Vísir - 21.06.1961, Blaðsíða 10

Vísir - 21.06.1961, Blaðsíða 10
10 VISIK Miðvikudagur 21. júní 1961 Þeir sögðu henni að koma strax. Kristjana Magnúsdóttir fer utan 2 vikum fyrr en ætlað var. Kristjana Magnúsdóttir, sem varð í 2. sæti í fegurðar samkeppninni um daginn og hlaut þess vegna titilinn „fegurðardrottning Reylcja- víkur“, flaug áleiðis til Par- ísar í morgun, hálfum mán- uði áður en ráð var fyrir gert. Hafði Einar Jónsson, sem jafnan sér uin fegurðar- samkeppnina, sent myndir af Kristjönu til Parísar og urðu viðbrögðin þau, að þess var óskað, að hún kæmi án tafar, en áætlunin var, að hún kæmi 6. júlí. Kristjana starfar hjá Loftleiðum, og samþykkti félagið góðfús- lega, að hún fengi leyfi til að fara strax, og á hálfum öðrum degi tókst henni að ferðbúast. Mun hún fljúga til Miami 6. júlí til þess að taka þátt í „Miss Universe“ keppninni. Má með sanni segja, að stúlkurnar okkar sé etfirsótt ar, þegar fagurkerarni frönsku geta ekki beðið ef!' þeim í nokkra daga. Á 2. þiisimd §kip §töðvnð ve§tra. Olíuskortur víða yfirvofandi. Enn bólar ekkert á lausn á verkfalli sjómanna á kaupskip- um í Bandaríkjunum og er tala stöðvaðra skipa nú komin nokkuð á annað þúsundið. Sjómenn þeir, sem gengið hafa á land, eru um 100,000 talsins, og gert er ráð fyrir, að bæði skipum og sjómönnum í verkfalli fjölgi verulega næstu daga, ef ekkert lát verður á vinnustöðvuninni. Alvarlegast er, að olíuskortur segir til sín fljótlega, ef ekkert verður að gert, og foringjar sjómanna gera það, sem þeir geta til að fá fleiri verkalýðsfélög til liðs vjð sig. Þannig hafa þeir leitað til starfsmanna olíuhreinsunar- stöðva í Texas og beðið þá að leggja niður vinnu í samúðar- skyni. Leita þeir fyrst og fremst til þeirra, af því að með því að loka fyrir olíuna, kreppa þeir meira að öllum iðnaði Banda- ríkjanna en með nokkrum öðr- um hætti. En verkfallið getur einnig komið illa við aðrar þjóðir, því að nú stöðvast útflutningur á matvælum til annarra landa, sem sum hafa mikla þörf fyrir þau — svo sem ýmis Asíu og Afríkulönd. Á mánudag hefst fjórða starfssumar Mæðrastyrks- nefndar í Hlaðgerðarkoti, þar sem mæður dvelja með börn sín til hvíldar og hressingar. Þegar hafa borist svo margar umsóknir um dvöl þar, að vafasamt er, hvort hægt er að I sinna þeim öllum. Þau fjögur sumur, sem sumardvalar- heimilið hefur verið starfrækt hafa dvalið þar alls 125 mæður með 400 börn. Á myndinni eru frú Jónína Guð- mundsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar og forstöðu- kona heimilisins, og frú Auður Auðuns formaður bygging- arnefndar Hlaðgerðarkots. ÍTMIR VILJA LEITA * J»i.. Frakkar aðsfoða þar við námacgröff. Indverskur ráðherra er nú á ferð um Evrópulönd til að afla aðstoðar fyrir Indverja við að nýta auðlindir Iandsins. i ; 'V, ! I Þetta er ráðherra sá, sem fer með mál, er snerta námugröft og olíuvinnslu, og er hann um þessar mundir í Frakklandi. Eru Frakkar fúsir til að leggja af mörkum tæknilega aðstoð til að auka námagröft á Indlandi eða hefja slíka starfrækslu, þar sem hentugt þykir. Áður var ráðherrann búinn að vera á Ítalíu, þar sem honum var mjög vel tekið, og ítalir notuðu tæki- færið til að æskja heimildar til að leita að olíu á Indlandi. Bandaríski kvikmyndaleik- arinn Jeff Chandler er látinn á sjúkrahúsi í Los Angeles. Hann gekk undir uppskurð fyrir nokkrum dögum og var talinn úr allri hættu. Chandler var 42ja ára gamall þegar hann lézt. Fólk á leið í síld. AUmikið hefur verið auglýst eftir síldarstúlkum undanfarið. Að því er upplýst var á ráðn- ingastofu Reykjavíkur hafa fá- ar stúlkur gefið sig fram. Hins vegar mun algengt að stúlkur ráði sig beint, en ekki í gegnum skrifstofuna, ef þær hafa verið í síld áður. Eftir þeim upplýsingum sem Vísir hefur aflað sér mun samt vera kominn skriður á ráðn- ingu stúlkna norður. Með Norð urleið fer fjöldd fólks daglega. í morgun fóru til dæmis fjórir stórir bílar fullskipaðir farþeg- um og var þar á meðal fólk sem var að fara í sídarvinnu til Siglufjarðar og hafna við Eyja fjörð Með næturferðunum fer einnig fjöldi fólks og svo hefur verið nú um nokkurt skeið. Tangastríð tengdamömmn sýnt iiiii .illt IíiiiiI. Nýr flokkur, Tengdamömmuflokkurinn, leggur upp í yflrrefð um helgina. Nýr flokkur hefir bætzt við, Tengdamömmuflokkurinn, og liefir svo sem upp á eitt stríðið að bjóða, eins og hinir flokk- arnir, en það er bara miklu skemmtilegra stríð, sem sé „Taugastríð tengdamömmu“. Margir eru þeir, sem muna eftir „Tannhvassri tengda- mömmu“, leikritinu, sem Leik- félag Reykjavíkur sýndi hér í bæ og víða^ úti um land við metaðsókn fram að þeim tíma, hafði alls 128 sýningar. Höf- undar leikritsins sömdu fram- hald af þeirri „Tannhvössu“, og það nefnist einmitt „Tauga- ;tríð ,engdamömmu“. Leikfé- :agið hefir ekki treyst sér til að standa í því stríði við „múttu“, en hins vegar hafa allir leikararnir úr „Tann- hvössu“ (að einum undanskild- um) tekið sig til að flakka með „Taugastríðið“ landshornanna milli næstu fjórar vikurnar. Verður lagt upp um næstu helgi, sennilega til Vestmanna- eyja og þaðan austur um land, alls áformað að heimsækja yfir 40 staði og halda 50—60 sýn- ingar, seinast í Reykjavík og grennd. „Taugastríð tengdamömmu“ er í þrem þáttum, höfundur Philip King og Falkland Cary, þýðandi Ragnar Jóhannesson. Leikstjóri verður Jón Sigur- björnsson. Hann verður líka bílstjóri Flokksins, enda gat hann sér orðstír sem vörubíl- stjóri áður en hann varð fræg- ur fyrir leikaraskap og óperu- söng. Hefir Flokkurinn leigt „mannlausan rútubíl“ til ferð- arinnar, svo sem tekið var til orða. Leiktjöld hefir Steinþór Sigurðsson listmálari gert, og ætlar hann auk þess að leika duggunarlítið hlutverk í „stríð- inu“. En sú sem heyr aðalstríð- ið er hin gamla „tannhvassa“, sjálf Emilía Jónasdóttir. Aðrir stríðsmenn eru Brynjólfur Jó- hannesson, Nína Sveinsdóttir, Áróra Halldórsdótitr, Þóra Friðriksdóttir,- Sigríður Haga- lín, Guðmundur Pálsson og Ró- bert Arnfinnsson, sem leikur hlutverkið, er Árni Tryggvason lék í Tannhvassri. Tengdamömmuflokkurinn hefir ekki enn tekið ákvörðun um framboð við næstu kosn- ingar, en hann ætlar samt að kanna þetta allt næstu vikurn- ar um sama leyti og hinir flokk arnir fara yfirreið um landið.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.