Vísir - 05.05.1961, Blaðsíða 9
Föstudaginn 5. maí 1961
VlSIR
Guðrún Sæmundsdóttir
JMÍimn infjarorð.
Tíðum hefur hún verio gest-
ur að heimili mínu og frænd-
konu sinnar, síðastliðin 15 ár,
ef gest skyldi kalla hana. Satt
að segja var hún miklu frem-
.ur álfkona, sem til okkar kom.
Ekkert þurfti fyrir henni að
hafa, ekki einu sinni að tala
við hana, heldur var hún eins
og vættur, sem að straukst um
húsið, með bros á vör, milli
þess sem hún sat með prjón-
ana sína. Börnin hændust svo
að henni, að enginn var þeim
kærkomnari, þrátt fyrir að hið
.elzta nálgaðist fermingu. í veik-
indum þeirra, sat hún við rúm-
stokkinn hjá þeim með prjón-
ana, en hún las ekki fyrir þau,
'eða sagði þeim sögur, heldur
aðeins sat hjá þeim, og að finna
návist herinar var þeim nægi-
legt. Ástúð og hlýja skein út
úr öllum hreyfingum, og það
sem hún hafði við þau að segja,
var að innræta þeim Guðstrú
og trúna á hið góða, en sem
því miður vill gleymast hjá okk-
ur, svo mörgum. Hún tók þátt
.1 ieikjum þeirra og sögum, en
ekki sem beinn þátttakandi,
heldur sem áhorfandi og leið-
beinandi, og oft hef ég dáðst
að aðfinnslum hennar við þau
um reglu- og hirðusemi, svo ‘
voru þær hóflega frambornar, [
eri þau höfðu sín áhrif samt,
og komu að margfalt betra
haldi en rösklegar ávítur.
Tryggð hennar til okkar heim-
ilis, mun seint firnast, og ég
vona að það, sem hún hefur sáð
í hjörtu barnanna takist þeim
að varðveita og þroska; heitari
ósk á ég varla þeim til handa.
Guðrún Sæmundsdóttir var
fædd hinn 30. okt. 1869, og var
því rösklega 91 ár, er hún lézt,
að heimili sínu í húsi tengda-
sonar síns, hinn 30. apríl síðast-
liðinn. Hún var ein af 17 barna
hópi bóndans að Vindheimum
í Ölfusi, svo að búast má við
að foreldrarnir hafi haft nægan
starfa, við að brauðfæða hóp-
inn, en bóknám að heldurminna
tagi. En henni hefur ungri því
meir verið kennt að breyta eft-
ir góðum dyggðum, og meta
reglusemi og skyldur lífsins.
Það hefur verið hennar vega-.
nesti úr föðurhúsum, og nesti,!
sem entist allt hennar langa
líf — og jókst með árunum.
Aldamótaárið giftist hún
Þórði bónda Eyjólfssyni að
Vogsósum, og fluttist hún þang-(
að búferlum sama ár. Að föður!
hennar látnum taka þau við bú-
forráðum að Vindheimum og
búa þar rausnarbúi unz þau
flytja til Reykjavíkur árið 1921.
Böm eignuðust þau fjögur og
ólu upp eina fósturdóttur og eru
þau: Guðrún, gift'Eggert Krist-
jánssyni stórkaupm., VigdíSj'
gift Sæmundi E. Ólfssýni forstj.,1
Sæmundur stórkaupmaður í,
Hafnarfirði, Guþmundur Þór-!
arinn loftskeytamaður, og fóst-
ui’dóttirin Lóa, gift Óskari Ól-
afssyni brunaverði. Guðmund
misstu þau hjón á bezta aldri
hans. Sonarmissinn bar Guðrún
og þau hjón bæði, eins og þau
áttu Skap til, með einstöku
æðruleysi, því að einmitt þetta
sérstaka æðruleysi var það sem
einkenndi líf hennar og starf.
Eiginmann sinn missir svo Guð- \
rún árið 1939, eftir erfiða sjúk-
dómslégu, og heíur mér verið
sagt, að víoa hafi verið til þess
tekið, hve vel hún hjúkraði hon-
um í banalegunni, og hve vel
hún bar missi sinn.
Þau hjón höfðu árið 1930
flutzt í nýbyggt hús tengdason-
ar síns, Eggert Kristjánssonar,
og þar heiur Guðrún dvalið síð-
an, í blíðu nábýli við dóttur
sína, unz hún lézt, eins og fyrr
segir.
í dag kveðjum við Guðrúnu
hinzta sinni, konu, sem lifað
hefur 91 ár, bæði erfið. og góð,
og átt hefur hamingjuríkt og
farsælt líf öll þessi ár. Heilsa
hennar hefur verið með ein-
dæmum og skilningarvitin, sem
oft vilja hrörna .með ellinni,
hafa verið undursamlega góð,
allt fram á síðustu stundu. En
hamingja hennar hefur ekki
komið hlaupandi til hennar,
heldur hefur hún ávaxtað þær
dyggðir, sem hún hafði með sér
úr föðurgarði, trúrækni, skyldu-
rækni og óþrjótandi góðvild öll-
um til handa. Þeir, sem slíkt
veganesti fá, og breyta eftir og
ávaxta, þeirra verður ham-
ingjuríkt líf og við þá tengjast
ljúfar minningar ættingja og
samferðafólks. Og víst er það,
að Guðrún hefur horíið úr þess-
um heimi méð bezta „vitnisburð
góðs hjartalags, og hafi það eitt-
hvað að segja, veit ég ekki hver
ætti að fá betri móttökur fyrir
handan móðuna miklu.
Hjá afkomendum og vinum
Guðrúnar ríkir söknuður og
tregi, þó að flestir hafi skilið að
hvíldin var ekki langt undan,
en minningin um hana er ljúf
og yndisleg, og vil ég biðja
henni guðsblessunar í hennar
nýju heimkynnum. ..
M. I.
A 4
V BllIDGEÞATTflH V
4 ♦
Jþ VISIS *
Tveimur umferðum er nú
lokið í cocktail-lceppni Bridge-
félags Reykjavíkur og er Egg-
ert Benónýsson efstur með 482
stig. Röð og stig næstu manna
er eftirfarandi:
2. Hjalti Elíasson .... 472 st.
3. Jón Björnsson .... 468 —
4. Sig Helgason .... 466 —
5. Hilmar Guðmudss. 444 —
6. Guðl. Guðmundss... 441.—
7. Ólafur Þorsteinss. .. 439 —
8. Einar Þorfinnss. .. 439 —
9. Stefán Guðjohnsen 438 —
I Keppt hefir verið þannig.
að í þessum tveimur umferðum
hafa 32 einstaklingar dregið
sig saman og spilað 16 para
tvímenning. í síðustu umferð-
inni verður þó sá háttur hafð-
ur á, að 16 efstu mennirnir
draga sig saman við hina 16
og er það til þess að tryggja
að allir efstu mennirnir hafi
möguleika á að vinna keppnina.
I Hér er eitt spil úr síðustu
umferð, sem er nokkuð athygl-
isvert. Staðan var allir utan
hættu og suður gaf.
Nóg að gera hjá Nóa.
Nýi sjóstangaveiðibáturinn,
Nói, hejur haft nóg að gera
undanfarið, og virðist mikill á-
hugi hjá fólki fyrir slíkum veið-
um hér í nágrenninu, og hefur
safnazt mikið af pöntunum hjá
eigendum bátsins.
Nú þegar hafa verið farnar
fjórar ferðir, og verið fullskip-
að veiðimönnum í hvert sinn.
Varnarliðsmenn á Keflavikur-
flugvelli munu einnig hafa mik-
inn áhuga á að leigja bátinn
til veiðiferða, og verður Nói
sýndur þeim í dag (föstudag),
en útvarpsstöðin þar hefur
skýrt frá tilveru bátsins og að
hann fáist til leigu.
Hákon Daníelsson, einn eig-
enda bátsins, sagði við Vísi í
gær, að ekki væri víst, að þeir
færu með hann til Vestmanna-
eyja á sjóstangaveiðimótið, ef
nægjanlegt verkefni væri fyrir
hann hér í nágrenninu um það
jleyti. Annars er venjulega farið
I á veiðar kl. 8 á morgnana og
verið úti til kl. um 4 á daginri.
Eigendur bátsins útvega gest-
um hlífðarföt, veiðarfæri, beitu,
mat og annað, sem nauðsynlegt
er, en gjaldið fyrir slíka ferð
er kr. 650 krónur. Sá afli, sem
hver gestur veiðir, er hans eigin
eign, en eigendur Nóa bjóðast
(til að selja aflann fyrir gesti
| og draga frá fargjaldi eða end-
; urgreiða. Mikið er um það, að
starfsfólk atvinnufyrirtækja,
jsvo sem lögregluþjónar, strætis-
vagnabílstjórar, leigubílstjórar
o. fl., taki isg saman um að
leigja bátinn í veiðiferð, og hef-
ur það tekizt vel.
10. Ásm. Pálsson . .. 437—1
A K-4
¥ D-9-7
♦ Á-10-3
!* Á-K-10-5-2
A 7-3-2 A G-10-8-5
}¥ S-5-4-2 N. ¥ 10-3
' ♦ 8-7-6-4 V. A. ♦ K-D-2
* 7-4 S. * G-9-6-3
4 Á-D-9-6
% t Á-K-G-6
4 G-9-5
4 . D-8
Ónæiíssamt hjá
í gær.
Slökkviliðið var oft ónáðað í
gær, eða samtals fimm sinnum,
en í öll skiptin af litlu tilefni
og hvergi um teljandi bruna-
tjón að ræða.
Fyrsta kvaðningin var um
hádegið að Álfhólsvegi 78 í
Kópavogi. Þar hafði kviknað
út frá rafmagnsvé], en var búið
að slöklcva þegar slökkviliðið
kom þangað.
Tvær næstu kvaðningar voru
vegna íkveikju í sinu af völd-
um barna. -í fyrra skiptið kl.
12.15 að Bræðratungu í Kópa-
vogi og seinna skiptið kl. 17.10
á Shellveg. Hefur slökkviliðið
orðið fyrir miklu ónæði að und-
anförnu vegna sinuelda sem
krakkar kveikja. og oftlega ver
ið kvatt á vettvang af þeim sök
um.
Á átturida tímanum í gær-
kvöldi kveiktu krakkar. í
géymsluskúr á Höfðatúni 27. en
búið var að kæfa eldinn áður
en slökkviliðið kom þangað.
Tjón var litið'talið.
Síðasta kyaðnirigin var rétt
fyrir kl. 11 i gærkveldi. Þá kom
reyk- og eldsúla upp úr reyk-
háf húss við Háteigsveg, en all-
ur sá eldsvoði var um garð-
genginn; þegar slökkviliðið
kom. -
Fl kaupir
vél af SAS
Flugfélag íslands h.f. hefur
undirritað kaupsamning við
flugfélagið SAS um kaup á
Cloudmasterflugvél. Samning-
ar um kaupin hafa staðið yfir
að undanfömu, en endanlega
var frá þeim gengið fyrir nokkr-
um dögum.
Hin nýja Cloudmasterflugvél
verður afhent félaginu í júní-
mánuði næstk. Þangað til mun
Flugfélag íslands hafa sams-
konar flugvél á leigu frá SAS.
Eins og undanfarin sumur,
munu Viscount-skrúfuþotur
Flugfélags íslands, Gullfaxi og
Hrímfaxi, annast áætlunarflug
félagsins milli landa, en Cloud-
masterflugvélin verða notuð til
, leiguflugs, aukaflugferða og að
j litlu leyti til áætlunarflugs..
Flugfélag íslands hefur nú,
auk eigin flugvélakosts, tvær
fjögurra hreyíla flugvélar á
leigu. Samtals eru flugvélarn-
ar því átta.
Norður og suður komust í
sex grönd á öllum borðum, en
aðeins einn sagnhafi kom auga
á svokallaða ,,keðju“-kastþröng,
sem myndaðist á austur, og
vann þar með sjö. Var það hinn
góðkunni spilamaður Kristján
Kristjánsson, söngvari. Krist-
ján sat' í norður og austur spil-
aði út spaða. Kristján drap
heima á kónginn og spilaði síð-
an fjórum sinnum hjarta. í
þriðja hjartað gaf austur tígul-
tvist, en í það fjórða átti hann
ekkert afkast. Kasti hann spaða
eru spaðarnir teknir og kemst
hann þá í kastþröng með tíg-
ulhjónin og laufagosann fjórða.
Kasti hann tígli eru tígulslag-
irnir teknir og sama kastþröng-
in myndast. Og kasti hann laufi
eru þrettán slagir upplagðir,
! - v
Urslit í Bikarkeppni Brdge-
sambands íslands verða spiluð
í tígultvistinum dagana 5., 6. og
7. maí. Fjórar sveitir eru eftir
og er það sveit Mikaels Jóns-
sonar, Akureyri, sveit Brands
Brynjólfssonar, Rvk., Sveit
Laufeyjar Þorgeirsdóttur, Rvk,
og. sveit Jakobs Bjamasonar,
Rvk. Undanúrslit verða í kvöld
og spila þá saman Mikael og
Brandur, og Laufey og Jakob.
Ætlunin er að sýna eitthvað af
úrslitaleikjunum í Bridge-
Rama.
töitskcib Sigíu-
sEitið.
FIB — alríkislögreglan
bandaríska --=> hefir flett of-
an af 27 mönnum, sem ætl-
uðu að svíkja 15 millj. doll-
ara af tryggingafelögum.
Frár fréttaiitara Vísis.
Siglufirði 2. maí.
Iðnskóla Siglufjarðar var slit
ið 18. apríl sl. Skólinn starfaði
semkvöldskóli frá 1. nóvember
til 18. apríl.
Alls voru skráðir tilnáms í
skólanum 54 nemendur. Nokkr-
ir iðnnemar voru með fagteikn-
un og einstaka aðrar námsgrein-
ar í 4. bekk, en í 1., 2. og þriðji
bekkur störfuðu allan vetur-
inn.
Skólastjóri Iðnskólans er Jó-
hann Þorvaldsson, en auk hans
störfuðu 8 kennarar aðrir. Öll
kennsla er stundakennsla og
kennararnir allir starfandi
menn úr bænum, sem hafa
kennsluna semaukastarf, frá kl.
5 til 8 ákvöl8din. Kennsla fer
fram í Gagnfræðaskóla Siglu-
i f jarðar.
Margir nemendarina eru ó-
reglulegir, þ. e. taka aðeins þátt
í einstökum námsgreinum.
| Að þessu sinni luku fyrsta-
i bekkjarpi-ólfi 18 nemeridur; úr
ööðrum bekk lOnemendur, og
úr þriðja bekk 10 nemendur. Úr
fjórða bekk útskrifuðust 4 iðn-
near, 2 vélvirkjar og 2 múrar-
ar.
Hæstu einkunn í skólanum
— 9,22 stig — hlaut Páll Magn-
ússon frá Brekkukoti í Óslands-
hlíð. Það er einhver bezta eink-
unn sem tekin hefur verið við
skólann. Næsthæstu einkunn
fékk Hafþór Rósmundsson,
Siglufirði, 8,93 stig. Þessir tveir
ágætu nemendur fengu verð-
laun frá Kaupfélagi Siglfirð-
inga,fyrir frábæran námsárang-
ur. -þrj. ;
Nýr b&rprverk-
Á fundi bœjarráðs siðastL
þriðjudag lagði borgarstjóri
fram bréf frá Bolla Thoroddsen,
þar sem liann sœkir um lausn
frá störfum sem bœjarverkfrœð-
ingur.
Jafnframt lagð'i bæjarráð til'
á sama fundi, að Gústaf E. Páls-
son verkfræðingur yrði ráðinn
borgarverkfræðingur frá 1. júl5>
11961. -i