Vísir - 07.06.1960, Qupperneq 1
12
síður
y
12
síður
*0. árg.
Þriðjudaginn 7. júní 1960
125. tbl.
Liinr rænulaus eftir
stys frá lauyardegi
0
ÞrIr drengir lenitu í hön5ison
áreksiri á skellisiöðruon.
. Síðastiiðinn laugardag varð
óvenjulegt slys hér í bænum,
þegar þrír drengir á skellinöðr-
lim óku á bifreið og meiddust
allir meira og minna. Liggur
einn drengurinn ennþá rænu-
laus á sjúkrahúsi og er þungt
haldinn.
Slys þetta varð á Hjallavegi í
Langholtshverfi. Óku dreng-
irnir suður veginn á tvéim
skellinöðrum, og' munu hafa
farið hratt, eftir því sem bezt
verður vitað. Öðru hjólinu ók
(Ekki brosa!)
„Háleitt
siðgæði!“
Knisév lýsir
sjálíuin sér.
„Siðgæði okkar er á svo
háu stigi, að við leggjum
okkur ekki niður við njósn-
ir,“ sagði Nikita Krúsév orð-
rétt á blaðamannafundi í
Kreml á föstudaginn. Hann
sagði ennfremur: „Við vilj-
um ekki vera eins og Banda-
ríkjamenn. Þeir segja, að
njósnir séu sér ógeðsfelldar,
'en samt verði að framkvæma
þær, enda þótt forsetinn eigi
ekki að viðurkenna slíkt . . .
Við fördæmum slíkar starfs-
aðferðir. Við erum þjóð með
mikla og háleita siðgæðis-
kennd . . . .“
VAR NOKKUR AÐ
HLÆJA?
Agnar Guðmundur Árnason, 12
ára, til heimilis í skipasundi
5, og á því hjóii sat einnig Hall-
grímur Pétursson, 14 ára, Bal-
bohverfi 7. Hinu hjólinu ók
Grettir Kristinn Jóhannsson, 13
ára, Balbohverfi 9. Á Hólsvegi
^var fólksbifreið á leið upp veg-
inn, og þegar.hún kom að gatna-
mótum Hjallavegar komu'
drengirnir á fleygiferð á skelli-
nöðrunum og óku beint á
vinstri hlið bílsins.
i Þeir hentust í allar áttir eftir
áreksturinn og lágu ósjálf-
þjarga á götunni þar til sjúkra-
bifreið kom og flutti þá á slysa-
varðstofuna. Einn drengjanrla
mun hafa kastazt á framrúðu
bifreiðarinnar, og braut hana,
og við það skaddaðist bifreiðar-
stjórinn ltíilsháttar. Eftir rann-
sókn á slysavarðstofunni voru
drengirnir allir fluttir þaðan.
Hallgrímur var tábrotinn, og
fluttur heim til sín, en þeir
Grettir og Agnar voru báðir
fluttir í Landakotsspítala með
höfuðáverka, og hafði Grettir
ekki komizt til meðvitundar í
morgun, þegar Vísir spurðist
fyrir um líðan hans. Agnar
mun aftur á móti ekki vera
þungt haldinn, og líða vel eftir
atvikum.
Skellinöðrurnar skemmdust
allar mikið og bíllinn einnig
töluvert. Allir voru drengir
þessir undir þeim aldri, sem
ökuleyfi eru bundin við, en það
mun vera 15 ár. Þar að auki
var önnur skellinaðran óskrá-
sétt skv. upplýsiingum rann-
sóknarlögreglunnar.
■ - " ~í,
Ilér sjást 'prír stökkhestar í þann mund að bregða við. Hlaupvöllur var 350 m. í þetta sinn.
Hestarnir eru, talið írá vinstri, Þröstur, 9 vetra úr Borgarfjarðarsýslu. Eigandi er Ólafur Þór-
arinsson en knapi Ragnar Guðmundsson. — Þr istur varð fyrstur. — í miðið er Blesi, rauð-
blesóttur hestur úr Kjósarsýslu, eigandi Þorgeir Jónsson, en knapinn á myndinni er Jón Ágústs-
son. Blesi varð annar. — Lengst til hægri og þriðji er Gulur, bleikur og 9 vetra úr Eyjafjarðar-
sýslu, í eign Bjarna Bjarnasonar á Laugarvatni. Knapi er Sigurður Jónsson. — Sjá inynd
annars staðar í blaðinu og frétt).
Barizt víða
í Tíbet.
Indversk blöð halda áfram
að birta fregnir um mikla
bardaga í Tibet.
Skæruliðar hófu fyrir
nokkru árásir á flutninga-
lestir kínverskra kommún-
ista og ollu miklu tjóni. Síð-
an hafa bardagar færst út
um allt landið. Þá segja blöð
in, að kommúnistar hafi grip
ið til ógnarstjómar til þess
að reyna að bæla niður mót-
þróann.
Gúik átuskilyrði fyrir
vestan on norlan.
Sjórinn heitari en í fyrra og
mikill þörungagróður.
Varðskipið Ægir hefur orðið ; Samkvæmt upplýsingum frá
að hætta síldar og hafrann- leiðanguisstjóranum Ingvari
sóknum meðan viðgerð fer Hallgrímssyni eru átuskilyrði
fram á asdictækjum skipsins. betri en þau voru í fyrra og
Skipið er væntanlegt til Rvík-
dag.
ur
Sex ungar kontu á laugar-
dag hjá þýzku álftunum.
Fóru á flot í fyrsta sinn í gær.
A laugardaginn varð
skemmtileg fjölgun á tjörninni,
því að þá komu sex ungar úr
eggjum hjá þýzku svanahjón-
unurn.
Nikita Krúsév forsætisráðherra
Sovétríkjanna hefur þegið boð
Fidels Castro, að koma í opin-
bera heimsókn til Kúbu.
Kröfugöngur og átök
daglegt brauð í iapan.
Kislti er ósveigíaiilegur.
Talið er, að 514 millj. manna
hafi tekið þátt í kröfugöngum
róttækra í Japan laugardag fyr-
ir hvítasunnu. I átökum milli
lögreglu og stúdenta daginn áð-
ur fyrir utan hinn opinbera bú-
stað Kishi - forsætisráðherra
meiddust 90 lögreglumenn.
þrettán stúdentar voru hand-
teknir.
Róttæk verkalýðsfélög, stúd-
entar og friðarsinnar áforma að
halda áfram mótmælafundum
um kröfugöngum. Kröfurnar
eru hinar sömu og áður, að
varnarsamningur Bandaríkj-
anna og Japans verði felldur úr
gildi, og að afturkallað verði
boðið til Eisenhowers.
Kishi hefur tilkymnt, að hann
afturkalli það ekki undir nein-
um kringumstæðum.
Þau hjónin höfðu gert sér
hreiður í gamla hólmanum í
nyrðri tjörninni og gerðist brátt
heimarík þar, eins og menn
vita, því að þau réðust á aðrar
álftir, sem þar- komu. Sex egg
komu svo í hreiðrið og ungar
úr þeim öllum á laugardaginn.
Mun það fátítt, að ungi fáist úr
hverju egg'i, þegar þau eru svo
mörg. í gær voru ungarnir svo
látnir fara á flot í fyrsta skipti
og heilsast bæði móður og börn-
um vel.
Andarungar eru einnig farnir
að sjást, en aðstaða þeirra er
slæm, af því að þeir komast eig-
inlega hvergi á land eftir að
bakkarnir voru lagfærðir. Þarf
bersýnilega að lagfæra þær lag-
færingar.
Sjálfstæðis
krafizt.
Eftirtalin Afríkulönd, er lúta
Frakklandi, fara nú fram á
sjálfstæði.
Fílabeinsströndin, Efra Volta,
Dahomey og Niger. — Öll vilja
þau vera áfram innan vébanda
Franska samveldisins.
mttí’th s. mwsncmv -1
‘‘ 1 . .. J
sjórinn hlýrri. Sérstaklega eru
skilyrði fyrir átu góð á norð-
vestur svæðinu og fyrir vestan.
Þar er þörungagróður mikill og
átumagn meira en verið hefur
síðustu ár. Ekki varð vart við
síld að neinu ráði á því svæði,
en þar sem fæðuskilyrðin eru
hagstæð má gera ráð fyrir að
síldartorfur geti myndast þar
fljótlega.
Ægir fékk óhagstætt veður
fyrstu daga leiðangursins. Var
skipið þá við Vestfirði en hélt
síðan til Kolbeinseyjar og um
allt það svæði.
Óvíst er hve langan tíma það
tekur að gera við hin biluðu
tæki í Ægi, en leiðangursstjór-
inn telur að nauðsynlegt sé að
hafa skip á svæðinu til að
fylgjast með átumyndun og
síldartorfum sem geti komið
njög skjótlega.
Margir bátar eru nú tilbúnir
að fara norður, en enginn mun
að líkindum fara fyrr en eftir
næstu helgi, nerna fréttist af
síld.
Eins og menn rekur minni til,
þá aflýsti Krúsév Rússlands-
för Eisenhowers Bandaríkjafor-
seta. — Myndin hér að ofan
sýnir hins vegar skilti á hrað-
bát nokkrum sem ætlunin
mun hafa verið, að Eisenhower
færði Krúsév að gjöf. Báturinn
stendur nú utan dyra við
bandaríska sendiráðið > Moskvu
engum til gagns.
'fc Noregur og Svíþjóð voru
meðal 30 landa, sem áttu
fulltrúa á ráðstefnu AI-
þjóðahveitiráðsins í London
í apríl. Þar komust menn
að þeirri niðurstöðu, að
hveitiframleiðslan væri
mun meiri en eftirspumin
og að umframbirgðir færu
vaxandi.
1