Vísir - 21.06.1961, Side 1
VISIR
51. árg. — Miðvikudagur 21. júní 1961. — 138. tbl.
220 þús.
tn. seldar.
Síldarútvegsnefnd hefur sam
ið um sölu á 220 þúsund tunn-
um af saltsíld til Svíþjóðar og
Finnlands. Er hér um talsvert
meira magn að ræða en þangað
hefur verið selt undanfarin ár.
Af þessu magni sem hér um
ræðir eru 15 þúsund tunnur af
síld sem má innihalda nokkru
minni fitu, en algengt er um
Norðurlandssaltsíld. Eru það
Finnar sem kaupa þessa síld og
er nú verið að salta upp í þessa
samninga. Búið er þegar að
salta í nær 9 þúsund tunnur af
þessari síld.
Enn hefur ekki tekizt að
semja um síldarsölu til Rússa,
en þeir hafa verið stærstu
kaupendur saltsíldar undanfar-
in ár.
Átök viö
Sláturfélagiö.
Átök urðu við Sláturfélag
Suðurlands x gær er verkfalls-
verðir réðust að einum sölu-
stjóra Sláturfélagsins og ætl-
uðu að hindra hann í að komast
lciðar sinnar.
Sölustjórinn var að sækja
varning í birgðageymslu félags-
ins eins og sölustjórar félagsins
eru vanir þegar um smávegis
er að ræða. Réðust þá að hon-
um formálalaust tveir verk-
fallsverðir og þrifu svisslykil-
inn úr bifreið hans. Sölustjór-
inn tók lyklana af þeim aftur
og kostaði það smá átök.
Verkfallsverðirnir verða
kærðir fyrir líkamsárás.
IKE sendiherra?
Sherman Adams, sem um
eitt skeið var skrifstofustjóri
Eisenhowers í Hvíta húsinu
hefur lagt til að Eisenhowcr
verði gerður að sérstökum
„friðarsendiherra".
Adarhs kvaðst fullviss um að
Eisenhower mundi taka við
slíkri skipun ar hendi Kennedy
Bandaríkjaforseta. Eisenhower
hefði ætíð reynt að efla friðinn
meðan hann var 1 forsetastóln-
um og vildi vinna frekar að
þessu göfuga markmiði. Eisen-
hower á ónotaða krafta sem
mundu nýtast vel í þessu starfi,
sagði Adams.
dvíst um
sáttafundi.
Það er óvíst hvort haldnir
verða sáttafundir vinnuveit-
enda og Dagsbrúnar í dag. Þeir
eru sjaldnast ákveðnir löngu
fyrir fram sagði sáttasemjari
ríkisins Torfi Hjartarson í
morgun. Með öðrum orðum,
það er óvíst um fundina og
ekkert frekar um málið að
segja að sinni.
Nei, þetta er misskilningur. Myndin er ekki tekin við Bláströndina, heldur suður í Naut-
hólsvík. — Maðurinn á skíðunum er Þórir Jónsson, gamalkunnur skíðakappi — í snjó. Hann er
dregin af bát Gunnars Ásgeirssonar og og hraðinn er 40 km. — Þetta er íþrótt sem segir sex!
Lögbann á Dagsbrún
Laust fyrir hádegi í dag
kvað borgarfógeti Kristján
Kristjánsson upp úrskurð í
ögbannsmáli Dagsbrúnar
og Kassagerðar Reykja-
úíkur.
Lagt er lögbann við
því að stjórn Dagsbrúnar,
þeir Eðvarð Sigurðsson farm.,
Guðm. J. Guðmundsson vara-
form., Tryggvi Egilsson ritari,
Tómas Sigurþórsson gjaldkeri,
Kristján Jóhannsson fjármála-
ritari, Halldór Björnsson með-
stjórnandi og Hannes M.
Stephensen meðstj. persónu-
lega eða í nafni félagsins hindri
eða láti aðra félagsmenn hindra
afgreiðsu, móttöku og flutning
á vörum að og frá verksmiðju-
húsum Kassagerðar Reykjavík-
ur hf. við Skúlagötu 26 og við
Framh. á 5. síðu.
Thorolf Smith
kærir Hannes.
í gær var þingfest meiðyrða-
málið Thorolf Smith gegn Vil-
hjálmi S. Vilhjálmssyni (Hann-
esi á Horninu).
índtt.
Frá fréttaritara Vísis.
Raufarhöfn í morgun.
Tíðindalaust er með öllu af
síldveiðunum í nótt. Síldin
stóð djúpt og ekki tök að kasta
á hana.
Aðeins einn bátur, Guðbjörg
ÍS, fékk síld í morgun i Reykja
fjarðarál, 550 tunnur.
Bátarnir telja sig hafa fengið
minni lóðningar en áður, auk
þess var kalsi á miðunum við
Kolbeinsey, en veður fór batn-
andi þar í morgun og gefur það
von um veiði með kvöldinu og
að síldin lyfti sér þá. Átuskil-
yrði norðvestur af Kolbeinsey
eru talin mjög sæmileg.
Bátaflotinn heldur sig aðal-
lega við Kolbeinsey og í Reykja
fjarðarál sem stendur.
Skip, sem afla hafa fengið frá
því kl. 7 í gærmorgun voru
þessi: Eldey 300 tunnur, Sæ-
fari BA 400, Stapafell 150,
Sunnutindur 500, Gnýfari 250,
Páll Pálsson 300 og loks Guð-
björg, sem áður er nefnd og
fékk 550 tunnur í morgun.
Málið er sprottið af því að
Hannes ásakaði, í dálkum sín-
um fyrir skömmu, fréttamann
Ríkisútvarpsins fyrir kommún-
istaáróður í fréttaflutningi af
útifundi „hernámsandstæðinga“
við Stjórnarráðið.
Hlutaðeigandi fréttamaður
var Thorolf Smith. Telur Thor-
olf það meiðyrði að Hannes
bendlar hann við kommúnisma
í skrifum sínum, auk þess sem
hann vænir hann um brot í
opinberu starfi. Þ. e. brot á
hlutleysisreglum Ríkisútvarps-
ins. '
Málflutningsmaður Thorolfs
er Gísli ísleifsson en vérjandi
Hannesar á Horninu er Áki
Jakobsson.