Vísir - 21.06.1961, Side 4
4
V 1 S I R
Miðvikudagur 21. júní 1961
tungum i
Kirkjan í Görðum á
merkilega sögu, hefir eitt
sinn verið hið reisulegasta
hús, veggirnir háir, hlaðnir
úr grjóti, sem er með stein-
lími, gluggarnir háir og
bogamyndaðir. Á stafninum
vestanverðum voru breiðar
bogamyndaðar dyr og yfir
þeim tveir bogamyndaðir
gluggar. Það leynir sér ekki
af rústunum að dæma, að
kirkjan hefur gnæft eins og
drottning yfir hinum lág-
reistu býlum í kring. Svo
kom tími niðurlægingar, og
hrörnunar. Kirkjugripir, alt-
ari og klæði voru borin á
brott, þakið hrundi og eftir
sátu rústirnar einar. Ein-
hver nýtinn bóndi hefur svo
líklega notað kirkjuna sem
hlöðu eða gripahús, og sett á
hana þak og steypt utan á
hleðsluna í veggjunum. Saga
kirkjunnar verður ekki rak-
in hér.
En það er mikið um að
vera við Garðakirkju þessa
dagana. Þegar eg kom þar
um daginn var margmenni
við kirkjuna. Allt var þetta
ungt fólk, sumir grófu skurð
fyrir vestan kirkjuna, en
inni í henni voru einar 8
yngismeyjar, sem hömuðust
við að moka mold í hjólbör-
ur. í fyrstu gat eg ekki heyrt
orðaskil en það leyndi sér
ekki að þetta fólk talaði ekki
íslenzku og kom mér þá auð-
vitað í hug að þetta væri
helgur staður og hér væri að
gerast kraftaverk, því nú
væru Álftnesingar og Garða-
hreppingar farnir að tala
tungurq. Kenndi eg þar tvo
menn, séra Braga og Her-
mann Ragnar, og fannst
mér ekki ósennilegt að and-
inn hefði komið yfir þá. Eg
vatt mér að séra Braga og
svaraði hann mér þáóðar á
þeirri tungu sem veggir
Garðakirkju hafa um aldir
bergmálað. Gaf hann þá
skýringu á þessu fyrirbæri
að hér væri að verki ungt
fólk komið alla leið vestan
frá Ameríku til þess að
hjálpa til við áð reisa Garða-
kirkju að nýju.
Einhverra hluta vegna
verður að grafa upp úr gólfi
kirkjunnar. Og þarna ham-
aðist fólkið við að grafa og
aka moldinni út í hjólbörum.
Allt í einu birtist maður í
Rústir kirkjunnar í Görðum.
dyrunum. Hann stritaði með
kúfaðar börur af mold og
blés þungan.
— Þarna kemur séra Bash
með sínar börur, sagði séra
Bragi og hvíldi sig stundar-
korn fram á skófluna. Séra
Bash hvolfdi úr börunum,
þurrkaði svitann af enni sér
og blés mæðinni. Eg tók
hann tali stundarkorn.
— Þetta fólk eru mest há-
skólastúdentar, piltar og
stúlkur eins og þú sérð.
— Það er víðsvegar að úr
Bandaríkjunum og þarna er
ein stújka frá Kanada. Ekk-
ert af þessu fólki þekktist
fyrr en við hittumst í New
York á leið til íslands. Eg er
sjálfur í Minneapolis og er
þar fyrir Youth Office of
American Lutheran Church-
es, það mun vera æskulýðs-
samband Lútersku kirkjunn-
ar í Ameríku, og er leiðtogi
þessa hóps. Konan mín er
hérna með mér, en aðra
þekkti eg ekki fyrr en við
lögðum af stað hingað.
—■ Hver borgar svo ferðir
og annana kostnað í sam-
bandi við för ykkar?
að halda á sér hita við þetta
starf, segir pastorinn og
strýkur af sér svitann. Okk-
ur finnst fallegt hérna og
svo erum við búin að bragða
fiskinn ykkar. Hún Stella,
sem eldar fyrir okkur í skól-
anum, er alveg fyrirtaks
matreiðslukona og eg hefði
satt að segja ekki trúað því,
að fiskur gæti verið svona
góður.
— f hvaða skóla eldar
Stella?
— Er það meiningin, að
þetta fólk púli hér fyrir ekki
neitt frá morgni til kvölds,
sofni svo í skólahúsinu á
kvöldin og feri svo héðan til
Ameríku?
— Nei ónei, við komum
saman á kvöldin og um helg-
ar. Svo er ætlunin að fara í
ferðalög. Það gefst ekki tími
til að ræða meira við síra
Braga um þetta ágætisfólk,
sem hingað er komið til að
vinna með íslenzku æsku-
fólki að góðu málefni. Fólkið
er á vegum alkirkjuráðsins
og slíka hópa er hægt að
finna víðsvegar í heiminum
þar sem það notar frístund-
ir sínar til að styrkja gott
málefni og kynnast löndum
og lýðum um leið.
— Við búum í litla skóla-
húsinu þarna. Stofunni hefir
verið skipt í tvennt. Öðrum
megin sofa piltarnir og hin-
um megin stúlkurnar. Síra
Bash er nú búinn að kasta
mæðinni. Hann grípur bör-
urnar og eg rölti á eftir hon-
um inn í krkjuna. Hann er
búinn að grafa stóra holu í
suðvesturhornið og nú grípur
hann skófluna og mokar eins
og vegavinnumaður, sem er
að moka sig í álit hjá verk-
stjóranum.
Það er líf og fjör inni í
kirkjunni, stelpurnar moka
í börurnar og strákarnir
keyra út. Þetta er fyrsti dag-
urinn og enginn kann sér
hóf. Það er ekki breitt bakið
á Lornu, en hún dregur ekki
af sér, og eykur sér erfiði,
því það er auðséð að hún hef-
ir aldrei verið í vegavinnu.
Mary og Gay eru farnar að
bregða hendi á mjóhrygginn,
— Það borgar hver fyrir
sjálfan sig. Þetta er sjálf-
boðaliðastarf. Hver og einn
verður að borga 350 dali í
ferðakostnað og annað. Þetta
er ekki svo lítið en hér er
fólk, sem hefir að minnsta
kosti einu sinni áður varið
sumarleyfi sínu á þennan
hátt.
— Hvernig líkar ykkur
svo dvölin hér?
— Okkur hefir öllum
fundizt kalt, en það er hægt
því þær eru búnar að moka
meira en hálfan dag og þreyt
an er farin að segja til sín,
en gamanyrðin eru látin
fjúka. Myra, Sally og Idery
svara fullum hálsi, fylla bör-
urnar svo strákarnir hafa
vart undan að keyra út.
— Það er von á fleira fólki
hingað, segir síra Bragi. —
Hópur af æskufólki frá Eng-
landi kemur á næstunni.
Ameríkufólkið verður hér í
þrjár vikur.
Akreinar
og stöðu-
bönn.
Frá fréttaritara Vísis
Akranesi í morgun_
Frá áramótum til 10. júní s.l.
hefur 121.825 tunnxun af síld
verið landað á Akranesi. Bróð-
urparturinn af síldinni, sem
landað hefur verið á þessu
tímabili, er afli tveggja báta,
Höfrungs 2. 33.277 t., og Har-
alds 25.000 tunnur.
Auk síldaraflans lagði Höfr-
ungur 2. á land 440 lestir af
þorski og byrjaði aftur á síld-
veiðum 27. apríl, en Haraldur
byrjaði 18. apríl. M.b. Sigurð-
ur, sem var með mestan þorsk-
afla á vetrarvertíðinni á Akra-
nesi, fékk 660 lestir af þorski
og 11.000 tunnur af síld.
Höfrungur byrjaði á síld-
veiðum í haust og er saman-
lagður síldarafli bátsins fra
þeim tíma 45 þúsund tunnur.
Hrapaði 40 m
og lifði.
Norskur piltur Tom Oshaug,
13 ára gamall, var með nokkr-
um félögum sínum í vor í
eggjaleit í háu fjalli í heim-
byggð sinni, er steinn sem hann
sat á losnaði og féll 40 metra
með piltinn sitjandi á niður í
fjöru.
Steinninn kom niður þrjá
metra frá fjöruborðinu og þar
kastaðist Tom af honum út í
sjó. Hann var lærbrotinn og
fékk heilahristing, en samt
tókst honum að hafa sig hjálp-
arlaust til lands. Félagar hans
komu honum til læknis og þótti
ganga kraftaverki næst að
hann skildi lifa af fallið og
komast úr sjónum þótt særður
væri.
Fyrst yfir í ár.
Ensk stúlka hefur synt yfir
Ermarsund frá Frakklandi til
Englands. ,
Hún var fyrst allra til þess
að synda yfir sundið í sumar
og var 20V2 klst. á ledðinni.
Hún er 19 ára og heitir Doro-
thy Perkins.
r j
Ahugi vex á Su5-
urskautslandinu.
Bandaríkjastjórn ætlar að
stofna nýja skipulagsskrifstofu
vegna könnunarstarfa á Suð-
urskautslandinu.
Mun skrifstofa þessi hafa
með höndum allan undirbúning
á rannsóknarstörfum þar syðra,
og sýnir þetta vaxandi áhuga
Bandaríkjanna fyrir. þessu lítt
kannaða landssvæði. Mun auk-
in áherzla verða lögð á allskon-
ar vísindastörf þar framvegis.