánuðum, og gengið í heilagt
hjónaband.
Járnbrautaverkfall
í Tanganyika.
Tíu þúsund járnbrautaverka-
menn í Tanganyka liafa gert
verkfall.
Þeir gera kröfur um hærra
kaup og bætt vinnuskilyrði.
svo og að teknir verði aftur í
vinnu járnbrautamenn, sem
sagt hefur verið upp. Hafnar-
verkamenn í tveimur stærstu
hafnarbæjum landsins hóta að
hefja samúðarverkfall verði
kröfum járnbrautarmanna ekki
sinnt.
Allt getur farið i bál á
Kýpur á nýjan leik.
Makarios og Kutchuk ó-
ánægðir yfir afstöðu Breta.
Gremja ríkir á Kýpur og ótt-
ast, menn, að ókyrrð kunni að
blossa þar upp þá og þegar.
Það er yfirlýsing, sem birt
var í London í gær þess efnis,
að ekki yrði unnt að hraða af-
greiðslu mála svo, að Kýpur
gæti fengið sjálfstæði sitt 19.
marz er gremjunni veldur. Það
vekur athygli að bæði Makaríos
erkibiskup og dr. Kutchuk hafa
lýst yfir óánægju sinni yfir
þessari afstöðu. Kutchuk sakaði
Breta um hvatvísi, en Makarios
kvað samkomulag ekki hafa
náðst vegna þess, að Bretar
hefðu gert víðtækari kröfur en
gert var ráð fyrir í Lundúna-
samningunum. — Brezk blöð
•telja Makarios eiga sök á, að
rekki hefur náðst samkomulag.
Það eru kröfur Breta um við-
bótarland við herstöðvar til
þjálfunar, sem mest er um deilt,
en ef kröfum þeirra yrði fram-
gengt yrði að hrekja allmarga
bændur frá jörðum þeirra.
Brezk-austurrískar
vi&ræður í London.
Dr. Bruno Kreisky utanrikis-
ráðherra Austurríkis er í Lon-
don.
Hann hóf viði’æður í fyrradag
við Selwyn Lloyd utanríkisráð-
herra og heldur þeim áfram í
dag og í dag ræðir hann einnig
við Heathcoate Amory fjár-
málaráðherra.
Hér er önnur mynd, sem tekin var í gær —
sem þar liggur í kös.
á einni bryggjunni í Eyjum, og það er rígaþorskur,
(Ljósm. Sn. Sn.)
Hann kom með eld-
inn i slökkvistöðina.
Fann reykjarlykt í bíl sínum og
gerði viðeigandi ráðstafanir.
í fyrradag frá svo undarlega
við, að í stað þess að kveðja
Slökkvilið Reykjavíkur út til
slökkvistarfa var komið með
eldinn niður á Slökkvistöðina
til að gera slökkviliðsmönnum
hægara um vik og ónáða þá
ekki að óþörfu.
Þessu var þannig háttað, að
bíleigandi nokkur þóttist verða
þess var, að kviknað væri í
þílnum sínum. Fann hann
reykjarlykt leggja að vitum
sér og þóttist verða reyks var
í aftursæti bifreiðarinnar. Gerði
hann sér þá lítið fyrir, ók bíln-
um að Slökkvistöðinni og bað
um að eldurinn yrði kæfður.
Mun neisti hafa fallið niður í
sætið og eldurinn kviknað á
þann hátt.
Sama dag kviknaði í vél-
bátnum Sæborgu GK-59 er stóð
á þurru í bátanausti við Graf-
arvog og var þar til viðgerðar.
Eldurinn kviknaði í einhverju
drasli í fötu sem stóð í káetu
Þekkirðu
landið
þitt?
Munið, að í dag er síðasti
dagurinn til að skila lausnum
að myndagetraun Vísis. —
Margar ráðningar hafa
þegar borizt og verður dreg-
ið um* verðlaunin og nöfn
vinnenda birt einhvern
næstu daga.
bátsins og af þessum eldi varð
töluvert tjón á bátnum.
Slökkviliðið var tvívegis
kvatt út í gær. í fyrra skiptið
að Hverfisgötu 16 A. Þar fannst
stybba í kjallara og var óttast
um eld. Það mun þó hafa verið
ímyndun ein, en reykjarþef
lagði frá rafhellu.
Á 4. tímanum í gær var
slökkviliðið kvatt að Flókagötu
19. Þar brann mótor yfir í
þvottavél, en eldsvoði var eng-
inn.
Skar sig upp sjálfur.
Nils Alm, sem er eini læknir-
inn í Longyearbænum á Sval-
barða varð fyrir því óhappi, að
taug í öðrum fæti hans slitnaðd.
Hann sá sjálfur að ékki varð
hjá því komizt, að gera upp-
skurð á fætinum. Þar sem ekki
var í annað hús að venda til
læknis tók hann það til bragðs,
að framkvæma skurðaðgerðina
sjálfur. Hann lauk aðgerðinni á
fjórum klukkustundum með að-
stoð systur sinnar.
Deilan um Bizerta, flota-
höfnina í Tunis, er enn óleyst.
Frakkar sinntu ekki kröfu
Bourgiba um að hverfa á brott
þaðan fyrir 8. þ.m. Hafði hann
hótað aðgerðum, ef þeir yrðu
ekki við kröfunni, en hefur nú
orðið að strika yfir stóru orðin,
og tilkynna í útvarpi að reynt
sé að leysa deiluna með sam-
komulagsumleitunum.
Nokkur innbrot
að unrianförnu.
Nokkuð hefur borið á inn-
brotum síðustu næturnar, en án
þess að miklum verðmætum
hafi verið stolið.
í fyrrinótt var brotizt inn í
verkstæði Gamla kompanísins
að Síðumúla við Grensásveg
en ekki varð vart að neinu hafi
verið stolið.
Tilraun til innbrots var gerð
sömu nótt í Brauðborg við
Frakkastíg. Þar hafði áður ver-
ið brotizt inn í vetur og þá stol-
ið allmiklu fé. En síðan höfðu
öflugar járngrindur verið settar
fyrir gluggana — og þegar
þjófurinft varð þeirra var .—
eftir að hafa brotið rúðu, sneri
hann frá án þess að hafast frek-
ar að.
í fyrrinótt var brotizt inn í
afgreiðslu Akraborgar í
Tryggvagötu 10 en ekki séð að
að neinu hafi verið stolið.
Þá var og tilkynnt innbrot í
olíustöðina Klöpp í nótt. Loks
var lögreglunni tilkynnt um
grunsamlegan mann við Sund-
höllina í nótt. Maðurinn var
handtekinn og fannst í fórum
hans eitthvert dót sem hann
vildi ekki gera grein fyrir fyrst
í stað og var hann hafður í
vörzlu lögreglunnar.
Franska stjóniin sendi Túnis-
stjórn orðsendingu, en ekki
hefur verið sagt nánara frá
henni.
Athygli vakti, að Bourgiba
hefur endurtekið, að hann voni,
að stefna De Gaulle sigri í Alsír.
Gæti það stuðlað nokkuð að
því, að Serkir í Alsír aðhyllist.
tillögurnar.
Deilan um Bizerta enn óieyst.
Bourgiba ítrekai*. ad liann sýrðji
Alsirsteíiiu Oe kaulie.